Morgunblaðið - 28.08.2018, Side 30
eldu á milli fimm girnilegra tegunda
f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru
ægilegir, ljúffengir og fljótlegir.
ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS
V
a
þ
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þjóðleikhúsið iðar af lífi þegar
blaðamann ber að garði. Hljóðfæra-
leikarar eru að bera inn hljóðfæri,
leikarar að æfa á sviði, saumavélar
suða í búningadeildinni og hamars-
högg frá leikmyndasmiðum berg-
mála um gangana. Starfsfólk húss-
ins er komið úr sumarfríi og nýtt
leikár að hefjast en langur listinn yf-
ir verkefnin framundan sýnir að á
þriðja tug sýninga verða færðar á
svið Þjóðleikhússins í vetur. Ari
Matthíasson þjóðleikhússtjóri segir
að alltaf sé gaman þegar undirbún-
ingur fyrir leikárið er kominn á fullt.
„Þegar búið er að hnoða saman
verkefnum fyrir nýtt leikár þá er
vissulega alltaf í manni einhver efi,
um hvernig takist til. Svo mæta allir
þessir frábæru listamenn hingað í
ágúst, húsið fyllist af orku og gleði
og ég fyllist vissu um að þetta verði
frábært. Ef ég þarf að takast á við
eitthvert pex og argaþras hér í vél-
arrúminu,“ segir hann um skrifstofu
sína, „þá fer ég bara og fylgist með
æfingu um stund og allt verður gott
að nýju.“
Þegar rætt er um nýtt leikár og
öll þau spennandi og ólíku verk sem
valið hefur verið að sýna, þá bendir
Ari fyrst á að þegar þjóðleikhús eigi
í hlut þá verði að hafa margt í huga.
Menningarstefna sett af mennta- og
menningarmálaráðuneytinu setur
starfseminni ramma, rétt eins og
fjárlög íslenska ríkisins. Meðal
þeirra skyldna sem leikhúsinu ber
að þjóna er að sinna börnum – um
þriðjungur uppfærslnanna er sér-
staklega ætlaður þeim – og þá er
mikilvægt að sinna íslenskri leik-
ritun. Reynt er að hafa allt að helm-
ing verkanna íslensk. „Þá þurfum
við eðlilega að gæta að jöfnum tæki-
færum fyrir karla og konur í hópi
listrænna stjórnenda og að samsetn-
ing leikársins höfði til hinna ýmsu og
ólíku hópa áhorfenda. Allir þessir
kraftar eru að verki þegar leikárið
er mótað. Við þurfum líka bæði að
sýna ný verk og klassísk, erlend sem
innlend. Við reynum að halda þess-
um boltum á lofti og gæta að jafn-
væginu, um leið og við erum í virku
samtali við samfélagið,“ segir Ari.
Jafna kynjahalla
Að jafnaði vinna margir höfundar
að skrifum fyrir Þjóðleikhúsið. Ari
segir að höfundar séu ráðnir til að
vinna að eigin leikritum eða leik-
gerðum eftir eigin sögum eða ann-
arra. „Hugmyndir að leikgerðum
geta kviknað með ýmsum hætti, höf-
undar eða leikstjórar koma til okkar
með verk sem þeir brenna fyrir að
takast á við, eða þá að leikhúsið hef-
ur frumkvæði að því að leikgerð er
unnin, til dæmis með það fyrir aug-
um að takast á við ákveðin brýn um-
fjöllunarefni, eða einfaldlega búa til
spennandi leiksýningu. Okkur finnst
mikilvægt að leitast við að jafna
kynjahalla í leikbókmenntum, og á
síðasta leikári sviðsettum við til
dæmis leikgerð sem var byggð á
Svartalogni eftir Kristínu Marju
Baldursdóttur, þar sem er mikið af
bitastæðum hlutverkum fyrir konur,
og fjallað er á áhugaverðan hátt um
veruleika kvenna.“
Ari talar áfram um samstarf húss-
ins við leikskáldin og segir eðlilegt
að stofnun eins og Þjóðleikhúsið taki
ákveðna áhættu þegar gerðir séu
samningar við höfunda. Oft gengur
það vel upp og verður að leikverki
sem endar á fjölunum. „Það líða
gjarnan 18 til 20 mánuðir frá því að
ég sest niður með höfundi að ræða
hugmynd og við skrifum undir
áfangasamning um tiltekið leikverk,
þangað til tjaldið er dregið frá svið-
inu á frumsýningarkvöldi. Svo getur
það líka gerst að ekki næst að ljúka
verki fyrir tilætlað leikár. En við
höfum skyldur gagnvart íslenskri
leikritun og erum sífellt með það í
huga,“ segir Ari en auk nýrra verka
í samstarfsverkefnum með leik-
hópum sem koma inn í húsið, þá
verða tvö ný leikverk frumsýnd,
Súper – þar sem kjöt snýst um fólk,
eftir Jón Gnarr, og Þitt eigið leikrit
– Goðsaga eftir Ævar Þór Bene-
diktsson.
