Morgunblaðið - 28.08.2018, Side 18

Morgunblaðið - 28.08.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sigríður Á.Andersendómsmála- ráðherra sagði í viðtali við mbl.is að stöðugildum lögreglumanna á landinu fjölgaði á næsta ári um 45 til 50 og fjárframlög til löggæslu myndu aukast um 1,5 millj- arða króna á næsta ári. Morgunblaðið hefur ítrekað lagt áherslu á að löggæslan í landinu verði styrkt. Að henni var mjög þrengt af ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur og hefur dregist úr hömlu að þeirri atlögu sé mætt. Því hljóta menn að fagna því, ef rétt reynist, að hugar- farsbreyting hafi orðið. En að mörgu er að hyggja. Íbúum landsins hefur fjölg- að ört og þjóðin er ekki einsleit sem áður. Enn fremur hafa viðfangsefni lögreglunnar aukist og hættustig ólíkrar gerðar einnig. Hugsunarleysi og tóm- læti í leiðsögn landsins síð- ustu árin er meginorsök þess. Þá hefur það aukið vandann að ríkt hefur óyfir- lýst bann við umræðu um þá þróun sem orðið hefur í landinu og ýtt var undir og afleiðingar hennar, bæði hugsanlegar og þær sem þegar eru komnar fram, því allir stjórnmálaflokkar landsins hafa beygt sig undir pólitískan rétttrúnað. Ýmsir, og þar með úr ranni lögreglunnar, hafa sett spurningar við framan- greindar fréttir og halda því fram að tölurnar og einkum þó framsetning þeirra segi ekki alla sög- una. Nefna þeir mikinn samdrátt í fjölda starfandi lögreglumanna sem vanti enn mikið upp á að bætt hafi verið úr. Er þýðingarmikið að strax sé farið sameiginlega yfir málin svo ekki þurfi að deila um það hverjar stað- reyndirnar séu. Skýrsla ríkislögreglu- stjóra frá síðasta ári um skipulagða glæpastarfsemi í landinu er mjög athygl- isverð. Þar segir í loka- orðum: „Samfélagsbreytingar síðustu áratuga eru víð- tækar og fela í sér að störf lögreglu eru um flest erfiðari og margslungnar en áður var. Þar veldur alþjóða- væðing miklu. Greiningardeild ríkislögreglu- stjóra hefur leitast við að bregða ljósi á þessa þróun og varað við auknum um- svifum skipulagðra glæpa- hópa, þ. á m. alþjóðlegri glæpastarfsemi, mansali, vændi o.fl. Deildin telur engin teikn á lofti um að breytinga til hins betra sé að vænta í þessu efni. Þvert á móti er niðurstaða deild- arinnar sú að skipulagðri glæpastarfsemi vaxi ásmeg- in. Við greiningu á mann- aflaþörf lögreglu verður að líta til lágmarks þjónustu- og öryggisstigs. Horfa verður til þess hlutverks lögreglunnar að tryggja ör- yggi almennings og ríkis- ins. Í því efni verður að byggja á gildandi áhættu- mati hvers tíma og þróun í nágrannaríkjum sem eru líkust okkar samfélagi. Þró- un skipulagðrar glæpa- starfsemi á hinum Norður- löndunum hefur að einhverju leyti verið rakin í þessari skýrslu. Stjórnvöld á Norðurlöndum hafi á þessu ári beint sjónum sín- um að hinu mikla umfangi og neikvæðu félagslegu áhrifum sem skipulögð glæpastarfsemi hefur haft í norrænum samfélögum og í kjölfarið hafa verið teknar ákvarðanir um að efla lög- reglu til muna svo hún fái spornað gegn þessari vá. Lögreglan er ein af grunnstoðum lýðræðis- skipulagsins og verður að búa yfir þeim styrk sem nauðsynlegur er til að hún fái sinnt því hlutverki. Veikburða lögregla veldur áhættu hvað öryggi ríkisins varðar. Brýnt er að styrkja lögregluna þannig að hún sé þess megnug að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda grundvallarhags- muni ríkisins.