Fréttablaðið - 17.11.2018, Qupperneq 81
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, afa og langafa,
Ólafs Páls Lind Egilssonar
bónda á Hundastapa.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar
í Borgarnesi fyrir einstaklega góða
umönnun og nærgætni.
Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir
Sigurbjörg Ólafsdóttir
Guðmundur Ólafsson
Hrafnhildur Ólafsdóttir
Hanna Kristín Lind Ólafsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Margrét Helga Pétursdóttir
Garðatorgi 4a, Garðabæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar
á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 12. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Garðakirkju í Garðabæ,
miðvikudaginn 21. nóvember kl. 15.00.
Hannes Grétar Helgason
Ragnar Pétur Hannesson Margrét Sigurbjörnsdóttir
Bryndís Helga Hannesdóttir Eggert Guðjónsson
Fríður Sólveig Hannesdóttir Ragnar Valur Björgvinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Víglundur Þorsteinsson
lést mánudaginn 12. nóvember.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju
miðvikudaginn 21. nóvember
kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Minningarsjóð líknardeildar og
heimahlynningar Landspítalans.
Kristín María Thorarensen
Jón Þór Víglundsson Birna Ósk Björnsdóttir
Þorsteinn Víglundsson Lilja Karlsdóttir
Björn Víglundsson Helga Árnadóttir
Axel Örn Ársælsson Sigríður Sveinsdóttir
Ásdís María Thorarensen Þröstur Þórhallsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Margrét Bragadóttir
Stóra-Hrauni,
andaðist í Brákarhlíð, Borgarnesi,
þriðjudaginn 13. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Kolbeinsstaðakirkju
laugardaginn 24. nóvember kl. 14. Sérstakar þakkir til
starfsfólks Brákarhlíðar fyrir góða umönnun og hlýju.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Minningarsjóð
Brákarhlíðar, sjá heimasíðu: www.brakarhlid.is.
Kristján Arilíusson
Bragi Einarsson Guðrún F. Stefánsdóttir
Grétar Miller Gunnlaug Björnsdóttir
Arilíus Kristjánsson, Anna Elsa Eggertsdóttir
Kristín H. Kristjánsdóttir
Jón Þór Kristjánsson Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haukur Sveinbjarnarson
Löngulínu 2a, Garðabæ,
andaðist á sjúkrahúsinu á Akranesi
31. október. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Landakots og
hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi fyrir
einstaka umönnun. Þeim sem vildu minnast hans
er bent á Barnaspítala Hringsins.
Anna Jóna Hauksdóttir Matthías Ottósson
Sveinbjörn Grétar Hauksson
Snorri Hauksson
Sigríður Hauksdóttir Anton Pétur Þorsteinsson
Haukur Hauksson Thi Uyen Le
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og jarðarför
sambýliskonu minnar, móður,
ömmu og langömmu,
Birnu Óskar Björnsdóttur
Ingvar Óskarsson
Helena Valtýsdóttir
Vala Valtýsdóttir Gísli Óskarsson
Valtýr Björn Valtýsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar eiginkonu minnar, móður,
dóttur, systur og mágkonu,
Elínar Helgu Hannesdóttur
Tjarnalundi 11c,
Akureyri.
Eðvarð Þór Eðvarðsson
Anton Gauti og Guðrún Edda
Hannes Haraldsson Guðrún Guðmundsdóttir
Haraldur Örn Hannesson Björk Birkisdóttir
Guðmundur Heiðar Hannesson Herdís Arnórsdóttir
Gauti Már Hannesson Brynja Eysteinsdóttir
Sverrir Hannesson
Hannes Rúnar Hannesson Vilborg Einarsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jón Örvar Skagfjörð
Dunhaga 17,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund,
þriðjudaginn 30. október.
Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 20. nóvember
klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Grundar fyrir góða umönnun.
Guðfinna Alda Skagfjörð Björgvin Gylfi Snorrason
Gísli Skagfjörð
Karen Lilja Björgvinsdóttir Christian Parisot Guterres
Eva Björk Björgvinsdóttir Anders S. R. Ødum
Tao Lilja og Soul Lilja
Okkar innilegustu þakkir færum
við öllum þeim sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug vegna
fráfalls okkar ástkæra föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Þórólfs Guðnasonar
Lundi, Fnjóskadal.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
öldrunarheimilinu Hlíð, Akureyri, fyrir hlýja
og góða umönnun.