Hátt í 50 sýningar úti á landi
Auk Svartalogns, sem verður tek-
ið aftur upp í seinni hluta septem-
ber, er haldið áfram að sýna sirkus-
söngleikinn Slá í gegn, með tónlist
eftir Stuðmenn, og eru sýningar
hafnar. Þá hefjast í byrjun sept-
ember sýningar á Sögustund eftir
Bernd Ogrodnik og í október sýnir
hann á Brúðuloftinu Klókur ertu,
Einar Áskell, en hún er byggð á
bókum eftir Gunillu Bergström.
Þjóðleikhúsið býður börnum í elstu
deildum leikskóla í heimsókn með
kennurum að sjá Sögustund til að
kynnast töfraheimi leikhússins.
Bernd sýnir börnunum sjö leikþætti
með handunnum trébrúðum sínum
og heillandi töfrabrögðum.
„Við sýnum Sögustund líka hátt í
fimmtíu sinnum á landsbyggðinni í
vetur og reynum þannig að bjóða
öllum börnum á þeim aldri að sjá
sýninguna“ segir Ari. „En við ætl-
um líka að fara með hana á elliheim-
ili og sýna hana elstu borgurunum.
Undanfarin ár hefur Þjóðleik-
húsið verið duglegt að bjóða börn-
um í leikhús og við höfum líka lagt
aukna áherslu á að fara með sýn-
ingar út á land enda höfum við
skyldum að gegna gagnvart lands-
mönnum. Það er mikilvægt að leik-
húsið sé aðgengilegt, óháð búsetu
og efnahag. Við Íslendingar eigum
Þjóðleikhúsið saman og leggjum því
til fjármuni, því verður stofnunin að
mæta landsmönnum eins og hægt er
– og ekki síst börnum.
Í fyrra frumsýndum við barna-
leikrit á Ísafirði og í Vestmanna-
eyjum árið áður. Þótt við séum með
þetta margar sýningar fyrir börn á
landsbyggðinni í ár þá finnst mér við
líka þurfa að ferðast um með verk
fyrir fullorðna og munum reyna að
gera það,“ segir hann.
Öllu tjaldað til í Ronju
Fyrsta frumsýningin á stóra svið-
inu í haust er Ronja ræningjadóttir
eftir Astrid Lindgren, við tónlist eft-
ir Sebastian og í leikstjórn Selmu
Björnsdóttur. „Það verður risastór
sýning, 30 manns á sviðinu og öllu
tjaldað til!“ segir Ari. „Selma er frá-
bær leikstjóri og hefur sett upp
margar af okkar stærstu sýningum
undanfarin ár. Við erum með stór-
stjörnu í aðalhlutverkinu, Sölku Sól,
sem er söngkona af hæsta kaliberi
og snjöll leikkona. Á móti henni leik-
ur annar glæsilegur leikari, Sig-
urður Þór Óskarsson. Þetta er falleg
saga sem margir þekkja og fjallar
meðal annars um það hvernig vin-
áttan dregur úr tortryggni milli
stríðandi fylkinga. Þetta er okkar
stærsta sýning í vetur.“
Þetta verður í þriðja skipti sem
Ronja ræningjadóttir er færð á svið
hér á landi en danska söngvaskáldið
vinsæla, Sebastian, sem ekki hefur
áður komið til landsins verður við-
staddur frumsýninguna.