“ Hér eru mikilvæg for- gangsefni ríkisins reifuð. Þau getur enginn ábyrgur stjórnmálaflokkur leyft sér að vanrækja, enda verður því ekki trúað að svo mjög hafi menn villst af leið. Vegna vanrækslu í áratug er óhjá- kvæmilegt að gera stórátak í öryggis- og löggæslumálum} Öryggismál fólksins verður að hafa í öndvegi S tundum er talað um að stjórn- málaflokkar séu í tilvistarkreppu, en það á ekki við um núverandi stjórn- arflokka. Þvert á móti er megin- markmið þeirra einmitt þetta: Að vera til. Lítið fer fyrir eiginlegum stefnumálum sem er auðvitað kostur fyrir slíka stjórn. Sá sem hefur enga stefnu getur farið hvert sem er. Væntingar til ríkisstjórnarinnar voru aldrei miklar og hún er fyrst og fremst mynduð um að gera „það sem allir eru sammála um“ og vernda sérhagsmuni. Samt var forvitnilegt þegar for- sætisráðherra skrifaði alllanga grein í Frétta- blaðið fyrir nokkrum dögum. Þó að þar væri auð- vitað eðlilegt sjálfshól stjórnmálamanns kom meginstefna ríkisstjórnarinnar glöggt í ljós. Strax í upphafi stjórnarsamstarfsins gerðu flokkarnir sig seka um alvarlegan fingurbrjót. Í stjórnarsáttmála er talað um aðgerðir í tengslum við vænt- anlega kjarasamninga. Allir sem til samningatækni þekkja vita að svona yfirlýsingar eru lítils metnar. Verkalýðsfor- ingjar eru líkir stjórnmálamönnum að því leyti að þeir vilja eigna sér sigrana. Réttir sem koma fullmatreiddir af borði stjórnmálamanna bragðast ekki eins vel og þeir sem allir elda saman. Þær bætur sem búið er að lofa verða hinn nýi grunnur sem bæta þarf ofan á. Aftur gerði ríkisstjórnin sig seka um dómgreindarleysi þegar hún auglýsti að forystumenn hennar hefðu átt fund með forystumönnum flugfélaganna. Forsætisráðherra gaf í kjölfarið út yfirlýsingu sem ekki var hægt að misskilja: „Það er ekki ríkisábyrgð á flugfélögum hér á landi, svo að það sé sagt.“ Það sem þjóðin heyrði var: „Nú er íslenskt flugfélag á leiðinni á hausinn“, þó að það væri ekki sagt berum orðum. Öllum geta orðið á klaufaleg ummæli í óund- irbúnum viðtölum. Hið skrifaða orð vegur auð- vitað þyngra, því að þá gefst tími til yfirlestrar og íhugunar. Því var fróðlegt að lesa grein for- sætisráðherrans. Skynsamleg ákvarðanataka er með þessu móti: Vandinn er greindur, fundið hvað er að, bent á lausnir og valin sú leið sem þykir best. Málflutningur VG í stjórnarandstöðu var aftur á móti yfirleitt á þessa leið: Hér er allt ómögulegt og það þarf að eyða meiri peningum. Sú stefna er óbreytt. Í grein forsætisráðherra kom fram að ákveðið hefði verið „að auka framlög til heil- brigðismála“, setja „innspýtingu í samgöngu- málin“ og „aukin framlög til menntunar“. Það segir sína sögu að stefnan hefur ekkert breyst þó að flokkurinn sé kominn í ríkisstjórn með sjálfstæðismönnum. Nú er þar enginn Pétur Blöndal og enginn Vilhjálmur Bjarnason. Vissulega er gaman að geta tekið undir með skáldinu: „Í dag er ég ríkur – í dag vil ég gefa. Það er ókeypis allt “. Sér- staklega er vinstri stjórnum ljúft að gefa fé almennings. Nýja peningastefnan blasir við: Eyðum sem allra mestu. Í einhvern fjárann. Benedikt Jóhannesson Pistill Ný peningastefna: Eyðum peningunum! Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Því er ætlað bæta og styrkja þá ferla sem fyrir hendi eru í löndunum og hafa aðlögun á öllum sviðum sam- félagsins að markmiði. Þá er hug- myndin að dýpka og mynda sam- legðaráhrif í tengslum við annað alþjóðlegt samstarf og ferla sem hafa aðlögun að leiðarljósi. Enn- fremur að skapa forsendur fyrir miðlun reynslu, viðhaldi sérhæfðrar þekkingar og þróun aðferða til að aðlaga fólk með fötlun á ýmsum sviðum stefnumótunar og í tilteknu samhengi. Loks er markmiðið að samþætta með afgerandi hætti sjón- armið um jafnrétti milli karla og kvenna, stúlkna og drengja, réttindi barna og ungmenna og sjálfbæra þróun í starfsemi sinni. Umbætur á Grænlandi Fram kemur í umfjöllun um málið á