Morgunblaðið - 28.08.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018
Kókosjógúrt
Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Lára Sverrisdóttir, lögfræðingur og
fulltrúi íbúa í Furugerði, segir svar
embættismanns Reykjavíkurborgar
benda til að skipulag á þéttingarreit
við Furugerði verði endurskoðað.
„Okkur finnst sem við höfum unnið
áfangasigur,“ segir Lára.
Hún kveðst ekki hafa fengið upp-
lýsingar um hvort og þá hvaða breyt-
ingar séu áformaðar við Furugerðið.
Hins vegar hafi viðkomandi
embættismaður upplýst að ekki væri
sátt um tillöguna sem átti að fara
fyrir umhverfis- og skipulagsráð. Til-
lagan væri því í endurskoðun hjá um-
hverfis- og skipulagssviði.
Eins og rakið hefur verið í Morg-
unblaðinu hafa íbúar í Furugerði
mótmælt fyrirhugaðri þéttingu
byggðar á lóðinni Furugerði 23 við
Bústaðaveg. Þar var lengi gróðrar-
stöðin Grænahlíð. Borgin áformaði að
innheimta sem svarar 1,5 millj. í inn-
viðagjald á hverja 100 ferm. í fyrir-
huguðum íbúðum í Furugerði.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs,
segir borgina vera að yfirfara tillög-
una. Hún telur aðspurð of sterkt til
orða tekið að segja að tillagan sé í
endurskoðun. „Við töldum tillöguna
ekki nógu góða. Það er því verið að
vinna áfram með hana.“
Leysa þarf nokkur atriði
Sigurborg Ósk segir borgina hafa
tekið jákvætt í umrædda fyrirspurn.
Þó með mörgum skilyrðum. Til dæm-
is varðandi fjölda íbúða, útfærslu á
bílastæðum, hljóðvist og ýmislegt
annað sem þurfi að leysa.
„Ef það tekst að leysa þessi atriði á
fullnægjandi hátt fer tillagan í sex
vikna auglýsinga- og kynningarferli.“
Endurmeta þéttingarreit
Fulltrúi íbúa í Furugerði telur svar borgar áfangasigur
Teikning/Arkís
Drög Hugmynd að þéttingu byggð-
ar við Furugerði við Bústaðaveg.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Aðalmeðferð í máli Vals Lýðssonar
hófst í gær fyrir Héraðsdómi Suður-
lands, en hann er ákærður fyrir að
hafa banað bróður sínum Ragnari
Lýðssyni á heimili Vals að Gýgjarhóli
II í Bláskógabyggð aðfaranótt 31.
mars sl. Samkvæmt ákæru sló hann
bróður sinn ítrekað í bæði höfuð og
líkama, auk þess að sparka og/eða
trampa á honum, meðal annars á
höfði. Ragnar hafi hlotið alvarlegan
höggáverka ofarlega vinstra megin á
enni, sem olli sári á hörundi, blæð-
ingu innan í höfuðkúpu og snöggri
breytingu á meðvitundarstigi. Af
áverkanum hafi einnig hlotist ógleði,
svimi og uppköst sem leitt hafi til
þess að hann lést af banvænni inn-
öndun magainnihalds.
Í greinargerð Ólafs Björnssonar,
verjanda Vals, er þess krafist að hann
verði sýknaður af ákæru um mann-
dráp eða sakfelldur fyrir líkamsárás.
Þar segir að ekki hafi tekist að sanna
ásetning Vals og að hann hafi mögu-
lega ruglast á bróður sínum og inn-
brotsþjófi í ölæði. Valur hringdi sjálf-
ur í Neyðarlínuna og tilkynnti um
bróður sinn liggjandi í blóði sínu á
gólfinu. Verjandinn segir ákæruvald-
ið byggja að miklu leyti á símtalinu,
þar sem hann virðist játa. Ekki sé
hægt að gera það, enda hafi Vali verið
brugðið og hann í annarlegu ástandi.
Drukku „heilmikið“
„Eftir á að hyggja hefði maður átt
að vera hættur að drekka fyrir
löngu,“ sagði Valur fyrir dómi, en
hann ber við minnisleysi um atburði
aðfaranætur 31. mars sl. Kvöldið áð-
ur voru bræðurnir saman komnir
ásamt þriðja bróðurnum, Erni. Borð-
uðu þeir saman og að sögn Vals hófu
þeir Ragnar þá að drekka vín sem
Ragnar hefði komið með. Þeir bræð-
ur hafi drukkið „heilmikið“ og að Örn
hafi verið með þeim, en hann er að
sögn Vals hófsamur á vín og auk þess
að jafna sig eftir heilablæðingu. Gekk
hann til náða um klukkan tíu að sögn
Vals.
