Fréttablaðið - 17.11.2018, Síða 26
Við erum mjög súr saman, við Halldór,“ segir Sif Sigmarsdóttir rithöfundur sem ræðir við blaðamann frá höfuðstöðvum
sínum í London. Höfuðstöðvarnar
eru reyndar hlýlegt heimili hennar
þar sem hún stundar ritstörf af
kappi.
Út er komin ný bók eftir hana og
Halldór Baldursson teiknara þar sem
Íslandssögunni eru gerð skil á frum
legan og fjörlegan hátt.
„Við byrjuðum að vinna í þess
ari bók árið 2015. Hún hefur verið
lengi í smíðum. Tilgangurinn með
bókinni er í raun þríþættur. Í fyrsta
lagi þá langaði mig að skrifa þessa
bók af því að ég er orðin svo ótrú
lega leið á fólki sem segir að allt hafi
verið betra, fallegra og saklausara í
gamla daga. Þegar við vorum
öll á sauðskinnsskóm eða
þegar það var ekkert
sjónvarp á fimmtu
dögum. Ég held til
dæmis að ekkert
okkar hafi viljað
vera uppi á Sturl
ungaöld þegar
það ríkti stríðs
ástand á Íslandi,“
segir Sif.
Sif segir markmið
með samvinnu þeirra
Halldórs að kveikja
söguáhuga hjá börnum og
ungmennum. „Ég held að
mörgum börnum finnist
Íslandssagan leiðinleg. Það
er skiljanlegt. Við förum illa með
hana. Látum hana rykfalla inni í
kompu og drögum hana helst fram
á tyllidögum og klæðum hana þá í
þjóðbúning og helgislepju og syngj
um Ó, guð vors lands,“ segir Sif.
„Allt sem er svona hátíðlegt er
leiðinlegt og gelt. En þegar sagan er
svipt hátíðleikanum þá vaknar hún
til lífsins. Hlutirnir eru ekki lengur
tvívíðir – annaðhvort svartir eða
hvítir – og fólk færist okkur nær.
Verður breyskara, mennskara og
líkara okkur. Það er miklu skemmti
legra.
Ég vildi líka sýna hversu fyndin
sagan er. Saga okkar er álitin sam
einingartákn þjóðarinnar. Það er
þá iðulega á einhverjum skrítnum
hetjulegum forsendum. En það sem
mér finnst sameina okkur er húmor
inn, að við getum hlegið saman að
sjálfum okkur. Húmorinn verður
til við sameiginlega reynslu okkar,“
segir Sif sem segir að það sem henni
hafi fundist einna erfiðast við að
aðlagast því að skrifa og tala ensku
hafi verið að vera fyndin.
„Mér fannst erfitt að vera fyndin á
ensku. En á íslensku er það einhvern
veginn náttúrulegra. Íslendingar eru
með ákaflega súran húmor. Þeim er
ekkert heilagt og ég elska það.“
Hvað eruð þið að fjalla um? Þetta
er auðvitað stórt verkefni.
„Já, verkefnið var ansi stórt. Við
fjöllum um Íslandssöguna frá upp
hafi. Frá Ingólfi Arnarssyni alla
leið að internetinu. En við stiklum
á stóru og reynum að rekja stór
atburði sem allir þekkja en gerum
það með okkar hætti,“ segir Sif og
segir mannkynssöguna oftar mega
vera frá sjónar horni almennings sem
lifði hana.
„Þegar ég segi þetta þá er ég viss
um að félagar mínir í sagnfræðinni
ranghvolfa sumir augum. Í dag þykir
fínt að læra hagsögu og rýna í tölur
og eitthvað sem er hægt að mæla.
Mér finnst reynsla fólks svo miklu
skemmtilegri.
Sýn mín á fortíðina breyttist við
það að skoða Íslandssöguna í einum
rykk. Þegar við leggjum mat á söguna
er erfitt að skilja frá gildi samtímans,
okkar eigin fordóma, siðferði og
skoðanir. Við þurfum að sýna for
tíðinni meiri skilning, dæma hana út
frá andrúmslofti og skoðunum þess
tíma sem horft er á. Við eigum það
til að dæma gjörðir fólks í fortíðinni
hart,“ segir Sif.
„Og við höldum auðvitað að við
munum ekki hljóta sömu örlög. Að
framtíðin muni ekki dæma okkur.
Að við séum á einhverri sögulegri
endastöð. Við negldum þetta! En það
er auðvitað ekki rétt. Við getum
ekki vitað fyrir hvað við
verðum dæmd í fram
tíðinni. Ég ímynda
mér að það muni
tengjast meðferð
okkar á dýrum
eða menntamál
um. Við gætum
þótt hafa beitt
börn miklu harð
ræði með því að
láta þau sitja kyrr á
rassinum í skólum að
læra,“ segir Sif og segir
að þegar hún hugsi svo
langt inn í framtíðina þá
finni hún fyrir eigin dauð
leika.
„Ég er enn þá þrjátíu og eitthvað.
Mér líður samt eins og ég sé nú þegar
farin að úreldast þegar kemur að
skoðunum og siðferði. Ég er komin
yfir síðasta söludag! Ég elskaði
einu sinni vinsæla þætti sem heita
Friends. Mér finnst þeir fyndnir
enn en þeir þykja ekki viðeigandi
lengur. Ég er svona eins og karl
arnir sem skilja bara ekkert í því
af hverju þeir mega ekki klípa í
rassinn á konum á vinnustaðnum
lengur. Það mátti einu sinni. Við
dettum öll úr tísku einhvern tímann,
það er eins og að horfast í augu við
eigin dauðleika.“
Fannst þér saga spennandi þegar
þú varst sjálf í skóla?
„Ég féll ekki fyrir sögu fyrr en ég
byrjaði í MR og fór að læra um Grikk
land og Rómaveldi hið forna. Þar
lásum við um skrautlegar persónur,
ástir þeirra og örlög, sem minntu
helst á sápuóperurnar sem maður
horfði á í sjónvarpinu.
„Það sem heillaði mig síðar
og varð til þess að ég ákvað
að leggja stund á sagnfræði í
háskóla var saga tuttugustu
aldarinnar.“
Er eitthvað sem þér er
sérstaklega hugstætt úr
sögunni?
„Það er eitt sem mér
finnst alltaf jafnmerkilegt
– og óhugnanlegt – þegar
ég horfi á söguna:
Hug my n d a f l ug i
mannsins virðast
engin takmörk sett
þegar kemur að
því að heyja ófrið.“
Sif Sigmarsdóttir
rithöfundur
Við dettum
öll úr tísku
Sif Sigmarsdóttir rithöfundur og Halldór
Baldursson teiknari segja Íslandssöguna á
frumlegan hátt með húmorinn að vopni í
nýrri bók fyrir ungt fólk, Sjúklega súr saga.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Ég er enn þá þrjátíu og
eitthvað. MÉr líður
saMt eins og Ég sÉ nú
þegar farin að
úreldast þegar keMur
að skoðunuM og sið
ferði. Ég er koMin yfir
síðasta söludag.
Lesið fleiri skrautleg brot úr
Sjúklega súr saga á +Plús síðu
Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PlúS
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-9
E
7
4
2
1
6
A
-9
D
3
8
2
1
6
A
-9
B
F
C
2
1
6
A
-9
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K