Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 16
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Þetta er
gjaldið sem
almenningur
greiðir fyrir
óábyrga
stjórnmála-
menn.
170 m2 útsýnis lúxusíbúð á Vatnsstíg 20-22 til leigu.
Tvö stór svefnherbergi. Tvö baðherbergi.
Stórt eldhús og stofa með frábæru útsýni yfir sundin.
Stæði í bílageymslu fylgir. Leigist með eða án húsgagna.
Einungis traustur leigtaki kemur til greina.
Áhugasamir sendið tölvupóst á vatnsstigur.leiga@gmail.com
Til leigu –
Laus strax
Rithöfundar eru eins og jólasveinarnir. Það hefur lítið spurst til þeirra það sem af er ári. En þegar jólin nálgast hleypa þeir hömum, skipta úr
snjáðum náttfötum í jólabúninginn, og halda til byggða.
Vígreifir birtast þeir á síðum blaðanna, í sjónvarpinu
og á samkomum til bæja og sveita með frumsamda bók
undir handleggnum, dálítið örir af ótta við að það sjáist
hvað þeir eru utangátta meðal manna. Þeir segja sögur,
fara með gamanmál og reyna að mæla sem flest gáfulegt
og láta eins og spekin hafi lostið þá á staðnum en ekki
sé um að ræða ummæli sem æfð hafi verið í huganum
vikum saman í veikri von um að einhvern tímann gæfist
tækifæri til að mæla þau af vörum fram. Þeir láta eins
og tilvist þeirra snúist um andann en ekki efnið, lista-
gyðjuna en ekki saltið í grautinn, og dómur hinna dauð-
legu skipti þá engu því lífið er stutt en listin eilíf. Bak
við hátíðarskrúðann og heimasaumað sjálfsöryggið fela
þeir hins vegar það sem þeir eru í alvörunni að hugsa:
„Vill einhver elska 39 ára gamlan rithöfund?“ (Lesist
með rödd Egils Ólafssonar við undirleik Þursaflokksins.)
„Sem hefur ekki atvinnu. Vill einhver elska 39 ára gamlan
rithöfund? Sem er ekkert rosalega reglusamur, á íbúð en
hvorki bíl né þjóðbúningadúkku. Svar óskast sent, merkt
einkamál … eða fæst í næstu bókabúð fyrir 4.699 krónur.“
En bak við hvern rithöfund sem starir bænaraugum
af síðum blaðanna með svip sem segir „ég vil ekki þurfa
að sækja um vinnu við að steikja hamborgara; af hverju
hlustaði ég ekki á pabba sem sagði mér að læra lög-
fræði?“ (sjá dæmi á blaðsíðu 26 í Fréttablaðinu) stendur
hópur af fólki sem sjaldan fær þakkir fyrir það þrekvirki
sem það vinnur á degi hverjum.
Jólagæs, einvígi og drykkjulæti
Nýverið fagnaði breska bókaforlagið John Murray 250
ára afmæli sínu. Af því tilefni kom út bók með bréfum
sem forleggjaranum hafa borist frá höfundum sínum í
aldanna rás. Bréfin sýna að þótt kápu bókar prýði aðeins
eitt höfundarnafn er bók sjaldan eins manns verk.
Mikið mæddi á þeim sex kynslóðum Murray fjölskyld-
unnar sem fengust við það vandasama verk að halda
mislyndum höfundum góðum í 250 ár. Jane Austen
skrifaði útgefandanum og sagðist „mjög vonsvikin
yfir … töfum hjá prentaranum“. William Wordsworth
hellti sér yfir forleggjarann þegar honum fannst hann
ekki svara bréfum sínum nógu hratt og sakaði hann
um að telja sig „of mikið fyrirmenni til að sinna öðrum
en hirð konungs, aðalsmönnum og rithöfundum sem
væru í tísku“. David Livingstone var svo óánægður með
teikningu af ljóni í bók sinni að hann húðskammaði
útgefandann og sagði að „allir þeir sem vita hvernig ljón
lítur út munu deyja úr hlátri“. Byron lávarður lét það
bitna á útgefandanum þegar hann fékk slæma gagnrýni
og bölsótaðist yfir „virði almenningsálitsins“ og „yfirlæti
Englendinga“. Charles Darwin mislíkaði gagnrýni um
Uppruna tegundanna: „Þessir mætu menn halda að þeir
geti skrifað bókardóma án þess að vita skapaðan hlut
um innihald bókarinnar sem um ræðir.“ William Make-
peace Thackeray baðst afsökunar á drykkjulátunum í
sér í bréfi. James Hogg kvartaði yfir því að hann væri svo
blankur að hann ætti ekki fyrir jólagæs. Sonur Arthurs
Conan Doyle, höfundar sagnanna um Sherlock Holmes,
var svo reiður yfir ummælum sem bókagagnrýnandi lét
falla um föður hans að hann krafðist þess að útgefandinn
skipulegði einvígi milli sín og gagnrýnandans þar sem
málið yrði útkljáð.