„Alltaf bætti Ragnar í glösin,“
sagði Valur, þeir bræður hafi drukkið
vodka og Campari, lítraflösku af
hvoru sem báðar kláruðust. Valur
sagðist ekki muna hvað þeir ræddu
en nefndi að Ragnar hefði brugðist
illa við er hann greindi honum frá
áformum sínum um að færa bæjar-
stæðið. Valur lýsti því hvernig hann
myndi glefsur af „illilegu andliti“,
sem hefði verið líkt Ragnari, en þó
hefði honum á sama tíma þótt eins og
andlitið væri ekki Ragnars.
Vaknaði Valur að eigin sögn „léttur
í lund og grandalaus“ morguninn eft-
ir, en það breyttist eftir að hann fann
bróður sinn látinn á gólfinu. „Auðvit-
að flaug afgerandi að mér að stytta
mér aldur þegar að þetta leit [út] fyr-
ir að vera yfirgnæfandi líkur til að ég
hefði átt þarna hlut að máli,“ sagði
Valur og ítrekaði að hann myndi ekki
til þess að nein átök hefðu átt sér
stað.
Óminnisástand sökum ölvunar
Dómkvaddir sérfræðingar sem
lögðu mat á sakhæfi Vals sögðu að
hann hefði ekki sýnt merki um vit-
glöp eða annað sem útskýrt gæti
minnisleysi hans um atburði þá sem
áttu sér stað á heimili hans, annað en
óminnisástand sökum ölvunar.
Í viðtölum Nönnu Briem geðlækn-
is við Val kom fram að hann hefði átt
við áfengisvanda að stríða og sögu um
óminni tengt áfengisdrykkju, áður
fyrr. Þá hefðu tveir vinir Vals sagt að
hann hefði átt það til að vera ofbeldis-
fullur undir áhrifum. Brynjar Emils-
son sálfræðingur sagði að við mat
hans á sakborningnum hefði ekkert
komið fram sem gæti skýrt minnis-
leysi hans umrætt kvöld. Hann bætti
því við að Valur hefði mælst með „af-
burðagreind“ en einnig skimast á
mörkum einhverfurófs. Báðir sér-
fræðingar voru sammála um að Valur
væri sakhæfur.
Valur hafði tekið ákvörðun um að
hætta að drekka í janúar sl. og ekki
drukkið áfengi fyrr en umrætt kvöld.
Að sögn Nönnu fannst Val vera nóg
komið af drykkju og full ástæða til að
hætta að drekka, eins og sakborning-
urinn sjálfur lýsti í skýrslu fyrir dómi.
Þá sagðist hann eiga það til að drekka
of mikið og stundum verða ofbeldis-
fullur undir áhrifum áfengis.
Nanna greindi frá því að í viðtölum
sínum við sakborninginn hefði ítrek-
að komið fram að hann myndi ekki
nema fyrri hluta kvöldsins og kann-
aðist ekki við það á neinn hátt að hafa
verið reiður út í bróður sinn. Hann
sæi eftir því sem hefði gerst en gæti
ekki gefið á því neinar skýringar.
Hennar faglega mat væri að ofbeldið
sem Valur væri sakaður um mætti
skýra með ölvunarástandi hans.
Vinur Ragnars kom fyrir dóminn,
en sá hafði móttekið símtal frá honum
á milli klukkan 22.30 og 23.00 síðasta
kvöldið sem Ragnar lifði. Vitnið lýsti
því að það hefði legið létt á Ragnari,
eins og alltaf þegar þeir töluðu sam-
an, og hann tjáð sér að hann væri á
heimili Vals bróður síns.
Skilningur vitnisins var á þá leið að
samband bræðranna hefði verið gott
og sagðist hann hafa orðið þess
áskynja að vel hefði farið á með þeim
er símtalið átti sér stað.
