Stjarnan - 01.06.1921, Blaðsíða 14

Stjarnan - 01.06.1921, Blaðsíða 14
94 STJARNAN gjörlega andstæSar því eðlilega, gátu komið herra Bower til að kúga sínar betri tilfinningar. Maður nokkur var kærður fyrir rann- sóknarréttinum, af því aö hann hafði sagt við konu sína, er þau mættu tveim- ur munkum: “Hve hjákátlegir menn þessir eru. Þeir halda, að þeir geti íengið inngöngu í himnariki með þvi að klæðast pokum og ganga berfættir. Þeir gætu víst verið alveg eins kátir og við hin og komist eins fljótt inn í himin- inn.” Maður þessi var aðalsmaður og herra Bowers handgegngi vinur. Hann hafði viðhaldið þeirri vináttu eftir að herra Bower varð meðlimur rannsóknarréttar- ins, enda þótt allir væru hræddir við að umgangast meðlimi hans. Hann var að ganga úti í garði 'sínum með konu sinni og sá tvo berhöfðaða og 'berfætta munka fara fram hjá og þá hann hugði, að þeir myndu vera of fjarri til að heyra til sín, lét hann konu sinni í ljós undrun sína yfir þvi, að nokkur maður skyldi geta verið svo þröngsýnn, að þvílíkur klæðn- aður gæti áunnið hylli Drottins. Því miður hevrðu munkarnir hvað hann sagði og kærðu hann fyrir rann- sóknarréttinum. Þetta vakti til fulls herra Bower’s meðaumkvun, því hann vissi, að hinn kærði mundi verða með- höndlaður með mestu grimd og vonzku, þar eð þvílíkur talsmáti var áltinn stór- kostlegt brot gegn kirkjunni. Það olli honum því sárustu sorgar, er hann þarna heyrði nafn síns bezta vinar nefnt og að formaðurinn endaði athugasemd sina með eftirfylgjandi orðu'm: “Og þér, herra Bower, fáið hér með skipun um, að taka hann og koma með hann hingað milli klukkan 2 og 3 i nótt.” Herra Bower svaraði: “Herra minn, þér þekkið til okkar miklu vináttu,” en formaðurinn greip beiskyrtur fram í fyr- ir honurn: “Vináttu, minnist þér ekki á vmáttu, þeagr um skyldur vorar er að ræða í þjónustu hinnar heilögu kirkju.” Hann stóð upp til brottfarar og endaði talið með þessum orðum: “Sjáið nú um, aö þetta verði gjört. Verðirnir bíða fyr- ir utan.” Og er hann gekk fram hjá herra Bower bætti hann við: “Á þennan hátt yfirbugar maður eðlið, herra Bower.” Því verður ekki lýst, sem hreyfði sig i 'hjarta herra Bowers þennan tima, éhér um bil klukkustund'), sem hann varð að biða. Það var honum ómögulegt, að vara vin sinn við þessu, því verðirnir biðu fyrir utan. Og skyldi hann hafa neitað að fara, mundi hann hafa stofnað sér í dauðans hættu, án þess að geta hjálpað vini sínum með því. Þegar honum var ságt, að tíminn væri kominn, gekk hann með vörðunum að húsinu og barði að dyrum. Vinnukona nokkur leit út um gluggann, og spurði hver þar væri. Herra Bower svaraði: Hinn heilagi rannsóknarréttur, opnaðu fvrir oss, án þess að vekja nokkurn, eða gjöra nokkurn Ihávaða, ella rnunt þú kom- ast í ónáð hjá kirkjunni.” Vesalings stúlkan kom til dyranna í náttklæðum sínum og svo óttaslegin, að hún naumast gat staðið upprétt. “Sýndu oss leiðina, til herbergis herra þíns.” Hjarta herra Bowers skelfdist af kvölum. Hann þekti leiðina eins vel og hún og hann mintist þess hve margar glaðar stundir hann hafði haft í þessum heribergjum með vini sinum. Aðalsmaðurinn og konan hans, sem aðeins höfðu verið gift í sex mánuði, sváfu bæði, er þeir komu inn í herbergi þeirra. Konan vaknaði fyrst og hróp- aði á hjálp. Einn af hermönnunum sló hana í höfuðið svo blæddi, og fékk sá harða átölu fyrir hjá herra Bower. Að- alsmaðurinn, sem nú var vaknaður, hljóðaði upp yfir sig af skelfingu. Hann leit á mennina og fórnaði upp höndunum af undrun. “Herra Bower,” sagði hann. Meira gat hann ekki sagt. Tilfinningar hans báru hann ofurliði. Herra Bower var líka neyddur til að snúa sér undan á meðan ihann aflauk erindi sínu. Og við þá eftirfarandi viðburði í þeim óttalegu

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.