Fréttablaðið - 17.11.2018, Side 89
SAMTÖK SYKURSJÚKRA
SYKURSÝKI = GOTT LÍF
17. nóv 2018, í tilefni af alþjóðadegi sykursjúkra - á HOTEL REYKJAVIK NATURA
KL. 12:30-16:00, VÖRUKYNNINGAR
ICEPHARMA
MEDOR
HEILSUBORG
INTER MEDICA
SJÖAN SPORTVÖRUR
MEDILYNC
ARTASAN
HEILSUFARSMÆLINGAR Á VEGUM VERKEFNISINS
„LÍF OG HEILSA“, sem er samstarfsverkefni Samtaka sykursjúkra, SÍBS,
Hjartaheilla og Samtaka lungnasjúklinga
Kl. 13:00-15:00, MÁLÞING
Stuðningsnet sjúklingafélaganna – Helga Kolbeinsdóttir, félagsráðgjafi
Göngudeild sykursjúkra barna og unglinga – Ragnar Bjarnason, yfirlæknir
Stóra myndin í heilbrigðismálum – Guðmundur Löve, frkvstj SÍBS
Tækni og tækniþróun í meðferð sykursýki – Steinunn Arnardóttir,
sérfræðingur á LSH
Kaffiveitingar
Fullveldisárið 1918 var sannarlega sögulegt ár með heimsstyrjöld, frosthörkum, eldgosi og bráðsmitandi plágu sem geisaði um
heiminn. Árið hófst á ógnarkulda og voru flóar og firðir svo ísilagðir að
meira að segja hvalir og selir festust í vökum. Talið er að 27 ísbirnir
hafi gengið á land en ekki varð manntjón af þeirra völdum þetta ár.
Fuglar, fé og hross frusu í hel og hafís fyllti hverja höfn í 3-4 vikur.
Veturinn 1917-1918 hefur verið kallaður frostaveturinn mikli en nafnið
er fyrst og fremst til komið vegna kuldans í janúar sem var kaldasti
mánuður 20. aldarinnar.
Við birtum margvíslegan
fróðleik um fullveldisárið 1918
á jólafernunum í ár.
Lestu meira á fullveldi1918.is
FROSTAVETURINN MIKLI
100 ÁRA FULLVELDI ÍSLANDS
FAGNAÐ Á JÓLAFERNUM MS
Bækur
rotturnar
ragnheiður Eyjólfsdóttir
Útgefandi: Vaka-Helgafell
blaðsíður: 273
Rotturnar er þriðja skáldsaga Ragnheiðar Eyjólfsdóttur. Fyrri tvær sögurnar eru samtengdar fantasíu-sögur sem hefjast í
raunheimum og færast svo yfir í
framandi veröld og í raun má segja
það sama um þessa bók þó svo á allt
annan hátt sé.
Bókin hefst á því að Hildisif sex-
tán ára er að flytjast heim til Íslands
með fjölskyldu sinni eftir að hafa
búið erlendis um árabil. Það er
vor og henni hefur boðist sumar-
vinna á afskekktum stað á vegum
sama fyrirtækis og réð móður
hennar í vinnu sem var ástæða
þess að fjölskyldan flutti heim
til Íslands. Þegar í sumarvinnuna
er komið kynnist hún Flexa og
fleiri krökkum og af stað fer hröð
og spennandi atburðarás sem
verður til þess að að lokum þarf
Hildisif ásamt félögum sínum að
berjast fyrir lífi sínu í bókstaflegri
merkingu og á ýmsum vígstöðvum
ásamt því að upplifa ástina kvikna.
Til að eyðileggja ekki fyrir vænt-
anlegum lesendum skal söguþráð-
urinn ekki rakinn frekar hér en þó
skal látið uppi að dularfullir áverkar
og útdauðar drepsóttir koma við
sögu. Margar óvæntar beygjur og
hlykkir á söguþræðinum verða
til þess að lesendur eru stöðugt á
tánum og tilbúnir að hrökkva í kút.
Unnendur spennutrylla og vís-
indaskáldsagna ættu að fagna þess-
ari bók ákaft því hún er skemmti-
lega skrifuð og haganlega fléttuð.
Persónusköpunin er góð og sam-
töl raunveruleg og vel farið með
vísanir enda augljóst að höfundur
hefur lagt sig fram við að hafa bæði
vísindalegar og sagnfræðilegar stað-
reyndir á hreinu við skrif bókar-
innar.
Einnig má finna ákveðnar heim-
spekilegar og jafnvel
trúarlegar pælingar í bókinni, sem
tengjast voninni og því hvernig það
að vona getur haft áhrif á andlega og
jafnvel líkamlega heilsu, hvernig og
hvort er hægt að gera út af við von-
ina og hvaða máli það skiptir að
halda í hana. Það hefði reyndar
alveg mátt gera meira úr þeim þætti
fyrst komið var með hann inn í
söguna á annað borð þar sem hann
fjarar eiginlega út eftir að hafa
komið sterkur inn um miðbik
bókar.
Það er ástæða til þess að benda
á að þó fyrri tvær skáldsögur höf-
undar geti talist barnabækur þá
fellur þessi tvímælalaust í flokk-
inn ungmennabók þar sem má
finna í henni óhugnanlega spretti
og grafískar ofbeldislýsingar og
yrði kvikmynd gerð sem fylgdi
bókinni vel eftir, sem væri
reyndar mjög góð hugmynd því
framvindunni er oft mjög vel
myndlýst, væri sú mynd nokkuð
örugglega bönnuð innan sex-
tán.
Rotturnar er skemmtileg
aflestrar, spennandi og vel
skrifuð og gæti vel haldið lesendum
að verki langt fram yfir háttatíma.
Brynhildur Björnsdóttir
Niðurstaða: Vel skrifaður, hagan-
lega fléttaður og nokkuð óhugnanlegur
vísindaspennutryllir.
Unglingar, dauði og drepsóttir
Ragnheiður Eyjólfsdóttir rithöfundur.
m E N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 45L a u g a r D a g u r 1 7 . N ó v E m B E r 2 0 1 8
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-5
9
5
4
2
1
6
A
-5
8
1
8
2
1
6
A
-5
6
D
C
2
1
6
A
-5
5
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K