Atlagan mjög staðbundin
Blóð og önnur ummerki um átök að
Gýgjarhóli II voru nær eingöngu
bundin við þvottahúsið. Þetta sagði
Ragnar Jónsson lögreglufulltrúi, sem
vann að blóðferlagreiningu á vett-
vangi. Guðmundur Tómasson, fulltrúi
í tæknideild lögreglu, sagði ekki útlit
fyrir að lík Ragnars hefði verið fært
til að honum látnum, nema mögulega
lítillega. Niðurstaða blóðferlagrein-
ingar var að Ragnari hefði verið veitt
högg, eitt eða fleiri, þar sem hann
hefði verið álútur eða á fjórum fótum
fyrir framan þvottavélina. Útlit væri
fyrir að hann hefði þegar verið með
blæðandi sár, því við höggið eða
sparkið þeyttist blóð á þvottavélina.
Að sögn Guðmundar voru engin
merki um að blóð hefði verið þrifið af
vettvangi. Sagði hann jafnframt lík-
legt að stór áverki á höfði Ragnars
hefði myndast eftir að hann var orð-
inn liggjandi á gólfinu, er höfuð hans
annaðhvort skall í gólfið eða var skellt
í gólfið. Verjandi Vals spurði hvort
Guðmundur teldi mögulegt að Ragn-
ar hefði fallið á þvottavélina. Það taldi
hann ósennilegt.
Guðmundur sagðist telja að blóð
sem var á sokkum ákærða mætti út-
skýra með því að Valur hefði sparkað
ítrekað í síðu Ragnars. Fram kom í
máli Kolbrúnar Benediktsdóttur sak-
sóknara að krufning hefði leitt í ljós
að nær öll rifbein á hægri síðu Ragn-
ars hefðu verið brotin. Báðum lög-
reglufulltrúunum kom á óvart að í
ljósi þess að meintur gerandi hefði
verið í blóðugum sokkum, hefðu ekki
fundist teljandi merki um að blóð
hefði dreifst um húsið er hann gekk
þar um. Spurði saksóknari hvort það
mætti skýra með því að blóð á sokk-
unum hefði verið þurrt er meintur
gerandi gekk um húsið. Það sagði
Ragnar mögulegt.
Aðalmeðferð í málinu heldur áfram
næsta mánudag, 3. september, en þá
kemur Sebastian Kunz réttarmeina-
fræðingur fyrir dóminn.
Ölvun sögð skýra ofbeldið
Aðalmeðferð hófst í máli Vals Lýðssonar í Héraðsdómi Suðurlands í gær Ákærði bar við minnis-
leysi Áverki á hnúa „eftir einhvers konar högg“ Afburðagreindur en talinn á mörkum einhverfu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ákærði Valur Lýðsson, t.h. og Ólafur Björnsson, verjandi hans við aðalmeðferð í Héraðsdómi Suðurlands í gær.
Valur er ákærður fyrir að hafa banað bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, að Gýgjarhóli II 31. mars síðastliðinn.
Aðalmeðferð Sigurður Kári Kristjánsson réttargæslumaður og Kolbrún
Benediktsdóttir saksóknari við aðalmeðferð málsins í héraðsdómi í gær.
Andri Kristinsson læknir, sem
staðfesti andlát Ragnars, sagði
að hann hefði verið látinn í að
minnsta kosti sex klukkustundir
áður en Andri framkvæmdi
skoðun sína kl. 11:13, 31. mars
sl. Sagði hann aðspurður að
ekkert benti til þess að lík Ragn-
ars hefði verið hreyft, en það
fannst í þvottahúsinu heima hjá
ákærða.
Þórður Guðmundsson læknir,
sem gerði réttarfræðilega skoð-
un á ákærða, sagðist hafa fund-
ið tvær rispur á höfði hans, mar
á hnúa baugfingurs hægri hand-
ar og á handarbaki. Þá hefði Val-
ur verið með dökka bletti á bæði
höndum og iljum sem hefðu ver-
ið storknað blóð. Kolbrún Bene-
diktsdóttir saksóknari spurði
Þórð hvort hann teldi áverkana
á hendi Vals í líkingu við þá sem
árásarmenn fengju gjarnan eftir
að hafa veitt öðrum hnefahögg.
Hann sagði að miðað við sína
reynslu passaði það; marið á
hnúa Vals hefði komið eftir ein-
hvers konar högg.
Ólafur Björnsson, verjandi
Vals, spurði hvort mögulegt
væri að áverkarnir gætu verið
tilkomnir af því að Valur hefði
verið handjárnaður. Þórður
sagði það ólíklegt.
Með mar á
hnúa sínum
SKÝRSLUR LÆKNA