Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 30
Ný skáldsaga Þór-dísar Gísladóttur, rithöfundar og þýð-anda, Horfið ekki í ljósið, hefur hlotið góðar viðtökur. Í skáldsögunni leikur hún sér að því að flétta raunverulegum atburðum og persónum við skáldaða atburði. Blaðamaður sem hefur nýlokið lestri á bókinni getur ekki á sér setið. Fannst þessi beinagrind í alvörunni í Hafnarfirði? Og þessi njósnari? Þessar mögnuðu konur? Hvernig eiginlega? … Þórdís brosir og gefur ekkert upp. „Nei, ég get ekki svarað þessari spurningu um beinagrindina. En ég get sagt þér að þegar ég var að skrifa þessa sögu þá var það leikur hjá mér að fá lesandann til að trúa henni. Ég nota umhverfið sem ég ólst upp í, Hafnarfjörð rétt við klaustrið og  Reykjavík líka. Sögusviðið er níundi áratugurinn og raunveru- legar persónur og atburðir fléttast inn í framvinduna.“ Skáldsagan Horfið ekki í ljósið. Þetta er ekki glæpasaga, ekki ástar- saga. En þarna er ráðgáta sem er leyst í lokin? „Það stendur á kápunni að hún fjalli um svefnleysi, kjarnorkuvá og beinagrind sem leynist. Og það gerir hún bókstaflega. En svo eru margir aðrir þræðir í sögunni. Hún fjallar til dæmis líka um bækur sem aðalsögu- hetjan er að lesa og rifjar upp. Hvern- ig þær hafa áhrif á hana og hugsanir hennar. Þá er ákveðið þema undir- liggjandi um hvernig fólk gerir ekki það sem því er best. Og þaðan kemur heiti sögunnar; Horfið ekki í ljósið. Fólk sem horfir á kjarnorkuspreng- ingu. Breytir það einhverju? Skiptir það einhverju máli hvort maður er ofan í kjallara eða horfir á hana.“ Þórdís hefur sinnt ritstörfum um langa hríð en fyrsta ritverk sitt. Leyndarmál annarra, gaf hún út árið 2010 og hlaut fyrir handritið að því Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar. Þá hefur hún þrisvar sinnum verið tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þú ert augljóslega á réttri hillu, hvernig byrjaði þetta allt saman? „Já, það er rétt. Fyrsta bókin mín kom ekki út fyrr en ég var orðin 45 ára. Ég vann áður í fimm ár sem verkefnastjóri hjá Háskóla Íslands. Mér fannst ég ekki góð í því. Ég var alltaf að gera eitthvað til hliðar, var í alls kyns verkefnum tengdum rit- störfum. Ég hugsaði oft, æi af hverju er ég að þessu? Life is a bitch and then you die! Ég ákvað að segja upp. Hætta bara í vinnunni,“ segir Þórdís frá og segir samstarfsfélaga sína í háskól- anum varla hafa trúað því. „Enda gott starf. Og frábærir félagar,“ segir hún. „Ég vann á auglýsingastofu um tíma. Vann í ýmsum verkefnum fyrir ráðuneyti og svo fór ég að þýða glæpasögur fyrir Forlagið. Ég þýddi verk Hennings Mankell sem er einn af mínum uppáhaldshöfundum. En eftir þrjár bækur var ég reyndar búin að fá nóg, glæpasögur eru eftir ákveðinni forskrift. Ég þýddi líka skemmtilegar chick-lit  bækur. En árið 2010 var ég í ákveðnu millibils- ástandi. Ég var bara frekar blönk. Ég sá auglýst bókmenntaverðlaun Tóm- asar Guðmundssonar. Ég hafði lengi skrifað blogg og átti efni til sem voru nokkurs konar prósar. Ég tók til efni og sendi inn. Þetta var lítil bók,“ segir Þórdís en hún á við sína fyrstu ljóða- bók, Leyndarmál annarra. „Svo gleymdi ég þessu bara, það liðu einhverjir mánuðir og þá var mér tilkynnt að verkið hefði verið valið. Ég fékk útgefanda og allt var sett í gang. Svo fór boltinn að rúlla,“ segir Þórdís frá. Og hvernig er líf rithöfundarins? „Það