Stjarnan - 01.05.1922, Qupperneq 9

Stjarnan - 01.05.1922, Qupperneq 9
STJARNAN 73 Newell, oröin hugfangin hvort í annað og hugur hinnar ungu stúlku dvaldi við þetta dag og nótt. MeS tárvot augu skrifaöi Harriet fá- um dögum seinna í daghók sína: “Hiö þýöingarmikla svar er ósent enn—eg haltra enn þá til beggja hliða. Mig langar aS sjá og tala viö mína kæru móöur. Staöa mín er svo ein- kennileg, aS eg get ekki trúað neinum fyrir því. HvaS á eg aö gjöra? Ef tárin gætu leitt mig inn á braut skyld- unnar, þá mundi eg vissulega rata. Hjarta mitt kvelst — og eg veit ekki hvaö eg á aS gjöra. Leiö mig, þú, ó mikli Guð! Eg fer heim næsta þriðju- dag. Ef til vill mun móSir mín segja við mig: “Harriet skal aldrei fá að fara.” Ef svo verði. þá er skylda mín skjýr. Eg get ekki brotiö á móti ráöi og boðum góðrar og guðhræddrar móSur.” Eegar þriöjudagurinn kom, steig Harriet upp í dagvagninn, sem ferSað- ist milli Boston og Haverhill og kom aftur í hús móður sinnar hjá torginu. Áður en dagvagninn ók yfir Merrimac- fljótið, fór hann fyrst gegn um Brad- ford eftir “Boston brautinni” fram hjá mentaskólanum og heimili .herra Hlas- elti.nes. Hin yngsta og fegursta stúlka á þessu Bradford heimili og hin granna, brúneygða stúlka frá Haverhill voru af forsjóninni ákveðnar til að yfirgefa hin sólbjörtu Ný-Englandsríki, skyld- fólkið, sem sat um arineldinn, og fara yfir tvö höf til hinna leyndardómsfullu landa í suðurhluta Austurálfunnar til þess að lifa og deyja meðal heiðinna þjóða. Harriet fann móður sína undirbúna til að mæta þessari alvarlegu^ spurn- ingu, sem hún kom með. í vandræðum sínum hafði Samuel Newell trúað Nancy Haseltine fyrir leyndardómi sín- um og var hún bpin að bera þetta mál, er truflaði hana svo mikið, fram fyrir móður Harriets. Með tárvot augun var þessi kristilega kona búin að svara: “Eg þori ekki og get ekki mælt á móti því.” íÞegar svo Harriet 'kom heim þann dag í aprílmánuði, var frú Atwood reiðubúin til að láta samvizku dóttur sinnar skera úr málurn. Síðan dauða föðursins þiremur álrum áður, hafði Harriet af öllu hjarta hjúfrað sig up-p aö móðurinni. Nú hafði einhver undra- verður, nýr kærleikur sprottið upp í hjarta hennar og, umbreytt henni frá því að vera barn til hinnar fullþrosk- uðu konu, sem hafði ásett sér að sigra í lífinu. Samuel Newell meðtók hina innilegustu ást, sem til var í hennar hjarta. Og þó haföi hún ekki einung- is hans vegna valið hið erfiða líf kristniboðans, heldur af því að hún frá djúpi sinnar hreinu sálar hafði ákveð- ið að fara hvert sem Guð mundi leiða hana. í júnímánuði urðu þau Harriet og Samuel að skilja um níu langa mánuði; því hinn ungi maður varð að fara, á- samt vini sínum Gordon Hall, til Phila- delphia til að stunda eðlisfræði og læknisfræði og á þann hátt búa sig undir kristniboðsstarfið. Einmana hjarta sat eftir i húsinu í Haverhill. Nancy Hiaseltine mundi hafa verið henni til huggunar, en hún var farin og ætlaði sér að vera í Salem um lengri tíma. Snemma um veturinn var ,Nancy foú- in að kveðja Adoniram Judson, þegar hann lagði af stað í lengra ferðalag en með dagvagninum til Philadelphia. Hann fó|r með slkjipinu “Pajckiet” til Englands, sendur af stjórn. hins nýja ameriska kristniboðsfélags til að ræða við hið eldra brezka félag sameiningu þessara tveggja stofnana. í þá daga tók ferð til Norðurálfunn- ar vanalega tvo mánuði. Pósturinn tók enn lengri tíma, svo Adoniram Judson gat komið aftur til Merrimacdalsins fyr en Nancy mundi frétta af komu hans til Englands. Þess vegna liöu margar vikur fyr en fregnin um æfin-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.