Þróttur - 01.04.1946, Page 13
ÞRÓTTUR
QÍÐAN ÞRÓTTUR hóf göngu sína að nýju
^ hefir hann komið út æði slitrótt og óreglulega.
Hafa legið til þess ýmsar orsakir, sem cigi verður
hirt um að rekja hér. — Þegar blaðið kom fyrst
út, var það eina íþróttablaðið hér á landi og al-
hliða blað um íþróttir. Svo, er það var endurvakið,
var í fyrstunni ætlunin, að það héldi áfram á sömu
braut, en nú hefir verið horfið frá því og verið
ákveðið, að það verði fyrst og fremst félagsblað ÍR,
auk jiess sem íþróttamálefni verða rædd þar al-
mennt, eftir því sem eliii og ástæður þykja til.
Vonast blaðstjórnin til þess, að þessari breytingu
verði vel tekið meðal IR-inga, enda mjög æskilegt,
að íþróttafélögin hafi sín eigin málgögn, ef hægt er
að koma slíku við. En það er ekki hægt nema allir
félagarnir leggist á eitt um útgáfuna og bregðist
vel við, er til þeirra er leitað um aðstoð. Getur slík
blaðaútgáfa haft mikla þýðingu fyrir félagsstarfsem-
ina í heild.
Að lokum heitir blaðið á alla ÍR-inga og aðra
velunnara að styðja það eftir mætti, t. d. með því
að láta því í té upplýsingar um félaga og annað
efni, sem að gagni má koma.
ÍR-félagar erlendis
T^RÓTTUR hefir reynt að aila sér upplýsinga
um ÍR-félaga, sem nú dvelja erlendis, og fara
hér á eftir þær fregnir af þeim, senr blaðið hefir
fengið:
Kristín Árnndóttir stundar nám \ið húsmæðra-
skóla í Stokkhólmi. Elisabet Jólmnnsdóttir stund-
aði einnig nám við sama skóla, en cr nú komin
heim.
Bræðurnir Gylfi og Valur Hinrihssynir, hand-
knattleiks- og frjálsíþróttamenn, fóru í byrjun des-
ember til Stokkhólms til náms við „Stockholms
tekniska institude”.
Bræðurnir Einar og Jóhann Eyfells dvelja í
Ameríku við nám, báðir í Kaliforníu.
Haraldur Árnason og kona hans, Hjördís Jóns-
dóttir, sem bæði hafa verið starfandi ÍR-ingar í
mörg ár, dvelja nú í Ithaca í Bandaríkjunum.
Ólafur Guðmundsson, kringlukastsmethafinn, er
nú við nám í lögregluskóla í Stokkhólmi.
Hörður Björnsson, skíðamaður, dvelur nú í Stokk-
hólrni við nám í „Stockholms tekniska institude".
Þróttur biður iR-inga, sem geta gefið ujjplýsingar
um félaga, sem dvelja erlendis, að hafa samband
við blaðið.
Vignir G. Steindórsson
F. 12. des. 1919
D. 2 6. des. 1945
J VETUR urðu iR-ingar að sjá á bak ein-
um af beztu félögUm sínum, Vigni G. Stein-
dórssyni. Hann lézt á annan jóladag og var
jarðsettur 5. janúar.
Hér verða ekki rituð nein minningarorð
um Vigni, enda óþarfi, þar sem þeir munu
fáir. er fylgzt hafa með starfi ÍR, sem ekki
þekktu hann. En ÞRÓTTUR gctur ekki látið
hjá líða að þakka þessunt fallna félaga fyrir
þau mörgu og heilladrjúgu störf, sem liann
vann í þágu íþróttamálanna. íþróttirnar voru
hans hjartans áhugamál. Hann vildi viðgang
þeirra sem mestan og lét sitt þar alclrei eftir
liggja. Hann var formaður Frjálsíþróttadeikl-
ar ÍR. cr hann lézt. — ÍR-ingar, við heiðrum
minningu hans bezt með því að tileinka okkur
áhuga hans og ást á íþróttunum og halda
merki hins sanna íþróttamanns sem hæst á
lofti.
þrottur 9