Fréttablaðið - 16.11.2018, Síða 4
Veður
Gengur í suðaustan hvassviðri eða
storm með rigningu. Hríðarveður til
fjalla á Vestfjörðum í kvöld. Lygnara
og þurrt á NA-verðu landinu.
sjá síðu 22
Keðjusöngur við Háteigsskóla
Nemendur og starfsfólk Háteigsskóla fögnuðu í gær fimmtíu ára afmæli skólans
með því að umkringja bygginguna og syngja saman afmælissönginn. Keðjusöngur-
inn ómaði svo fagur um hverfið að eftirtekt vakti. Fréttablaðið/Ernir
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
Opið virka daga kl. 11-18
LED Laser ljóskastari
Varpar jólaljósum á húsið
SEMKO gæðavottun
Skynjari sem slekkur
á Laser ef farið er of
nálægt - Fjarstýring
www.grillbudin.is
Hágæða jólaljós
frá Svíþjóð
LED
Opið virka daga kl. 11-18
fornminjar „Það var engin beina-
grind, heldur bara kistuleifar,“ segir
Vala Garðarsdóttir fornleifafræð-
ingur um fréttir af líkkistufundi með
beinagrind á Landsímareitnum.
Að sögn Jóhannesar Stefánssonar,
framkvæmdastjóra Lindarvatns
ehf., fundust viðarbútar vestan við
Landsímahúsið, í kverkinni upp við
Aðalstræti 11 þar sem Landsbankinn
var áður í viðbyggingu frá 1967. Þar
undir er mikið af ýmsum lögnum,
meðal annars ljósleiðari sem þurfti
að fjarlægja vegna jarðvegsskipta og
steypuvinnu sem er að fara í gang.
„Þar undir komu í ljós viðar-
brot og þá stoppuðum við gröfuna,
hringdum í Minjastofnun og sögð-
umst hafa fundið mögulegar minj-
ar,“ segir Jóhannes. Minjastofnun
stöðvaði síðan framkvæmdir á
þessum afmarkaða bletti á bygg-
ingarreitnum.
Minjastofnun fól Völu Garðars-
dóttur fornleifafræðingi, sem stýrði
minjauppgreftri í Víkurgarði, að
kanna málið. Vala segir ekki rétt sem
fram hafi komið í Morgunblaðinu
að fundist hafi kista og beinagrind
undir Landsímahúsinu. „Það var ekki
það sem gerðist heldur fundum við
kistubrot í lagnaskurði,“ segir Vala.
Engin bein hafi fundist.
„Við mælum upp, teiknum, ljós-
myndum og skráum og mokum
svo yfir því þetta er náttúrlega ekki
á framkvæmdasvæðinu heldur var
bara verið að skipta um lagnir og
setja í hólka,“ segir Vala. Aðspurð
segist hún telja kistuna vera frá sautj-
ándu eða átjándu öld.
Fyrir átta dögum vísaði úrskurðar-
nefnd umhverfis- og auðlindamála
frá kæru sóknarnefndar Dómkirkj-
unnar vegna byggingarleyfis sem
byggingarfulltrúinn í Reykjavík veitti
í maí fyrir áformaðri hótelbyggingu á
Landsímareitnum. Í september hafði
úrskurðarnefndin vísað frá sambæri-
legri kæru félagsins Kvosarinnar,
sem er félagsskapur hóps sem einn-
ig hefur kallað sig Varðmenn Víkur-
garðs. Báðum kærunum var vísað frá
nefndinni þar sem þessir kærendur
eru ekki taldir eiga aðild að málinu.
Sóknarnefndin taldi sig eiga
aðild að málinu, meðal annars þar
sem Dómkirkjan hefði eignar- og
umráðarétt yfir landi Víkurgarðs.
