Morgunblaðið - 28.08.2018, Page 36

Morgunblaðið - 28.08.2018, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 240. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Þórunn mætti með kærasta í afmæli … 2. Jólin eru komin í verslun Costco 3. 15 milljónir áætlaðar í árstekjur 4. Milla Ósk selur innbúið »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Adam hreppti aðalverðlaunin  Kvikmyndin Adam eftir leikstjór- ann og handritshöfundinn Maríu Sól- rúnu hreppti fyrstu verðlaun í flokki leikinna mynda á kvikmyndahátíðinni í Kitzbühel í Austurríki sem lauk um helgina. Magnús Maríuson leikur að- alhlutverkið í myndinni, sem var kvik- mynduð í Þýskalandi, og Haraldur Þrastarson samdi tónlistina ásamt Liinu Magneu Maríudóttur.  Senegalski tón- listarmaðurinn Youssou N’Dour, einn þekktasti og vinsælasti tónlist- armaður Afríku, kemur fram ásamt hljómsveit sinni á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Hann hefur einu sinni áður komið fram hér á landi, árið 2000, við mikið lof gagnrýnenda. Youssou N’Dour í Hörpu í kvöld  Kvartett munnhörpuleikarans snjalla Þorleifs Gauks Davíðssonar kemur fram á KEX Hos- teli í kvöld og hefur leik kl. 21. Með hon- um spila Agnar Már Magnússon, Guð- mundur Péturs- son og Aleksi Hei- nola. Síðustu ár hefur Þorleifur Gaukur leikið með Kaleo samhliða námi í Bandaríkjunum. Kvartett Þorleifs Gauks leikur á KEX Á miðvikudag Norðvestan 8-13 m/s með súld og rigningu nyrðra og eystra, en bjartviðri syðra. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast suðaustan- lands. Víða hægur vindur um kvöldið, léttskýjað og svalt í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-13 m/s, en mun hægari breytileg átt sunnan- og austanlands. Rigning um landið norðanvert, en víða skúrir í öðrum landshlutum. Hiti 7 til 13 stig. VEÐUR Fylkir vann 3:1-sigur á Grindavík í 18. umferð Pepsi-deildar karla í fót- bolta í gærkvöldi og fór í leiðinni upp fyrir Fjölni og úr fallsæti. Fram undan er afar spennandi fallbarátta í deildinni, en Grindvíkingar eru búnir að heltast úr lest- inni í baráttu um Evrópu- sæti. Bakvörðurinn Daði Ólafsson gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk fyrir Fylki. »3 Góður sigur kom Fylki úr fallsæti Martin Hermannsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, er afskaplega ánægður með allan aðbúnað hjá þýska stórliðinu Alba Berlín, en rætt er við Martin í íþróttablaðinu í dag. Martin samdi við félagið í sumar og hóf þar æfingar fyrr í þessum mán- uði. Berlínarliðið er eitt þeirra sem þykja líkleg til að berjast um sigurinn í Þýskalandi næsta vor. »2 Metnaðurinn mikill hjá stórliðinu Alba Berlín Foreldrar tyrknesku landsliðskon- unnar Fatma Kara voru ekki hrifnir af því að hún byrjaði að æfa fótbolta. Þau voru hins vegar fljót að skipta um skoðun þegar Kara var byrjuð að spila enda nýtur hún sín vel með bolt- ann á tánum. Eftir að hafa leikið í átta ár í tyrknesku úrvalsdeildinni hefur Kara leikið lykilhlutverk hjá HK/Víkingi í sumar. »4 Hlýddi ekki foreldrum og spilar nú á Íslandi ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ferðin gekk vonum framar og allar áætlanir stóðust,“ segir Hermann Árnason, hrossabóndi á Hvolsvelli, um mikla reiðferð sem hann fór í sumar. Hermann reið á hestum á ská landshorna á milli og síðan eftir landinu endilöngu. Þar með lauk hann því verkefni að ríða um flest héröð landsins og teikna stjörnu með ferðum sínum. „Ég lagði af stað héðan af Hvols- velli 27. júní og lauk þessu 19. ágúst,“ segir Hermann. Fyrsti legg- ur ferðarinnar var að Reykjanes- vita. Þaðan var riðið á ská yfir land- ið í norðaustur að Fonti á Langa- nesi. Því næst var riðið að Dala- tanga áður en riðið var þvert yfir landið í vesturátt. Ferðinni lauk á vestasta tanga Snæfellsness, Önd- verðarnesi, en reyndar reið Her- mann svo að endingu heim á Hvols- völl. Alls tók ferðin 58 daga. Hvernig tilfinning er að þessu sé lokið? „Mér er efst í huga óendanlegt þakklæti. Að mega og geta þetta. Og til þessara skepna sem báru mann þessa leið. Þær eru ekki orðnar þreyttari á manni en það að þær koma enn hlaupandi þegar ég kem í girðinguna til þeirra.“ Hvernig ertu í skrokknum eftir allan þennan tíma? „Ég er í raun endurnærður, hef aldrei verið betri. Það er eins og það losni um allt, ég er eins og endur- fæddur. Maður upplifir sig þrítugan aftur!“ Hermann hafði 42 hross með í för og jafnan voru 7-8 aðrir reiðmenn í föruneyti hans. Hann segir að ferðin hafi verið þrælskipulögð en það hafi samt komið sér á óvart að ekkert óvænt hafi komið upp á, ekkert slys eða óhapp. „Það er talsvert afrek í svona löngum túr. Ég þakka það forsjón- inni. Maður verður ósjálfrátt for- lagatrúar þegar maður er mikið með hestunum sínum og landinu eins og ég hef gert undanfarin ár.“ Nýtur þess að vera í afaleik Hermann segir að eftir að hann lauk þessum áfanga hafi hann náð þeim markmiðum sem hann setti sér fyrir tæpum áratug. Hann geti því markvisst farið að fækka hrossum sínum og fara sér hægar. „Ég skulda fjölskyld- unni orðið þó nokkuð eftir margra ára út- hald. Nú fer ég að ferðast á rólegri máta og nýt þess að vera meira í afaleik.“ Endurfæddur eftir 58 daga reið  Hermann Árna- son lauk stjörnureið sinni á dögunum Ljósmynd/Ríkarður Ríkarðsson Fagnað Það var mikil gleðistund þegar Hermann lauk reiðinni á Öndverðarnesi. Hér eru hann og Sigga kona hans með sonum sínum og barnabörnum. Frá vinstri eru Heiða, Sigga, Arnar Freyr, Askur, Steinar, Hermann og Ástþór. Árið 2009 sundreið Hermann öll vötn frá Höfn í Hornafirði að Selfossi ásamt fleirum. Í þeirri ferð fékk hann þá hugdettu að ríða landið „í stjörnu“ eins og hann orðar það. „Ég byrjaði á stjörnunni 2016 og reið þá frá Vík í Mýrdal og norður að Hrauni á Skaga. Þaðan reið ég vestur í Bolungarvík og Skála- vík. Svo reið ég Vestfjarðakjálkann og endaði austur á Ing- ólfshöfða. Þar með tók ég helminginn af stjörnunni,“ sagði Hermann í viðtali við Morgunblaðið fyrr í sumar. Nú hefur hann fullgert myndina og teiknað enn stærri stjörnu á Íslandskortið. Stjarnan fullgerð FÉKK HUGMYNDINA FYRIR NÍU ÁRUM Lokahnykkur Hermann og Sigga á Öndverðar- nesi. Hesturinn sem hún situr er Húmi, sem var sundhesturinn í kvikmyndinni Hross í oss.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.