er besta lífið. Þetta eru for- réttindi. Ég sé ekki eftir þessari ákvörðun,“ segir Þórdís sem segir þó að hún geti vel hugsað sér að gera eitthvað annað. „Ef enginn læsi bækurnar sem ég skrifa þá sé ég fyrir mér að ég gæti unnið í blómabúð,“ segir hún, Hvernig líst þér svo á að vera í jóla- bókaflóðinu? Boltinn fór að rúlla Þórdís Gísladóttir um líf sitt sem rithöfundur og ýmsar ráðgátur í nýrri skáldsögu sinni, Horfið ekki í ljósið. Fréttablaðið birtir brot úr skáldsögunni þar sem njósnarinn Karin Lannby kemur við sögu. „Ég sé ekki eftir þessari ákvörðun,“ segir Þórdís um það þegar hún ákvað að leggja fyrir sig ritstörf. FrÉttablaðið/Ernir Jólabækurnar 2018 „Mér finnst það skemmtilegt. Stundum óska ég þess reyndar að markaðurinn verði meira en gjafa- markaður og að fólk kaupi sér bækur í auknum mæli. En kannski er fólk farið að gera það. En mér finnst full- orðið fólk stundum nískt. Fólk tímir að kaupa sér nýjustu Dan Brown bókina en ekki góða barnabók eða vandaða ljóðabók.  Auðvitað eru þetta peningar ef fólk á þá ekki til, en bækur fylgja börnum fram á full- orðinsár. Þær hitta mann og lifa með manni,“ segir Þórdís. Henni stendur málaflokkurinn nærri því Þórdís skrifar jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna. Þekktar eru barnabækur hennar um Randalínu og Munda. „Fullorðna fólkið er alltaf að ýta að krökkum bókum sem það las sjálft. Skólaljóðum og Gagn og gaman, af því að það telur það gera þeim gott. En þau hafa engan áhuga á þessum bókum og það eru bara til miklu betri bækur. Þau vilja lesa fantasíubók- menntir eða eitthvað úr sínum eigin samtíma,“ segir Þórdís sem hefur skrifað unglingabækur í samstarfi við Hildi Knútsdóttur, Doddi, bók sann- leikans og Doddi, ekkert rugl. „Bækurnar okkar Hildar um Dodda eru nú þegar orðnar úreltar. Í fyrstu bókinni kom Almar í kass- anum við sögu. Í annarri Panama- skjölin. En það er bara allt í lagi. Við skrifum bara fleiri bækur,“ segir hún. kristjana@frettabladid.is Úr 11. kafla Horfið ekki í ljósið Þegar sænski leikstjórinn og rithöf- undurinn Ingmar Bergman var rúm- lega tvítugur bjó hann um tíma með konu sem var örlítið eldri og töluvert veraldarvanari en hann. Konan hét Karin Lannby. Henni kynntist hann í listamannakreðsum ungs fólks í Stokkhólmi. Karin og Ingmar bjuggu saman í pínulítilli íbúðarkompu. Þau sváfu á dýnum á gólfinu og áttu bara eitt lítið borð og tvo stóla. Í íbúðinni var einn lítill vaskur og þau elduðu matinn sinn inni í skáp. Um Karin Lannby hefur verið skrifuð bók með undirtitilinn Ing- mar Bergmans Mata Hari. Þessi kona átti fremur stutt stopp í lífi Ingmars, en það þarf auðvitað ekki að þýða að það hafi ekki verið áhrifaríkt. Fólk sem við höfum skammvinn kynni af getur haft mikil áhrif á okkur. Auk þess að sinna ýmsum öðrum störfum var Karin Lannby skáld. Tvítug gaf hún út ljóðabók með titilinn Canto Jundo, með ljóðum sem ort voru undir flamenco-áhrifum. Bókin fékk töluvert hrós, meðal annars frá aka- demíupáfanum Arthur Lundqvist. Seinna kom í ljós að Karin hafði stundað njósnir og hún þótti, og þykir enn, býsna dularfull mann- eskja. Hún var hæfileikarík leikkona og átti auðvelt með að tileinka sér tungumál, það notaði hún óspart í störfum sínum. Bergman sagði um Karin. sem hann kallar Mariu, í endurminningum sínum að hún hafi verið óútskýranleg og dular- full gáta: „Hún sinnti kynferðislegu hungri mínu, opnaði dyr og hleypti út brjálæðingi.