norden.org að á Grænlandi þar sem fötlunarráð Norrænu ráð- herranefndarinnar kynnti aðgerða- áætlunina á dögunum, hefur rík- isstjórnin bætt aðstæður fólks með fötlun. Til dæmis hefur verið opnuð ný miðstöð fyrir fólk með fötlun sem þjónar öllu landinu. Þá hefur græn- lenska ríkisstjórnin skipað tals- mann, (Tilioq) í málaflokknum. Það er Christina Johnsen sem gegnir embættinu. Norræn áætlun vegna fatlaðs fólks „Norrænt samstarf er mjög mik- ilvægt fyrir Öryrkjabandalagið,“ segir formaður þess, Þuríður Harpa Sigurðardóttir. „Bæði fáum við frá fyrstu hendi upplýsingar um ýmis mál sem eru í gangi hverju sinni á hinum Norðurlöndunum og getum miðlað því hvernig mál ganga hér á Íslandi. Markmiðið er að verja rétt- indi fatlaðs fólks og það með hvaða hætti löndin vinna að mannrétt- indum er lærdómsríkt fyrir okkur.“ Hún segir að nú, þegar verið sé að leiða samning Sameinuðu þjóð- anna um réttindi fatlaðs fólks í lög hér á landi, sé enn mikilvægara fyr- ir ÖBÍ að hafa góða tengingu við Norðurlandaþjóðirnar. Þau þrjú svið sem Ole Balke tali um; mannrétt- indi, sjálfbæra þróun og frjálsa för séu öll mjög mikilvæg réttindamál fyrir fatlað fólk. Sem dæmi megi nefna að t.d. námsmenn sem búið hafa í öðru norrænu landi og veikj- ast eða fatlast geti lent í búsetu- skerðingu, þannig að réttindi þeirra hvað varðar framfærslu geti skerst mikið. Þessu vilji ÖBÍ breyta og sé norrænt samstarf mikilvægt í því sambandi. Mikilvægt fyrir ÖBÍ NORRÆNT SAMSTARF Ljósmynd/Audi Nissen / Norden.org Fötlun Á vegum norrænu ráðherranefndarinnar hefur verið samin að- gerðaáætlun til fimm ára til að bæta stöðu fatlaðs fólks. SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Ný aðgerðaáætlun vegnafólks með fötlun var ný-verið kynnt á fundi fötl-unarnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar í Sisimiut á Grænlandi. Tilgangurinn með að- gerðaáætluninni er meðal annars að ryðja úr vegi hindrunum fyrir fólk með fötlun og um leið að auka að- gengi annarra líka. „Við viljum ryðja úr vegi þeim hindrunum sem enn eru fyrir hendi hjá fólki með fötlun,“ er haft eftir Ola Balke frá Þátttökustofnuninni í Svíþjóð á vefnum norden.org. Balke er formaður fötlunarnefndar Nor- rænu ráðherranefndarinnar í for- mennskutíð Svíþjóðar 2018. Í að- gerðaáætluninni, sem nær til áranna 2018 til 2022, eru þrjú áherslusvið sem móta norrænt samstarf milli regnhlífarsamtaka á þessu sviði, fulltrúa ríkisstjórna og annarra sér- fræðinga. Þrjú áherslusvið Áherslusviðin eru mannrétt- indi, sjálfbær þróun og frjáls för. Hið fyrsta felst í að styðja og styrkja vinnuna við að innleiða og fylgja eft- ir samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í norrænu ríkj- unum. Með sjálfbærri þróun er ætl- unin að nota alþjóðleg módel til þess að styrkja aðlögun, auka jafnrétti og vinna gegn mismunun fólks með fötlun í öllum hlutum norræns sam- félags með því að samþætta sjón- armið sem snúa að fötlun í vinnunni að sjálfbærri þróun. Loks felst í frjálsri för að útrýma stjórnsýslu- hindrunum sem varða sérstaklega fólk með fötlun. Balke segir að tilgangur að- gerðaáætlunarinnar sé að stuðla að aðlögun fólks með fötlun með auk- inni norrænni þekkingarmiðlun og nánara samstarfi um stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks. „Aðgerða- áætlunin er miðlæg samstarfs- áætlun sem mun verða ein- staklingum til gagns, þjóðunum og Norðurlöndunum sem svæði,“ segir hann. Ætlað að bæta líf fatlaðra Norrænu samstarfi á þessu sviði er meðal annars ætlað að: vera þjóðunum til gagns og bæta líf nor- rænna borgara sem búa við fötlun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.