Þróttur - 22.04.1920, Blaðsíða 14
50
Þróttur
það, merki, er sýnir sérþekkingu
hans. —
Nú er spurning um það, hvort þessi
heyfing muni geta haft nokkra þýðingu
fyrir hina íslenzku þjóð, hvort ástæða
sé til þess að æskja þess, að hinir ungu
og uppvaxandi íslendingar alist upp
sem skátar. Eg er í engum vafa um
það, að skátahreyfingin á engu síður
erindi til íslenzkra drengja, en æsku-
lýðsins í öðrum löndum. Það verður
ekki deilt um það, að margt af þvi,
sem þessi hreyfing vinnur að, er ein-
mitt það, sem vorra tíma drengir hafa
einna mesta þörf fyrir. —
Ferðir skátanna um fjöll og firnindi,
glæða ættjarðarástina; kröfurnar, sem
gerðar eru til dugnaðar í ýmsum grein-
um, auka sjálfstraust og herða viljann.
Heraginn, sem skátarnir verða að beygja
sig undir, kennir þeim stundvísi og
hlýðni, og venur þá jafnframt á að
vinna — ekki fyrir sjálfa sig — heldur
fyrir heildina, og setja hag hennar ofar
sínum eigin. Þeir drengir, sem fara að
Iifa sem skátar, öðlast auk þess fljótt
fullan skilning á því, hvers virði hraust-
ur líkami er, og læra að herða hann
og styrkja. —
Skólafyrirkomulag það, sem við eig-
um við að búa, hefir í för með sér
kyrsetur og inniverur svo miklar, að
þau börn, sem ekki eru því hraustari,
þola þær ekki og veiklast smám sam-
an. Það er enginn smáræðis-hópur
barna, sem á ári hverju verður t. d.
að hætta námi í Barnaskóla Reykjavík-
ur, vegna bióðskorts eða annarar vesald-
ar, sem oft og einatt er afleiðing hins
heimskulega skólafyrirkomulags. Af þess-
ari ástæðu einni út af fyrir sig, finst
mér sá félagsskapur, sem reynir að
bæta úr þessu, með því að benda þeim
ungu til nátturunnar, og kenna þeim
að nota hreina loftið, vatnið og sól-
skinið ásamt íþróttum, til þess að
herða sig og styrkja, vera fyllilega tíma-
bær, og leyfi mér að mæla hið bezta
með honum. —
Þeim til leiðbeiningar er kynnu að
vilja stofna skátaflokk, skal þess getið,
að í. S. í. hefir gefið út tvær bækur
um þelta efni: Heragabálk skáta og
Handbók skátaforingja. Ekki ræð eg
þeim, sem ekkert þekkja til skátahreyf-
ingarinnar, að byrja með því að lesa
þessar bækur; þær eru báðar skrifaðar
fyrir þá, sem þekkingu hafa á iþrótt-
inni. Þeir, sem vilja kynna sér skáta-
hreyfinguna, verða því að lesa útlendar
skátabækur, og má þá sérstaklega mæla
með bók stofnandans »Scouting for
boys« og norsku skátabókinni »Haand-
bok for norske Spejder gutter«. Flestir
bóksalar munu geta útvegað þessar
bækur, og einnig má skrifa Væringja-
sveit K. F. U. M. í Reykjavík, sem
fljótlega getur útvegað útlendar skáta-
bækur, og auk þess mun fúslega gefa
þeim, sem þess óskar, upplýsingar um
skátahreyfinguna.
Á. G.
Athugið.
1) Þeir, sem ætla sér að taka þátt í
íþróttamótinu hér í Reykjavík, 17. júní
í sumar, verða að vera löglegir meðlimir
einhvers félags innan íþróttasambands
íslands (í. S. í.).
2) Enginn sem er utan félaga getur
því tekið þátt í mótinu, og
3) Enginn meðlimur félags utan í. S,
í., (þótt hann til bráðabirgða sé með-
limur annars félags innan í. S. í.), nema
hann segji sig úr því, og gangi í félag
innan í. S. í., eða fái sitt eigið félag til
að ganga í í. S. t.
31. marz 1920. — Stjórn í. S. í.