Morgunblaðið - 28.08.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi, segir að
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
á Nesinu hafi lagt til að fundum
bæjarstjórnar
verði fækkað um
helming og verði
haldnir mánaðar-
lega en ekki
tvisvar í mánuði,
eins og nú er
gert.
Ásgerður sagði
í samtali við
Morgunblaðið í
gær, að engin
ákvörðun hefði
verið tekin í þessu máli. „Það var
bara lögð fram tillaga, vegna þess
að á síðasta kjörtímabili voru bæj-
arstjórnarfundirnir mjög stuttir.
Vörðu bara í nokkrar mínútur í
hvert skipti. Tillagan hefur ekki
verið afgreidd, heldur var henni
vísað til bæjarráðs,“ sagði Ásgerð-
ur.
Frá síðasta kjörtímabili
Ásgerður segir að út frá þeirri
umræðu sem varð á síðasta kjör-
tímabili, þá hafi komið upp umræða
um það í vor hvort ekki væri rétt
að fækka fundunum í einn í mánuði.
Fulltrúi N-listans á Seltjarnar-
nesi, lét bóka á síðasta bæjarstjórn-
arfundi mótmæli listans við fækkun
bæjarstjórnarfunda. Orðrétt segir í
bókuninni: „Bæjarfulltrúi N-listans,
sem kjörinn var af tæplega 16%
bæjarbúa til að gæta hagsmuna
bæjarbúa hefur enga aðra aðkomu
að málefnum bæjarins en bæjar-
stjórnarfundi.“ Tillögu S-lista og N-
lista um að fulltrúi N-lista verði
áheyrnarfulltrúi í bæjarráði var vís-
að til næsta bæjarstjórnarfundar.
agnes@mbl.is
Vilja að fundum
verði fækkað
Sjálfstæðismenn leggja til fækkun
Morgunblaðið/Golli
Seltjarnarnes D-listinn leggur til
fækkun bæjarstjórnarfunda.
Ásgerður
Halldórsdóttir
Ágætlega veiddist af makríl í Smugunni austur af land-
inu á sunnudag, en er leið á síðustu viku hafði dregið úr
afla í Reyðarfjarðardjúpi. Flest íslensku uppsjávar-
skipanna hafa því reynt fyrir sér í Smugunni síðustu
daga ásamt skipum frá Rússlandi og Færeyjum.
„Það hefur meira verið haft fyrir makrílnum á þess-
ari vertíð heldur en oft áður,“ sagði Ingimundur Ingi-
mundarson, útgerðarstjóri uppsjávarskipa hjá HB
Granda, í gær. „Við vonum enn að það rætist úr með
veiði við landið, en þegar eitthvað hefur fundist hefur
veiði staðið stutt yfir og svo hafa menn þurft að byrja
að leita upp á nýtt.“
Ingimundur segir að trúlega geti makrílvertíð staðið
eitthvað fram í október í Smugunni miðað við síðustu
ár. Þangað er yfir 30 klukkustunda sigling frá höfnum
austanlands. aij@mbl.is
Mikið haft fyrir makrílnum
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Vertíð Albert Páll Albertsson og Kjartan Ársælsson um
borð í Víkingi AK í Smugunni fyrr í sumar.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
AF ÖLLUM STÆRÐUM, HVORT SEM ER Í VEISLUSAL
OKKAR, Í AÐRA SALI EÐA Í HEIMAHÚSI
Veitingar af öllum
stærðum, hvort sem er í
veislusal okkar, í aðra sali
eða í heimahúsi.
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja
Veislusalur okkar er bjartur og fallegur salur
á jarðhæð, gott aðgengi.
Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin
í verði þegar erfidrykkja er í sal.
