Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 18
Vatnsheldir
gæðaskór
Skornirthinir.iS
Verð 16.995
Stærðir 36-47
Frá Lytos með innbyggðum
broddum í sóla.
Körfubolti „Við stefnum á að ná í
fyrsta sigurinn í þessum riðli og ég
held að við eigum alveg raunhæfa
möguleika á því. En til að það gangi
eftir þurfum við að eiga toppleik.
Við vitum að þetta verður erfitt en
með góðum stuðningi ættum við að
geta tekið sigur,“ segir Ívar Ásgríms-
son, þjálfari íslenska kvennalands-
liðsins í körfubolta, í samtali við
Fréttablaðið.
Fram undan eru síðustu tveir
leikirnir í undankeppni EM 2019
og fara þeir báðir fram í Laugar-
dalshöllinni. Ísland mætir Slóvakíu
klukkan 16.00 í dag og klukkan
19.45 á miðvikudaginn tekur Ísland
á móti Bosníu. Íslenska liðið hefur
tapað öllum fjórum leikjum sínum í
undankeppninni til þessa með sam-
tals 100 stiga mun. Síðasti leikur var
sérstaklega slæmur en þá laut Ísland
í lægra haldi fyrir Svartfjallalandi á
útivelli, 69-37.
Vill sjá tvo góða hálfleiki
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir Slóvakíu í næstsíðasta leik sínum í undankeppni EM 2019
í dag. Ísland er án sigurs í riðlinum. Landsliðsþjálfarinn vill sjá íslenska liðið spila af krafti allan tímann.
Íslenska liðið hefur æft fyrir lokaleikina í undankeppni EM 2019 síðustu daga. Ísland á enn eftir að vinna leik í undankeppninni. Fréttablaðið/anton brink
Ísland hefur aðeins skorað 228
stig í leikjunum fjórum í undan-
keppninni, eða 57 stig að meðaltali
í leik. Aðeins sex lið hafa skorað
minna í undankeppninni.
„Við höfum skoðað slóvakíska
liðið gaumgæfilega og vitum hvern-
ig það spilar sína vörn. Við reynum
að sækja á þeirra veikleika sem eru
ekki mjög margir. Ég tel að við séum
með góðan hóp núna og höfum
fengið reynslumikla leikmenn aftur
inn í hópinn sem er mjög mikilvægt
í svona leikjum,“ segir Ívar og bætir
við að hópurinn sem hann er með
núna sé sá sterkasti sem hann hefur
verið með í undankeppninni.
Íslenska liðið hefur jafnan átt
ágætis kafla í fyrri hálfleikjum leikj-
anna í undankeppninni en ekki náð
að halda út. Ívar vill sjá breytingu
þar á í næstu tveimur leikjum.
„Við höfum staðið okkur vel í fyrri
hálfleik en síðan hefur fjarað undan
okkur í þeim seinni þegar lykilmenn
þreytast. Það hefur mætt mikið á
Helenu [Sverrisdóttur] og Hildi
[Björgu Kjartansdóttur] en núna er
komin meiri reynsla inn í liðið og
yngri stelpurnar hafa öðlast meiri
reynslu. Það ætti að losna meira
um Helenu og Hildi,“ segir Ívar og
ítrekar að íslenska liðið verði að
halda skipulagi allan tímann, ekki
bara í fyrri hálfleik.
„Við höfum verið svolítið fljótar
að fara út úr okkar plani um leið og
hitt liðið hefur komið með áhlaup.
Við höfum sýnt það í fyrri hálfleikj-
unum að ef við höldum skipulagi
erum við í fínum málum. En um leið
og við setjum hausinn niður erum
við fljótar að brotna.“
ingvithor@frettabladid.is
Þýðir ekki að spila bara fyrri hálfleikinn
„Við erum Íslendingar og trúum því að við
getum unnið alla leiki sem við förum
í. Ef við spilum hörkuvörn og setjum
skotin fyrir utan ofan í getum við staðið
í þessum liðum,“ segir Helena Sverris-
dóttir í samtali við Fréttablaðið. Helena
hefur verið langbesti leikmaður Íslands í
undankeppni EM 2019. Hún er með 23,5
stig, 8,0 fráköst og 5,8 stoðsendingar að
meðaltali í leik í undankeppninni.
Íslenska liðinu hefur gengið erfiðlega
að halda út í undankeppninni og oftar
en ekki gefið mikið eftir í seinni hálfleik
leikjanna.
