Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 26
Við erum mjög súr saman, við Halldór,“ segir Sif Sigmarsdótt­ir rithöfundur sem ræðir við blaðamann frá höfuðstöðvum sínum í London. Höfuðstöðvarnar eru reyndar hlýlegt heimili hennar þar sem hún stundar ritstörf af kappi. Út er komin ný bók eftir hana og Halldór Baldursson teiknara þar sem Íslandssögunni eru gerð skil á frum­ legan og fjörlegan hátt. „Við byrjuðum að vinna í þess­ ari bók árið 2015. Hún hefur verið lengi í smíðum. Tilgangurinn með bókinni er í raun þríþættur. Í fyrsta lagi þá langaði mig að skrifa þessa bók af því að ég er orðin svo ótrú­ lega leið á fólki sem segir að allt hafi verið betra, fallegra og saklausara í gamla daga. Þegar við vorum öll á sauðskinnsskóm eða þegar það var ekkert sjónvarp á fimmtu­ dögum. Ég held til dæmis að ekkert okkar hafi viljað vera uppi á Sturl­ ungaöld þegar það ríkti stríðs­ ástand á Íslandi,“ segir Sif. Sif segir markmið með samvinnu þeirra Halldórs að kveikja söguáhuga hjá börnum og ungmennum. „Ég held að mörgum börnum finnist Íslandssagan leiðinleg. Það er skiljanlegt. Við förum illa með hana. Látum hana rykfalla inni í kompu og drögum hana helst fram á tyllidögum og klæðum hana þá í þjóðbúning og helgislepju og syngj­ um Ó, guð vors lands,“ segir Sif. „Allt sem er svona hátíðlegt er leiðinlegt og gelt. En þegar sagan er svipt hátíðleikanum þá vaknar hún til lífsins. Hlutirnir eru ekki lengur tvívíðir – annaðhvort svartir eða hvítir – og fólk færist okkur nær. Verður breyskara, mennskara og líkara okkur. Það er miklu skemmti­ legra. Ég vildi líka sýna hversu fyndin sagan er. Saga okkar er álitin sam­ einingartákn þjóðarinnar. Það er þá iðulega á einhverjum skrítnum hetjulegum forsendum. En það sem mér finnst sameina okkur er húmor­ inn, að við getum hlegið saman að sjálfum okkur. Húmorinn verður til við sameiginlega reynslu okkar,“ segir Sif sem segir að það sem henni hafi fundist einna erfiðast við að aðlagast því að skrifa og tala ensku hafi verið að vera fyndin. „Mér fannst erfitt að vera fyndin á ensku. En á íslensku er það einhvern veginn náttúrulegra. Íslendingar eru með ákaflega súran húmor. Þeim er ekkert heilagt og ég elska það.“ Hvað eruð þið að fjalla um? Þetta er auðvitað stórt verkefni. „Já, verkefnið var ansi stórt. Við fjöllum um Íslandssöguna frá upp­ hafi. Frá Ingólfi Arnarssyni alla leið að internetinu. En við stiklum á stóru og reynum að rekja stór­ atburði sem allir þekkja en gerum það með okkar hætti,“ segir Sif og segir mannkynssöguna oftar mega vera frá sjónar horni almennings sem lifði hana. „Þegar ég segi þetta þá er ég viss um að félagar mínir í sagnfræðinni ranghvolfa sumir augum. Í dag þykir fínt að læra hagsögu og rýna í tölur og eitthvað sem er hægt að mæla. Mér finnst reynsla fólks svo miklu skemmtilegri. Sýn mín á fortíðina breyttist við það að skoða Íslandssöguna í einum rykk. Þegar við leggjum mat á söguna er erfitt að skilja frá gildi samtímans, okkar eigin fordóma, siðferði og skoðanir. Við þurfum að sýna for­ tíðinni meiri skilning, dæma hana út frá andrúmslofti og skoðunum þess tíma sem horft er á. Við eigum það til að dæma gjörðir fólks í fortíðinni hart,“ segir Sif. „Og við höldum auðvitað að við munum ekki hljóta sömu örlög. Að framtíðin muni ekki dæma okkur. Að við séum á einhverri sögulegri endastöð. Við negldum þetta! En það er auðvitað ekki rétt. Við getum ekki vitað fyrir hvað við verðum dæmd í fram­ tíðinni. Ég ímynda mér að það muni tengjast meðferð okkar á dýrum eða menntamál­ um. Við gætum þótt hafa beitt börn miklu harð­ ræði með því að láta þau sitja kyrr á rassinum í skólum að læra,“ segir Sif og segir að þegar hún hugsi svo langt inn í framtíðina þá finni hún fyrir eigin dauð­ leika. „Ég er enn þá þrjátíu og eitthvað. Mér líður samt eins og ég sé nú þegar farin að úreldast þegar kemur að skoðunum og siðferði. Ég er komin yfir síðasta söludag! Ég elskaði einu sinni vinsæla þætti sem heita Friends. Mér finnst þeir fyndnir enn en þeir þykja ekki viðeigandi lengur. Ég er svona eins og karl­ arnir sem skilja bara ekkert í því af hverju þeir mega ekki klípa í rassinn á konum á vinnustaðnum lengur. Það mátti einu sinni. Við dettum öll úr tísku einhvern tímann, það er eins og að horfast í augu við eigin dauðleika.“ Fannst þér saga spennandi þegar þú varst sjálf í skóla? „Ég féll ekki fyrir sögu fyrr en ég byrjaði í MR og fór að læra um Grikk­ land og Rómaveldi hið forna. Þar lásum við um skrautlegar persónur, ástir þeirra og örlög, sem minntu helst á sápuóperurnar sem maður horfði á í sjónvarpinu. „Það sem heillaði mig síðar og varð til þess að ég ákvað að leggja stund á sagnfræði í háskóla var saga tuttugustu aldarinnar.“ Er eitthvað sem þér er sérstaklega hugstætt úr sögunni? „Það er eitt sem mér finnst alltaf jafnmerkilegt – og óhugnanlegt – þegar ég horfi á söguna: Hug my n d a f l ug i mannsins virðast engin takmörk sett þegar kemur að því að heyja ófrið.“ Sif Sigmarsdóttir rithöfundur Við dettum öll úr tísku Sif Sigmarsdóttir rithöfundur og Halldór Baldursson teiknari segja Íslandssöguna á frumlegan hátt með húmorinn að vopni í nýrri bók fyrir ungt fólk, Sjúklega súr saga. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Ég er enn þá þrjátíu og eitthvað. MÉr líður saMt eins og Ég sÉ nú þegar farin að úreldast þegar keMur að skoðunuM og sið ferði. Ég er koMin yfir síðasta söludag. Lesið fleiri skrautleg brot úr Sjúklega súr saga á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er eingöngu í Fréttablaðs-appinu eða í PDF-útgáfu blaðsins sem er aðgengileg á frettabladid.is. +PlúS 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 7 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 A -9 E 7 4 2 1 6 A -9 D 3 8 2 1 6 A -9 B F C 2 1 6 A -9 A C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.