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Kíktu á verðið
Tilboðsverð
3.995
verð áður 5.995
stærðir 40-46
Herraskór
Héraðssaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur Júlíusi Vífli Ingv-
arssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, en hann er
ákærður fyrir peningaþvætti með
því að hafa geymt fjárhæðir, að and-
virði 131 til 146 milljónir króna, á er-
lendum bankareikningi sínum og
ráðstafað þeim á bankareikning hjá
vörslusjóði í Sviss, en fjármunirnir
voru að hluta til ávinningur refsi-
verðra brota, að því er fram kemur í
ákærunni. Er þess krafist að hann
verði dæmdur til refsingar og
greiðslu alls sakarkostnaðar.
Júlíus Vífill er sagður hafa geymt
fjármunina, sem voru í Bandaríkja-
dölum, evrum og sterlingspundum, á
bankareikningi sínum hjá bankanum
UBS á aflandseyjunni Jersey í
Ermarsundi á árunum 2010 til 2014.
Þá er hann sagður hafa ráðstafað
umræddum fjármunum inn á banka-
reikning sem tilheyrði vörslusjóðn-
um Silwood Foundation í bankanum
Julius Bär í Sviss. Rétthafar vörslu-
sjóðsins voru Júlíus Vífill, eiginkona
hans og börn.
Um var að ræða tekjur sem hon-
um höfðu áskotnast nokkrum árum
fyrr en hann ekki talið fram til
skatts. Því greiddi hann ekki tekju-
skatt, útsvar eða vexti af fjármunum.
Í ákærunni segir að fjárhæð hins
ólögmæta ávinnings sem Júlíus kom
sér undan að greiða skatt og útsvar
af og vextir af því fé hafi verið á
bilinu 49 til 57 milljónir króna.
Rýmra gildissvið lagaákvæðis
Í ákærunni er rakið að peninga-
þvætti sé refsivert brot skv. 264. gr.
almennra hegningarlaga og að með
lögum sem tóku gildi árið 2009 hafi
gildissvið ákvæðisins rýmkað til
muna. Þannig nái ákvæðið nú til
ávinnings af öllum refsiverðum brot-
um auk þess sem refsihámark hækk-
aði í sex ár. Þá hafi sjálfþvætti verið
gert ólöglegt, þ.e. það var gert refsi-
vert að þvætta ávinning af eigin
brotum. Því hafi það brot sem Júlíus
Vífill er ákærður fyrir verið refsivert
frá 30. desember 2009.
„Sá ávinningur sem hér er ákært
fyrir þvætti á, kom til vegna skatta-
lagabrota ákærða á gjaldaárinu 2006
eða fyrir þann tíma. Hlotnuðust
ákærða tekjur árið 2005, eða fyrr, en
taldi þær ekki fram til skatts í sam-
ræmi við lagaskyldu þar um. Gerðist
ákærði því sekur um refsivert brot
gegn skattalögum,“ segir í ákær-
unni. Þar segir einnig að umrædd
skattalagabrot séu fyrnd en það
breyti ekki þeirri staðreynd að sá
hluti fjármunanna sem greiða hefði
átt í tekjuskatt og útsvar auk ávinn-
ings vegna vaxtatekna og gengis-
hagnaðar sé andlag peningaþvættis-
brots Júlíusar.
„Umrætt fé er ávinningur af
skattalagabrotum ákærða sem voru
refsiverð þegar þau voru framin. Var
heildarávinningur vegna brotanna,
sem ákærði þvættaði með þessum
hætti, á bilinu 49 til 57 milljónir
króna,“ segir jafnframt í ákærunni.
Í ákærunni segir að við rannsókn
málsins hafi Júlíus Vífill viðurkennt
að fjármagnið væri tekjur sem hann
hefði ekki gefið upp til skatts, og því
ekki greitt af þeim útsvar eða tekju-
skatt. Þar segir að Júlíus neiti þó að
gera nánari grein fyrir því hvenær
teknanna var aflað og því sé ekki
hægt að finna út nákvæman ávinning
hans.
Ákærður fyrir
peningaþvætti
Hefur viðurkennt skattalagabrot
Morgunblaðið/RAX
Peningaþvætti Júlíus Vífill
Ingvarsson hefur verið ákærður.