Stjarnan - 01.06.1921, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.06.1921, Blaðsíða 6
86 STJARNAN og bygöu hús [þeir lifðu og breyttu eins og enginn Guð væri til] ; en á þeim degi, þegar Lot fór út af Sódóma, rigndi eldi og brennisteini af himni, sem eyðilagöi þá alla. Eins mun tilganga á þeim degi, þegar Mannsins sonur birtist.” (Xúk. 17: 26—30J. Peningaeyðsla og fátcekt. Vér sjáum miljónamæringa byggja hús handa köttum sínum, sem kosta $15.000. Maöur nokkur keypti gimstein handa konu sinni, sem kostaði $500,000, og hélt svo veizlu til þess að konan gæti haft tækifæri til aö sýna gjöf sína. Veizlan kostaði að eins $100,000'. Liljugrösin, sem höfö voru til prýðis á borðunum, kostuðu ekki. nema $8,000. Vér lesum um stúlku, sem ásamt pilti á leið til leik- hússins, fer inn í fatasölubúð á Fifth Ave. í New York, til þess að skoða kven- mannskápu. Hún skoðar margar og að lokum finnur hún eina, sem henni geðj- ast. Hún spyr um verðið. Búðarmaður- inn svarar: $15,250. Varla voru orðin af vörum hans, fyr en pilturinn, sem fylgdi stúlkunni, segir: “Buðu um hana.” Fyrirþá peninga. sem lagðir voru í þessa einu kvenmannskápu, hefði mátt reisa tvö góð nýtízkuhús. Og þó að þetta sé himinhrópandi eyðsla, þá er það ekki mikið í samanburði við það, sem bar við i Los Angelos í California síðastliðinn vetur. Einhver gyðja af þeirri tegund, sem menn dýrka i kvikmynda-sýninga-heim- inum, steig upp í bifreið, er hún hafði pantað frá Norðurálfunni og borgað $12.000 fyrir, því engar af þeim bifreið- um, sem smíðaðar eru í Bandaríkjunum, voru nógu góðar; stúlkan fór ofan í bæ, gekk inn í ihina fínústu fatasölubúð í borginni, sat þar um tíma og horfði á hinar unaðsfögru vaxbrúður, sem þar stóðu klæddar eins og drotningar. Svo fór hún að panta það, sem henni fanst að hún endilega þyrfti með. Þegar reikningurinn kom, sýndi hann að hún var búin að kaupa föt fyrir $193,175, Þar að auki keypti hún ilmbauka fyrir Si,ioo. Og svo fór hún að hugsa um.að hún þyrfti að fá eitthvað til að setja á höfuðið, og til þess að vera ekki alt of eyðslusöm, keypti hún aðeins átján hatta. Svo þegar alt, sem hún var búin að útvega sér þennan eftirmiðdag, er tek- iö með í reikninginn, verður hann hér um bil $200,000. Og ekki var þetta gjört í neinum öðrum.tilgangi, en að geta fylgt hinni hégómlegu tízku, sem rekur rót sína til óþverra strætanna í Parísarborg. Meðan þeir, sem tækifæri hafa til að likna og hjúkra hinum bágstöddu og veiku, og seðja hina hungruðu, eyða pen- ingunum á þennan hátt, koma neyðaróp frá mörgum löndum um hjálp. Munið eftir hinum bágstöddu Armeniumönn- um, hrakningum og þjáningum þeirra. Pólland. er komið. á barm örvæntingar- innar. Kinverjar svo þúsundum skiftir hrynja daglega niður úr hungri. Hve oft lesum vér. ekki í tímartum, að $10 getur frelsað barn frá hungurdauða í hinum ofannefndu löndum ; en. hér er tízkuam- bátt, sem á einum degi eyðir $200,000 í föt handa sjálfri sér, Með þessum pen- ingum hefði mátt bjarga lifi 20,000 barna. Gefa þessar tölur oss dálitla hug- mynd um þá ábyrgð, er hvílir á þeim, er hafa meðöl í hönd til að lækna hina veiku parta hins þjáða mannfélagslikama? Eða erum vér enn svo skilningslausir og blindir, að vér sjáum ekki, að hönd Drott- ins er þegar á lofti til að hegna mönnum fyrir slíkt? Þetta voru syndir Sódómu: “Synd Sódómu systur þinnar [Jerúsalemsborg- ar], var ofdramb; hún og hennar dætur [umkringjandi 'borgir] höfðu gnótt mat- ar og fullan frið, en réttu þó ekki hinum fátæka og þurfamanninum hjálparhönd. Þær voru drambsfullar og frömdu sví- virðingar fyrir augum mér; þegar eg sá það, svifti eg þeim burtu” fEsek. 16: 49, 50). Og þetta munu vera syndirnar, sem munu viðgangast í heiminum rétt á undan endurkomu Krists.” “Enn fremur segir Drottinn: Sökum

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.