„Hinn 15. ágúst 2018 var móttekið
til þinglýsingar skjal undirritað af
ráðherra Íslands, dags. 21. október
1904. Kunngjörir ráðherra þar að
Reykjavíkurkaupstað sé afsöluð lóð
kirkjugarðs í Reykjavík er lagður
hefði verið niður á árinu 1837. Var
skjalið fært inn í þinglýsingarbækur
6. september 2018. Getur sóknar-
nefnd Dómkirkjunnar því ekki byggt
aðild sína á eignar- og umráðarétti
yfir Víkurgarði,“ segir úrskurðar-
nefndin meðal annars.
gar@frettabladid.is
Kistubrot fundust við
ljósleiðara í Víkurgarði
Minjastofnun stöðvaði í fyrradag framkvæmdir á Landsímareitnum eftir að
viðir úr líkkistu fundust við uppgröft. Fornleifafræðingur skráir og ljósmyndar
kistubrotin. Engin bein fundust. Mokað verður yfir staðinn eftir skráningu.
Kistuleifar fundust í kverkinni vestan landsímahússins, í norðausturhorni
Víkurgarðs og bíða skráningar undir plasthlífum. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Við mælum upp,
teiknum, ljósmynd-
um og skráum og mokum
svo yfir því þetta er náttúr-
lega ekki á
framkvæmda-
svæðinu.
Vala Garðarsdóttir
fornleifafræðingur
Fleiri myndir frá viðburðinum er að finna á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PlúS
rússland Mannréttindadómstóll
Evrópu sakfelldi Rússa í gær fyrir
að hafa brotið á réttindum stjórnar-
andstæðingsins Alexej Navalníj
með því að handtaka hann sam-
tals sjö sinnum árin 2012 og 2014.
Í hinum einróma dómi segir að í
tveimur tilfellum hafi skort raun-
verulegan tilgang með handtöku
og að hinar fimm hafi verið ónauð-
synlegar í lýðræðisríki.
„Þetta er í fyrsta skipti í fjórtán
ár sem Rússar eru sakfelldir fyrir
pólitískar ofsóknir og dagurinn er
því svo sannarlega sögulegur,“ tísti
Navalníj. – þea
Skellur fyrir
Rússa hjá MDE
samfÉlaG Hundruð kvenna lán-
uðu andlit sitt til stuðnings nýrri
stjórnar skrá og fóru viðbrögðin fram
úr björtustu vonum.
„Við settum auglýsingu eftir and-
litum inn á hópinn og áttum kannski
von á einhverjum tuttugu til fjörutíu
andlitum. Þegar ég vaknaði [í gær-
morgun] höfðu 500 skráð sig og svo
bættust hundrað við yfir daginn,“
segir Katrín Oddsdóttir lögmaður.
Katrín var ein þeirra 25 sem skip-
uðu stjórnlagaráð sem skilaði af sér
frumvarpi að nýjum stjórnskipunar-
lögum árið 2012 en það náði ekki
fram að ganga. Reglulega er kallað
eftir nýju stjórnarskránni.
„Þetta eru konur á öllum aldri og
öllum stigum þjóðfélagsins. Sumar
eru trans, sumar eru fatlaðar og
þarna eru forstjórar, lögfræðingar,
leikkonur. Í raun eru þarna konur
alls staðar frá. „Like“ á Facebook er
eitt og undirskrift er annað en þegar
maður sér öll þessi andlit saman
komin þá verður þetta allt miklu
meira,“ segir Katrín.
Andlitasöfnunin fer fram í Facebo-
ok-hópnum Samtök kvenna um
nýja stjórnarskrá sem í eru ríflega
2.300 konur. Markmiðið var að setja
saman auglýsingu til birtingar á full-
veldisafmælinu 1. desember.
„Við erum eiginlega pínu dol-
fallnar yfir viðbrögðunum. Gallinn
er hins vegar sá að undirtektirnar
eru slíkar að það verður erfiðleikum
háð að koma þessu fyrir í heil-
síðuauglýsingu. En við munum finna
lausn á því svo allar komist fyrir,“
segir Katrín. – jóe
600 andlit að
láni á sólarhring
Katrín Oddsdóttir. Fréttablaðið/StEFán
alexej navalníj
stjórnarand-
stæðingur.
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 f Ö s T u d a G u r2 f r É T T i r ∙ f r É T T a b l a ð i ð
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
9
-1
7
2
8
2
1
6
9
-1
5
E
C
2
1
6
9
-1
4
B
0
2
1
6
9
-1
3
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K