Þróttur - 01.04.1946, Qupperneq 8
Kjartan aftur þrefaldur nicistari. Hann vann 400
m. hlaup á nýju íslandsmcti, 50,7 sek. (var áður
51,2 sek.). 800 m. hlaup vann hann á 1:59,2 mín.
og finnntarþraut með 2721 stigi. Afrek hans í ein-
stökum greinum þrautarinnar voru þessi: Langstökk
5,65 m., spjótkast 39,96 m., 200 m. hlaup 23,5 sek.,
kringlukast 31,12 m. og 1500 m. hlaup 4:25,2 mín.
— A innanfélagsmóti hjá ÍR setti liann nýtt íslands-
met í 300 m. hlaupi, hljóp á 36,9 sek. (Fyrra metið,
37,1 sek., átti hann sjálfur). Þá setti hann tvívegis
met í 1000 m. hlaupi, fyrst á 2:38,4 mín. (Gamla
metið, 2:39,0 nn'n., átti Gcir Gígja, og var það
orðið 15 ára gamalt.) og síðan á 2:55,2 mín. Kjartan
myndi sóma sér vel sem fulltrúi landsins í milli-
vegalengdum í milliríkjakeppni.
MAGNÚS BALDVINSSON
varð 2. í langstökki á 17. júní-mótinu, stökk 6,51
m. Voru öll stökk hans yfir 6,30 og það lengsta
6,80, en því miður ógilt. — Á Reykjavíkurmeistara-
mótinu varð hann 3. í langstökki, stökk 6,09 m.
og 3. í 100 m. hlaupi. Hljóp á 12,1 sek. — Á meist-
aramóti íslands varð hann 2. í langstökki, stökk
6,25 m. og 5. í þrístökki. — Á Septembermótinu
varð hann einnig 2. í langstökki, stökk 6,29 m. —
Á skólamótinu keppti hann fyrir Iðnskólann og
varð 1. í langstökki. Stökk þá 6,41 m.
ÓLAFUR GIJÐMUNDSSON
tók tvisvar þátt í kringlukasti síðastliðið sumar og
varð annar í bæði skiptin. Á meistaramóti íslands
kastaði hann 39,67 m. Var það kast hans aðeins
einum sm. styttra en kast 1. manns. Á September-
mótinn kastaði hann 37,37 m.
ÓSKAR JÓNSSON
var mjög sigursæll s.l. sumar og setti eitt íslands-
met. Reyndist hann ósigrandi í 1500, 3000 og 5000
m. hlaupum (Dyrgall ekki reiknaður með). — Á
KR-mótinu vann hann 3000 m. hlaup á 9:18,9 mín.
Er það næstbezti tími, sem íslendingur hefir hlaup-
ið á hérlendis. — Á 17. júní-mótinu varð hann 4. í
800 m. hlaupi á 2:03,0 mín. — Óskar varð tvöfaldur
meistari á Reykjavíkurmeistaramótinu. Hann vann
1500 m. lilaup á 4:14,2 mín. og 5000 m. hlaup á
16:01,2 mín. Er það bezti tími, sem íslendingur
hefir hlaupið á hérlendis. Og í 800 m. hlaupi varð
hann þá 2. á 2:01,6 mín. — Á meistaramóti íslands
varð Óskar einnig tvöfaldur meistari. Vann 1500
m. á 4:16,0 mín. og 5000 m. á 16:47,0 mín. — Á
innanfélagsmóti hjá ÍR setti Óskar nýtt íslands-
met í 1500 m. hlaUpi, hljóp á 4:09,4 rnin. (Gamla
metið, 4:11,0 mín., átti Geir Gígja, KR. Var það
orðið 18 ára gamalt.) Þá hljóp Óskar 1000 m. á
mettímanum, 2:55,2 min. í sömu keppni og Kjartan
setti metið, en var sjónarmun á eftir. 800 m. hljóp
hann á 2:00,4 mín., sem er næstbezti tími, sem
lilaupinn hefir verið á hérlendis.
SIGURÐUR SIGURÐSSON
varð 6. í kúluvarpi á KR-mótinu, kastaði 11,53 m-
— Á 17. júní-mótinu varð hann 4., kastaði 12,56 m.
— Á Reykjavíkurmeistaramótinu var hann 6. í kúlu-
varpi, kastaði 11,60 m. og á meistaramóti íslands
varð liann 7., kastaði 11,72 m.
SIGURGÍSLI SIGURFISSON
varð 2. í 3000 m. hlaupi á KR-mótinu á 9:34,4 ntín.
— Á 17. júní-mótinu varð hann 1. í 5000 m. hlaupi,
hljóp á 17:01,8 mín. — Á Reykjavíkurmeistaramót-
inu varð hann 3. í 5000 m. hlaupi á 16:39,2 mín.
og 4. í 1500 m. hlaupi á 4:30,2 mín. — Á meistara-
móti íslands varð hann 2. í 5000 m. hlaupi á 16:54,6
mín. — Á innanfélagsmóti hjá ÍR hljóp hann 800
m. á 2:08,9 mín. og 1500 m. á 4:29,2 mín.
SVAVAR GESTSSON,
„drengur“, varð 4. í sínum riðli á 17. júní-mótinu
i 100 m. hlaupi á 12,6 sek. — Á drengjamóti Ár-
rnanns varð hann 4. í 400 m. hlaupi á 58,5 sek. og
4. í milliriðli í 80 m. hlaupi á 10,3 sek. — Á Reykja-
víkurmeistaramótinu varð hann 3. í sínum riðli í
100 111. hlaupi á 12,4 sek. — Á drengjameistaramót-
inu varð hann 4. í 400 m. hlaupi á 57,8 sek. og 4.
í 110 m. grindahlaupi á 18,6 sek. — Á innanfélags-
móti hjá ÍR hljóp hann 400 m. grindahlaup á 1:06,5
mín.
4 ÞRÓTTUR