Guðni Þórólfsson Aðalheiður Pétursdóttir
Aðalbjörg Þórólfsdóttir Guðlaugur Óli Þorláksson
Ólafur Haukur Þórólfsson
Sigríður Þórólfsdóttir Pétur Gunnar Ringsted
Jón Þórólfsson Hólmfríður Rúnarsdóttir
afa- og langafabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurpáll Árnason
kaupmaður og bóndi,
frá Lundi í Varmahlíð,
lést að hjúkrunarheimilinu Boðaþingi
þann 12. nóvember 2018.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju,
mánudaginn 19. nóvember kl. 13.00.
Kristján Páll Sigurpálsson Sigríður Halldórsdóttir
Sigurbjörg Sigurpálsdóttir Sigvaldi Þorgilsson
Kolbrún Sigurpálsdóttir Freysteinn Sigurðsson
Sigurlaug Sigurpálsdóttir Sigurjón P. Stefánsson
Árni Baldvin Sigurpálsson Harpa Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
vegna andláts og útfarar bróður okkar,
mágs, frænda og vinar,
Karls Þórhalla Haraldssonar
Breiðabólsstað, Ölfusi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
lyflækningadeildar Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands, Selfossi, fyrir umönnunina á síðustu
ævistundum hans.
F.h. aðstandenda,
Hallfríður Ólöf Haraldsdóttir og Pétur Ottósson
Það voru prúð og frjálsleg börn sem stigu, eitt af öðru, á svið Norðurljósasalar Hörpu í gær, að taka við Íslenskuverðlaun-um unga fólksins. Þau eru öll
nemendur í grunnskólum Reykjavíkur
enda eru verðlaunin veitt á vegum skóla-
og frístundaráðs í samstarfi við Reykja-
vík bókmenntaborg UNESCO.
Gaman var að heyra vitnisburðina
sem börnin fengu. Þau fengu verð-
launin fyrir „að sinna lestri af miklum
áhuga“, „að skrifa sögur og vanda mál
sitt á hverjum degi“, „gott vald á íslenskri
tungu, skapandi skrif og mikla hæfileika
í framsögn“, „ríkulegan orðaforða, góðan
mál- og lesskilning“ og „þrautseigju
og metnað við að ná góðum tökum á
íslensku á skömmum tíma og færni í
tjáningu í ræðu og riti“. Svo örfá dæmi
séu tekin.
Vigdís forseti er verndari verðlaun-
anna. Hún rétti nemendunum undir-
ritað viðurkenningarskjal og bókina
Ljóðaúrval með ljóðum Jónasar Hall-
grímssonar í samantekt Böðvars Guð-
mundssonar, ásamt bókamerki frá bók-
menntaborginni.
Samkoman í Hörpu var skreytt tón-
listaratriðum og að sjálfsögðu var sungið
á íslensku. Söngur Dimmalimm eftir Atla
Heimi Sveinsson var fluttur af stúlkna-
hóp úr Söngskóla Sigurðar Demetz og
Orðin mín eftir Braga Valdimar Skúla-
son voru sungin af stúlkum úr 5. og 6.
bekk Laugarnesskóla. Lokalagið sungu
allir salargestir saman – Á íslensku má
alltaf finna svar.
gun@frettabladid.is
Verndarar íslenskunnar
Frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti lestrarhestum, upplesurum og öðrum málsnilling-
um í reykvískum skólum Íslenskuverðlaun unga fólksins í gær, á degi íslenskrar tungu.
4. bekkur Árbæjarskóla fékk verðlaun fyrir verkefnið Hafhjálp þar sem þau beittu tungumálinu óspart. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 37L a U G a R D a G U R 1 7 . n ó v e m B e R 2 0 1 8
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-A
3
6
4
2
1
6
A
-A
2
2
8
2
1
6
A
-A
0
E
C
2
1
6
A
-9
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K