Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 89

Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 89
SAMTÖK SYKURSJÚKRA SYKURSÝKI = GOTT LÍF 17. nóv 2018, í tilefni af alþjóðadegi sykursjúkra - á HOTEL REYKJAVIK NATURA KL. 12:30-16:00, VÖRUKYNNINGAR ICEPHARMA MEDOR HEILSUBORG INTER MEDICA SJÖAN SPORTVÖRUR MEDILYNC ARTASAN HEILSUFARSMÆLINGAR Á VEGUM VERKEFNISINS „LÍF OG HEILSA“, sem er samstarfsverkefni Samtaka sykursjúkra, SÍBS, Hjartaheilla og Samtaka lungnasjúklinga Kl. 13:00-15:00, MÁLÞING Stuðningsnet sjúklingafélaganna – Helga Kolbeinsdóttir, félagsráðgjafi Göngudeild sykursjúkra barna og unglinga – Ragnar Bjarnason, yfirlæknir Stóra myndin í heilbrigðismálum – Guðmundur Löve, frkvstj SÍBS Tækni og tækniþróun í meðferð sykursýki – Steinunn Arnardóttir, sérfræðingur á LSH Kaffiveitingar Fullveldisárið 1918 var sannarlega sögulegt ár með heimsstyrjöld, frosthörkum, eldgosi og bráðsmitandi plágu sem geisaði um heiminn. Árið hófst á ógnarkulda og voru flóar og firðir svo ísilagðir að meira að segja hvalir og selir festust í vökum. Talið er að 27 ísbirnir hafi gengið á land en ekki varð manntjón af þeirra völdum þetta ár. Fuglar, fé og hross frusu í hel og hafís fyllti hverja höfn í 3-4 vikur. Veturinn 1917-1918 hefur verið kallaður frostaveturinn mikli en nafnið er fyrst og fremst til komið vegna kuldans í janúar sem var kaldasti mánuður 20. aldarinnar. Við birtum margvíslegan fróðleik um fullveldisárið 1918 á jólafernunum í ár. Lestu meira á fullveldi1918.is FROSTAVETURINN MIKLI 100 ÁRA FULLVELDI ÍSLANDS FAGNAÐ Á JÓLAFERNUM MS Bækur rotturnar ragnheiður Eyjólfsdóttir Útgefandi: Vaka-Helgafell blaðsíður: 273 Rotturnar er þriðja skáldsaga Ragnheiðar Eyjólfsdóttur. Fyrri tvær sögurnar eru samtengdar fantasíu-sögur sem hefjast í raunheimum og færast svo yfir í framandi veröld og í raun má segja það sama um þessa bók þó svo á allt annan hátt sé. Bókin hefst á því að Hildisif sex- tán ára er að flytjast heim til Íslands með fjölskyldu sinni eftir að hafa búið erlendis um árabil. Það er vor og henni hefur boðist sumar- vinna á afskekktum stað á vegum sama fyrirtækis og réð móður hennar í vinnu sem var ástæða þess að fjölskyldan flutti heim til Íslands. Þegar í sumarvinnuna er komið kynnist hún Flexa og fleiri krökkum og af stað fer hröð og spennandi atburðarás sem verður til þess að að lokum þarf Hildisif ásamt félögum sínum að berjast fyrir lífi sínu í bókstaflegri merkingu og á ýmsum vígstöðvum ásamt því að upplifa ástina kvikna. Til að eyðileggja ekki fyrir vænt- anlegum lesendum skal söguþráð- urinn ekki rakinn frekar hér en þó skal látið uppi að dularfullir áverkar og útdauðar drepsóttir koma við sögu. Margar óvæntar beygjur og hlykkir á söguþræðinum verða til þess að lesendur eru stöðugt á tánum og tilbúnir að hrökkva í kút. Unnendur spennutrylla og vís- indaskáldsagna ættu að fagna þess- ari bók ákaft því hún er skemmti- lega skrifuð og haganlega fléttuð. Persónusköpunin er góð og sam- töl raunveruleg og vel farið með vísanir enda augljóst að höfundur hefur lagt sig fram við að hafa bæði vísindalegar og sagnfræðilegar stað- reyndir á hreinu við skrif bókar- innar. Einnig má finna ákveðnar heim- spekilegar og jafnvel trúarlegar pælingar í bókinni, sem tengjast voninni og því hvernig það að vona getur haft áhrif á andlega og jafnvel líkamlega heilsu, hvernig og hvort er hægt að gera út af við von- ina og hvaða máli það skiptir að halda í hana. Það hefði reyndar alveg mátt gera meira úr þeim þætti fyrst komið var  með hann inn í söguna á annað borð þar sem hann fjarar eiginlega út eftir að hafa komið sterkur inn um miðbik bókar. Það er ástæða til þess að benda á að þó fyrri tvær skáldsögur höf- undar geti talist barnabækur þá fellur þessi tvímælalaust í flokk- inn ungmennabók þar sem má finna í henni óhugnanlega spretti og grafískar ofbeldislýsingar og yrði kvikmynd gerð sem fylgdi bókinni vel eftir, sem væri reyndar mjög góð hugmynd því framvindunni er oft mjög vel myndlýst, væri sú mynd nokkuð örugglega bönnuð innan sex- tán. Rotturnar er skemmtileg aflestrar, spennandi og vel skrifuð og gæti vel haldið lesendum að verki langt fram yfir háttatíma. Brynhildur Björnsdóttir Niðurstaða: Vel skrifaður, hagan- lega fléttaður og nokkuð óhugnanlegur vísindaspennutryllir. Unglingar, dauði og drepsóttir Ragnheiður Eyjólfsdóttir rithöfundur. m E N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 45L a u g a r D a g u r 1 7 . N ó v E m B E r 2 0 1 8 1 7 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 0 4 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 A -5 9 5 4 2 1 6 A -5 8 1 8 2 1 6 A -5 6 D C 2 1 6 A -5 5 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.