Það fellur að og fjarar út
Rithöfundar eru eins og jólasveinarnir. Senn hverfa
þeir aftur til fjalla og sjást ekki aftur fyrr en að ári liðnu.
Á meðan vinnur starfsfólk forlaga bak við tjöldin að
því að tryggja að jólabókaflóðið sé jafnáreiðanlegt og
sjávarföllin – það fellur að og fjarar út óháð duttlungum,
dramatík og dívu-stælum. Á aðfangadagskvöld, þegar
jólabækurnar hafa verið færðar úr gjafapappírnum, er
rétt að skála í jólablandi fyrir þessum ósungnu hetjum
jólanna.
Ósungnar hetjur jólanna
Theresa May hefur kynnt Brexit-samkomu-lagið fyrir ríkisstjórn sinni. Um er að ræða 585 síðna skjal sem á að verða undirstaða samninga Breta og Evrópusambandsins.Þegar May stóð fyrir utan dyrnar frægu
við Downing-stræti númer 10 viðurkenndi hún að
ekki væri samkomulagið fullkomið, en kostirnir
væru bara þrír: að samþykkja samninginn, ganga
úr Evrópusambandinu samningslaus eða hætta við
útgöngu. Af þessu þrennu teldi hún samninginn
skásta kostinn.
Theresa May er praktískur pólitíkus. Hún varð
leiðtogi með því að segja sem allra minnst um
Brexit og mæta svo á vettvang eftir að David Cam-
eron hrökklaðist frá. Hennar nálgun á Brexit ber
keim af þessu. Hún er bundin af þjóðaratkvæði, og
telur hlutverk sitt að klára samning sem veldur sem
minnstu tjóni.
Margir kollegar hennar í ríkisstjórn og Íhalds-
flokknum eru annarrar gerðar. Sýn hinna svoköll-
uðu Brexit-sinna, með spjátrunginn Jacob Rees-
Mogg í fararbroddi, er úr takti við veruleikann og
virðist eiga rætur í löngu úreltum breskum heims-
veldisdraumum. Viðbrögð þessa arms mátti sjá fyrir.
Nokkrir tugir þingmanna hafa lýst vantrausti á May,
en 48 þingmenn þarf til að knýja fram leiðtogakjör.
Að minnsta kosti fjórir ráðherrar hafa sagt af sér, þar
á meðal Dominic Raab, ráðherra Brexit-mála.
May hefur misst tuttugu ráðherra úr ríkisstjórn frá
því hún tók við völdum. Varla þarf að taka fram að
það er met á ekki lengri valdatíma.
Þessar væringar lögðust illa í markaði. Pundið
hefur átt sína verstu daga frá þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni árið 2016, og gríðarlegar sveiflur hafa orðið
á hlutabréfamarkaði. Venjulegt fólk finnur fyrir
þessu á ferðum sínum, í verðlagi og algeru frosti á
fasteignamarkaði. Þetta er gjaldið sem almenningur
greiðir fyrir óábyrga stjórnmálamenn.
Raunar hafa þessir sömu ábyrgðarlausu stjórn-
málamenn ekki látið í ljós mikla efnislega gagnrýni
á samkomulagið. Helst er að þeir hafi gagnrýnt að
Bretland verður áfram í tollabandalagi við Evrópu-
sambandið „þar til betri lausn finnst“. Þetta sam-
þykkti May til að koma í veg fyrir að gamaldags
landamæri risu milli Írlands og Norður-Írlands.
Samningurinn er sömuleiðis þunnur um það sem
mestu skiptir, viðskiptasamband Breta við Evrópu-
sambandið eftir Brexit, en um það fjalla aðeins 7
síður af 585. Enn eitt merkið um að Brexit snýst að
stórum hluta um gamaldags sýn á veröldina þar sem
aukaatriði verða aðalatriði.
Allsendis óvíst er hvort May tekst að koma samn-
ingnum gegnum þingið, eða hvort hún lifir hreinlega
af sem forsætisráðherra.
Kannski verður önnur þjóðaratkvæðagreiðsla eftir
allt. Til þess þyrfti að kveða við nýjan tón í stjórn-
málunum, og leiðtogarnir að viðurkenna að betur
hefði verið heima setið en af stað farið.
Ábyrgð óábyrgra
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-5
9
5
4
2
1
6
A
-5
8
1
8
2
1
6
A
-5
6
D
C
2
1
6
A
-5
5
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K