„Það þýðir ekki bara að spila fyrri hálf-
leikinn. Sá seinni er líka hluti af leiknum. Við
verðum að undirbúa okkur vel og vera með það
bak við eyrað að þegar seinni hálfleikurinn byrjar
þurfum við að stíga á bensíngjöfina og gefa ekki
eftir. Það þarf að koma framlag frá öllum. Það
þurfa allir að skila sínu, ekki bara 2-3 leikmenn,“
segir Helena sem leikur sinn 69. landsleik í dag.
Við höfum staðið
okkur vel í fyrri
hálfleik en síðan hefur fjarað
undan okkur í þeim seinni
þegar lykilmenn
þreytast.
Ívar Ásgrímsson
landsliðsþjálfari
Handbolti Selfoss mætir Azoty-
Puławy í Póllandi í fyrri leik liðanna
í 3. umferð EHF-bikars karla í dag.
Seinni leikurinn fer fram á Selfossi
eftir viku, laugardaginn 24. nóvem-
ber. Sigurvegari einvígisins tryggir
sér sæti í riðlakeppni EHF-bikarsins.
Azoty-Puławy er í 3. sæti pólsku
úrvalsdeildarinnar með 24 stig, níu
stigum á eftir toppliði Vive Kielce.
Azoty-Puławy komst í riðlakeppni
EHF-bikarsins á síðasta tímabili.
Pólska liðið lenti í 3. sæti síns riðils
með fjögur stig. Þjálfari Azoty-
Puławy er Bartosz Jurecki, sem lék
lengi á línunni í pólska landsliðinu,
m.a. á HM 2007 þar sem Pólverjar
fengu silfur. Bogdan Kowalczyk,
fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands,
þjálfaði Azoty-Puławy um tíma.
Selfoss sló Klaipeda Dragunas frá
Litháen út í 1. umferð EHF-bikars-
ins, samanlagt 60-55, og í 2. umferð-
inni unnu Selfyssingar slóvenska
liðið Riko Ribnica, samanlagt 59-56.
Selfoss er í 2. sæti Olís-deildarinnar
eftir átta umferðir en liðið tapaði
sínum fyrsta leik fyrir Haukum á
mánudaginn var. – iþs
Erfitt verkefni
bíður í Póllandi
Árni Steinn er í lykilhlutverki í liði
Selfyssinga. Fréttablaðið/Ernir
fótbolti Svava Rós Guðmunds dótt-
ir, sem lék með norska liðinu Röa á
síðustu leiktíð, og Þórdís Hrönn
Sigfúsdóttir, sem leikið hefur með
Stjörnunni síðustu ár, hafa skrifað
undir samning við sænska úr vals-
deild arliðið Kristianstad.
Það var Kristianstads bla det sem
greindi frá þessu í gærkvöldi. Þar
verða þær liðsfélagar Sifjar Atladótt-
ur, sem varð í öðru til þriðja sæti í
vali á leikmanni ársins fyrir síðustu
leiktíð, og leika undir stjórn Elísa-
betar Gunn ars dótt ur. Kristianstad
náði sín um besta ár angri frá upp hafi
á nýliðnu tíma bili, en liðið endaði í
fjórða sæti deildarinnar. – hó
Svava og Þórdís
til Kristianstad
fótbolti Fresturinn til að sækja um
starf yfirmanns knattspyrnumála
hjá KSÍ rann út á fimmtudaginn.
Að sögn Klöru Bjartmarz, fram-
kvæmdastjóra KSÍ, sóttu nokkrir
um stöðuna. „Umsóknirnar voru
nokkrar. Við eigum eftir að fara yfir
þær,“ sagði Klara við Fréttablaðið.
Að sögn Klöru hefur KSÍ ekki sett
sér neinn tímaramma hvað ráðn-
inguna varðar. „Í sjálfu sér ekki.
Við gefum okkur góðan tíma til að
skoða þetta mál,“ sagði Klara. Hún
segir erfitt að leggja mat á hvort
umsóknirnar hafi verið margar eða
fáar enda hafi KSÍ rennt svolítið
blint í sjóinn þegar staða yfirmanns
knattspyrnumála var auglýst.
„Við höfum aldrei auglýst þessa
stöðu áður og vissum ekki út í hvað
við vorum að fara. Menntunarkröf-
urnar eru miklar og ekki margir sem
uppfylla þær,“ segir Klara. – iþs
Nokkrir hafa
sótt um stöðuna
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 l a u G a r d a G u r18 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-6
8
2
4
2
1
6
A
-6
6
E
8
2
1
6
A
-6
5
A
C
2
1
6
A
-6
4
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K