Stjarnan - 01.02.1923, Blaðsíða 10

Stjarnan - 01.02.1923, Blaðsíða 10
26 STJARNAN rekki, sem lýsti sér i þessum brúnu kvenmannsaugum heföi verkaö á hjarta hins sto’ta birmanska höföingja og kæmi honum til aö sýna þeim þessa óvanalegu velvild. Hvernig sem því nú var variö, þá voru þau hjónin Guöi innilega þakk- lát fyrir þessa uppörvun við byrjun ferðarinnar. Það mesta, sem þau óttuðust, var aö gjöra ferðina yfir Bengalflóann í annað sinn, sem í 1813 hafði veitt þeim svo margar þjáningar. Hér hvurfu aftur allir erfiðleikar; því hinn göfugi skip- stjóri bar mikla umhyggju fyrir frú Judson. Ekki einungis útvegaði hann sinum veika farþega alt það, sem hún þurfti meöj en þegar ferðinni var lokið, vildi hann ekkert fargjald þiggja. Góðsemi greiddi alstaðar ferðakon- unni veginn, og ekki sizt í Madras, þar sem þeir ekki voru búnir að gleyma frú Judson. Það voru hér um bil tvö ár síð- an hún fyrst kom til Madras, þar sem sá möguleiki mætti henni, að hún myndi fá heimili í Birma, í því landi, sem hún hafði heyrt svo margar skelfilegar sög- ur um. Og þó að hrollur hafði farið um hana við hugsunina um þetta, þá mælti hún ekki á rnóti; því eins og aðr- ir sögðu um hana, var það hennar hjart- ans ósk að fara hvert sem Guði þókn- aðist að senda hana. Þess konar trú- menska gleymist ekki fljótlega. Þegar hún ’kom til Madras í annað sinn, tóku vinir hennar hana inn á heimili sín og rnargir voru þeir, sem höfðu ánægju af að heiðra hana. Eftir sex vikna dvöl í borginni, bjó hún sig undir að fara aft- ur til Birma, því heilsa hennar var nú orðirt miklu betri, en þegar hún kom. í annað sinn gjörði hún ferðina til Rangoon. En hve vongóður er maður ekki, þegar maður sér ákvörðunarstað sinn fram undan sér, og hve ólík var ekki þessi ferð í samanburði við hina fyrri, þegar alt leit svo iskyggilega út. En hver er þessi lítli nýi farþegi, sem gengur með frú Judson upp á skipið á höfninni í ’Mkdras? Lítil stúlka stend- ur við hlið hennar og veifar hendinni til vinafólksins í fjörunni. Á hún virkilega að fara heim með1 frú Judson og hver getur hún verið? Það verður fljótlega leyst úr vandamálinu, ef maður fer á land til að kynna sér nokkra vini frú Judsons. í þau tvö skifti, sem hún hafði heimsótt borgina. hafði urigur maður nokkur sýnt henni vinsemd. Var hann sonur herforingjans von Som- meren, sem gjörði þjónustu í hinum hollenzka her. Þessi ungi maður sýndi æfinlega trúboðunum velvild og hjálp- semi. Oft og tíðum fór hann út í skip- in> sem komu inn á höfnina, og bauð kristniboðunum, er á þeim komu, að vera gestir á heimili hans. Á þessu heimili voru þrjú munaðarlaus börn, systkinabörn hans, sem honum, eftir dauða foreldranna, hafði verið trúað fyrir til uppeldis. Frú Judson lagði ást sína á yngsta barnið, sem hét Ernily von Sommeren, og þegar hún hugsaði urn að fara aftur til Birma, langaði hana mik- ið til að hafa þessa litlu stúlku með sér. Dag' nokkurn talaði hún við herra von Sommeren um þetta, og gaf hann þetta barn, sem þá var sjö ára gamalt, umhyggju þeirrar konu á vald, sem hann bar svo mikla virðingu fyrir. Þannig vildi það til, að frú Tudson fékk þessa litlu ferðakonu með sér til Birma. Á meðan var hinn ungi eiginmaður hennar sístarfandi í Rangoon til þess að hann að nokkru leyti gæti gleymt einver- unni á heimili sínu. Frá dögun til langt fram á nótt hélt hann áfram að temja sér málið. Eini tirninn, sem, hann ekki vann, var þegar hann talaði við hina innfæddu; en það var jú í raun og veru að temja sér málið á annan hátt. Það var ekki einn einasti maður í öllu Birma ríkinu, sem hann í hjartans ein- lægni gat samtalað við, eða beðið til Guðs með. Honurn fanst einveran

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.