Stjarnan - 01.02.1923, Síða 1
STJARNAN
Traust til Drottins.
tá
Það er betra að setja traust sitt til Drottins,
en að reiða sig á menhina.—Sálm. 118, 8.
Allih kristnir menn œttu að lesa biblíuna einu
sinni á ári. Meðal maður getur lesið hana alla
á sextíu klukk'utímum. Gáfaður maður getur
farið yfir hana á. fjörutíu kl.timum. Þú getur
fengið alla ritninguna á íslenzku fyrir sjötíu og
fimm cents. Og þó, hve margir menn lifa og
deyja án þess að hafa lesið þessa bók bókanna
einu sinni. Jesús sagði: “Rannsakið ritningarn-
ar!” Því allar ritningar vitna um Jesúm. Þeg-
ar maður fer að rannsaka ritninguna og kemur
að versinu í upphafi þessai greinarstúfs, þá er
hann búinn að lesa hálfa bókina, hann er kominn
inn að hjarta ritningarinnar. Hvað finnur hann
þar? Svar: Hina mikilvægustu lexíu, sem nokk-
ur maður getur lært, nefnilega, að setja traust
sitt til Drotins.
Á þesswm tíma, þegar alt er á ringiilreið á öll-
um sviðum tilverunnar, geta að eins þeir, er hafa
lœrt þessa lexíu, haft friðinn, sem er öllum skiln-
ingi æðri og gengið sigri hrósandi gegn um bar-
áttu lífsins. Kæri vinur, hefir þú lært þessa
lexíu? D. G.
FBBHÚAR 1923
Verð: 15 cents