“ Ingmar og Karin settu upp barna- leikrit í nýju leikhúsi í Stokkhólmi og hún lék stórt hlutverk í Pelikan- anum eftir August Strindberg, undir leikstjórn Ingmars, í stúdentaleik- húsi borgarinnar. Þrátt fyrir ástina mun þeim hafa komið skelfilega illa saman, þau hentu lausamunum í hvort annað og sambúð þeirra lauk með miklum brothljóðum og hurða- skellum. Karin Lannby starfaði meðal ann- ars sem njósnari fyrir Svía og notaði þá dulnefnið Annette. Á opnum vef sænsku lögreglunnar á internetinu má finna umtalsvert magn af njósna- gögnum sem komin eru frá henni, hátt í tvö þúsund síður af skjölum. Hún njósnaði um Bergman-fjöl- skylduna og skrifaði í skýrslu að Ingmar Bergman, sonur prestsins í Hedvig Eleonora-kirkjunni í Stokk- hólmi, væri gjörsamlega hættulaus maður sem algjör óþarfi væri að beina sjónum að. Karin Lannby flutti síðar til Par- ísar þar sem hún skipti um nafn. Hún lék í þó nokkrum bíómyndum og starfaði einnig við þýðingar og blaðamennsku. Sem blaðakonu tókst henni meðal annars að fá að taka viðtal við goðsagnakenndan bandít og útlaga sem hefur verið líkt við Hróa hött, Salvatore Giuliano, sem ítalska herlögreglan hundelti í fjöllum á Sikiley. Þetta þótti mikið afrek hjá henni, sem leiddi reyndar til þess að hún var handtekin og vísað frá Ítalíu. Þegar Karin nálgaðist miðjan aldur snerist hún til kaþólskrar trúar og hóf sambúð með presti sem gerði uppreisn gegn tréhestunum í Vatíkaninu. Hún leyndi skrautlegri fortíð sinni. Á níunda áratug síðustu aldar varð hún þekkt sem herskár talsmaður Gráu pardusanna, sam- taka sem börðust fyrir bættum kjörum og réttindum aldraðra í París. Eftir stríð sneri hún aldrei aftur til Svíþjóðar. Hins vegar kom hún nokkrum sinnum til Íslands. Á Íslandi kannaðist auðvitað enginn við hana, fortíð hennar var algjör- lega óþekkt. Karin Lannby, sem þá hafði fyrir löngu tekið upp nafnið Maria Cyliakus, lést í París árið 2007 á tíræðisaldri. * Það eru aðeins nokkrir mánuðir síðan ég áttaði mig á að ég hefði oft hitt ástkonu Ingmars Bergmans sem einnig var leikkona, skáld, þýðandi og njósnari. Það var þegar ég las bók um sambönd Ingmars Berg- mans við konur. Bókin er í sjálfu sér ekki sérlega merkilegt rit en í henni er mynd af Karin Lannby á yngri árum og svipurinn er svo sterkur að ég þekkti strax Maríu Karin, vinkonu hennar ömmu sem bjó í París og kom að minnsta kosti þrisvar í heimsókn og gisti þá hjá ömmu. Barbara amma mín kom, sem fyrr segir, siglandi til Íslands frá Þýskalandi haustið 1930. Eins og þá tíðkaðist birtu dagblöðin skipafréttir með nöfnum farþega um borð. Í blaðafrétt, þar sem farþegar sem eru nýkomnir til landsins með Goða- fossi eru taldir upp, er nafn ömmu og annarra farþega. Samskipa ömmu á leið til Íslands voru til dæmis Jón Þorláksson verkfræðingur, Haraldur Árnason kaupmaður, Björn Björns- son hirðbakari, H. Linz, frú B. Adams, frú Katrín Viðar, frk. Didda Ólafsson, frk. Ásta Norðmann, C. R. Schubert og Þórður Kristleifsson söngkennari. Þó nokkrir fleiri farþegar eru nefndir í blaðinu og eitt nafnanna sem talin eru upp er K. Lannby. 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 7 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 A -7 6 F 4 2 1 6 A -7 5 B 8 2 1 6 A -7 4 7 C 2 1 6 A -7 3 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.