Undir lok september verður Fly
Me to the Moon eftir Marie Jones
frumsýnt í Kassanum. Höfundurinn
leikstýrir sjálfur og leikarar eru þær
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Anna
Svava Knútsdóttir. Þetta er hjart-
næmt verk um tvær konur sem hafa
alltaf þurft að hafa fyrir lífinu en
standa skyndilega frammi fyrir
þeim möguleika að eignast peninga
með auðveldum hætti.
„Jones skrifaði líka Með fulla vasa
af grjóti. Hún kom hingað þegar við
sýndum verkið fyrir ári síðan, þegar
Stefán Karl vinur okkar reis af
sjúkrabeði til að leika tíu sýningar
með Hilmi Snæ,“ segir Ari. „Við vor-
um búin að vera með þetta verk hér
hjá okkur til skoðunar, Ólafía Hrönn
og Steinunn Ólína ætluðu að leika,
og Jones leist vel á hugmyndina að
leikstýra því sjálf hér. Við hófum æf-
ingar í vor en vegna veikinda Stef-
áns Karls steig Steinunn Ólína til
hliðar og við fengum Önnu Svövu í
leikinn. Hún er fyndin og skemmti-
leg og það er mikill fengur að fá
hana til að leika hjá okkur.“
Sigurður leikur Chaplin
Seint í október verður nýtt og
kröftugt leikrit eftir Nina Raine,
Samþykki (Consent) frumsýnt á
stóra sviðinu í leikstjórn Kristínar
Jóhannesdóttur. Verkið var frum-
sýnt fyrir rúmu ári í National The-
atre í London, þar sem það sló í
gegn, og var í kjölfarið fært á West
End. Ari segir þetta frábært leikrit
um flókin samskipti og um réttar-
kerfið þar sem spurt er hver sé
munurinn á hefndarþorsta og leit að
réttlæti og hvort allir séu jafnir fyrir
lögunum.
„Í leikhópnum eru margir af okk-
ar snjöllustu leikurum í þessum ald-
urshópi og sá mikli snillingur Krist-
ín leikstýrir þessari sýningu en
verkið þykir eitt það besta sem er á
fjölunum í London,“ segir Ari.
Grímuverðlaunasýningin Leitin
að jólunum eftir Þorvald Þor-
steinsson, með tónlist eftir Árna Eg-
ilsson, verður tekin upp að nýju á
aðventunni en hún hefur verið sýnd
við miklar vinsældir á þeim tíma árs.
Annan í jólum verður Einræðis-
herrann eftir Charlie Chaplin síðan
frumsýndur, í leikgerð hins danska
Nikolaj Cederholm sem jafnframt
leikstýrir. Leikgerð hans sló í gegn
hjá Nörrebro-leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn og var ausin lofi. Sig-
urður Sigurjónsson leikur flæking-
inn sem verður einræðisherra fyrir
röð tilviljana og er þetta heillandi og
frumleg sýning um valdasýki og
möguleika mennsku í trylltri veröld
og baráttuna fyrir friði.
Ari segir að Cederholm hafi verið
„Ég fyllist vissu um að þetta
Á þriðja tug sýninga færðar á svið Þjóðleikhússins í vetur
Ný leikrit eftir Jón Gnarr og Ævar Þór Benediktsson
Margir kraftar eru að verki þegar nýtt leikár er mótað