Stjarnan - 01.02.1923, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.02.1923, Blaðsíða 3
STJARNAN 19 UPPRUNI TYRKJANNA. Tyrkir eru kynkvísl af þeirri þjóS, senf þegar i fornöld bjó i Túran, er liggur i vesturhluta Túrkostan milli Kaspiskahafsins og Pamir. Á áttundu öld tóku Tyrkir Múhameds trú. Mjög snemma höfðu miklir flokkar af kyn- kvísl, sem nefnd var Seldshúkkarnir, yfirgefiS Tírúkostan og farið tyrí allan vesturhluta Austurálfunnar. ÁriS e. Kr., fóru ; fhn'tíu þúsundir JTyrkja frá Chórasan/af Atta fyrir Miorrgolunum og settust aS í Armeníu. Var þessi l^xiiutin^yir fpru^tu ^Súleimans fyrsta. uþþi vaÉr"tra 1231 til 1288, gjörSist léns- maSur Seldshúkkasoldánans í Koníu í Litlu-Asíu, og fekk stóra landspildu i norSvesturhluta Frygíu fyrir fólk sitt. Eftir aS þeir voru búnir aS fá fótfestu i Frygíu, tóku þeir hverja lanspilduna á.iietur-annari, frá hinu hnignandi aust- ræna Rómaríki, hvers höfuSborg Mikli- garSur var. Sonur Ertogrúls var hinn frægi Osman fyrsti. Hann svifti Grikki jnörgum löndum og stækkaSi ríki sitt mjög mikiS. Hann tók titil- inn “soldán”. 27. júlí 1299 gjörSi hann áhlaup á borgina Nikomedia og vann hana. Eftir foringja sinn, Os- man, voru Tyrkir nefndir Osmanar Eins og vér munum sjá síSar meir í þessari grein, var 27. júlí 1299 punkt- urinn, sem saga Tyrkja snýst viS. En til þess aS skilja ganginn í sögu Tyrkja. verSur maSur aS skiljþ trúahbrögS þeirra. Frumkvöðull þessara trúarbragða hét Múhamed. Hann fæddist í Mekka í Arabíu 20. ágúst 570 e. Kr. Foreldr- ar hans dóu meðan hann var barn, og Miúhamed var uppalinn í húsi frænda síns, Abu Talibs. Þegar hann var orSinn fullorSinn fór hann i vist ti! kaupmannsekkju, Kadidja að nafni. Hann var dugnaðarmaSur og gjörði það vel í öllum þeim kaupferSum. sem hún s'éndi hann út í. Og þó^áð' hann væri ekki nema tuttugu og fimm ára. en hún fjörutíu, þá varð hún samt ást- fanginn í honum og þau giftust.1* Bæði hann og Kadidja voru heiðingjar, en á heimili hennar komu oft Gyðingar, og hjá þeim lærSi hann söguna um hinn eina sanna GuS, sem hefir skapaS him- in og jörð. Hann hitti á ferSum sín- um kristna menn og hjá þeim heyrði hann söguna um frelsarann, um þaS sem hann var búinn að gjöra til að end- urleysa jörðina og mannkiyniS, sem hafSi fallið frá GuSi; um dóminn, sem GuS mun uppkveða yfir þessum upp- reistnarheimi og um hið mikla friSar- ríki, sem Kristur mun stofnsetja og gefa því fólki, sem hefir gengið honum á hönd til þess aS sýna hlýSríi við öll hans boSorð. Hann skoðaSi líf og breytni hinna kristnu, og sá hve hrein- skilnir, sjSprúSir og samviskusamir þeir voru í öllum viSskiftum. Eftir þaS hafði Múhamed engan frið. Á- valt hljómaði í eyrum hans: — “ÞaS er einn GuS, sem er dómari þinn og mun hann krefjast af. þér reikning- skapar.” Hann sá sannleikann, eins og hann

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.