Fréttablaðið - 16.11.2018, Side 10
Hreinar hendur
með nýjum Voltaren Gel
nuddhaus
3. BERA Á1. RJÚFA 2. TOGA
NÝTT
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og
fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Voltaren SmartTube 5x10 ICE.indd 1 03/10/2018 10:03
Tækni Vandræði bandaríska tækni
fyrirtækisins Snap, sem einna helst
er þekkt fyrir rekstur samfélags
miðilsins Snapchat, halda áfram að
hrannast upp. Notendum fækkar,
fjárhagurinn er í ólestri og málaferli
yfirvofandi.
Helstu tíðindi vikunnar eru þau
að Verðbréfaeftirlit Bandaríkjanna
(SEC) hefur stefnt Snap um gögn
er varða frumútboð fyrirtækisins
sem fór fram í kauphöllinni í New
York fyrra. Reuters greindi frá mál
inu og setti í samhengi við málsókn
ósáttra hluthafa sem halda því fram
að Snap hafi leynt mikilvægum upp
lýsingum í aðdraganda útboðsins.
Snap á til dæmis að hafa leynt
því hversu mikið samkeppnin
við Instagram skaðaði vöxt fyrir
tækisins og því að fyrrverandi
starfsmaður hefði höfðað mál gegn
fyrirtækinu vegna meintrar rangrar
upplýsingagjafar um fjölda notenda.
Það mál fer fyrir gerðardóm í apríl.
Snap sagði, í svari við fyrirspurn
Reuters, að fyrirtækið telji að rann
sakendur verðbréfaeftirlitsins séu
að skoða mál tengd málsókn hlut
hafanna. „Þótt við vitum ekki allt
um þessar rannsóknir teljum við
að dómsmálaráðuneytið einbeiti
sér helst að upplýsingagjöf okkar
í kringum frumútboðið er varðar
samkeppnina við Instagram.“
Í yfirlýsingu frá Snap kom svo
fram að fyrirtækið telji ásakanir
hluthafanna marklausar og að
upplýsingagjöf í aðdraganda frum
útboðsins hafi verið sönn, rétt og
fullnægjandi. Gögnin sem SEC fór
fram á voru svo afhent í gær.
Staðan er svo sannarlega svört
þessa dagana hjá Snap. Virði hluta
bréfa í fyrirtækinu var 6,54 Banda
ríkjadalir við lokun markaða í gær.
Það hefur því lækkað um tíu dali
frá frumútboðinu. Vöxtur Snap
chat er sömuleiðis enginn. Á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs náði miðill
inn hápunkti sínum, 191 milljón
notenda, en sú tala stóð í 186 millj
ónum á síðasta ársfjórðungi. Þá er
einnig vert að taka fram að Snap
tapaði um fjörutíu milljónum dala á
myndavélargleraugunum Spectacles
sem það setti á markað í september
2016.
Rót vandans, sem Snap stendur
nú frammi fyrir, má rekja til ársins
2013 þegar Evan Spiegel, forstjóri
Snap, hafnaði þriggja milljarða
dala kauptilboði Facebook. Mark
Zuckerberg, stofnandi og forstjóri
Facebook, setti þá af stað þróun
svokallaðra Stories á Instagram til
þess að miðillinn gæti keppt við
Snap chat. Fídusinn fór í loftið í
Enn syrtir í álinn hjá Snapchat
Verðbréfaeftirlitið á hælum Snap vegna hópmálsóknar ósáttra hluthafa. Snap sakað um að hafa leynt upp-
lýsingum um samkeppnina við Instagram. Notendum miðilsins fækkar og fjárhagsstaðan er sögð afar erfið.
✿ Vöxtur Snapchat og instagram Stories
400
350
300
250
200
150
100
50
0
2014 2015 2016 2017 2018
ágúst 2016, tæpu ári fyrir frumútboð
Snap. Á þeim tveimur árum sem
hafa liðið frá því Stories fór í loftið
er fjöldi daglegra notenda kominn
upp í 400 milljónir. Það þarf ekkert
stærðfræðiséní til að sjá að Insta
gram Stories er sum sé orðið tvöfalt
stærra en Snapchat.
Til þess að bregðast við því að
farið var að hægja á vexti Snapchat
ákvað Snap að endurhanna miðil
inn. Hið nýja viðmót fór í loftið í
febrúar en þótti ruglandi og úr öllu
samhengi við væntingar notenda.
Kylie Jenner, sem þá var trúlega einn
stærsti áhrifavaldurinn á miðlinum,
sagði á Twitter að hún væri einfald
lega hætt að nota Snapchat eftir að
uppfærslan fór í loftið. Á fyrsta árs
fjórðungi, þegar uppfærslan fór í
loftið, náði fjöldi daglegra notenda
hápunkti, fyrrnefndri 191 milljón.
Nú er notendum í fyrsta sinn að
fækka.
Önnur viðbót við Snapchat,
Discover, virðist ekki heldur skila
miklum árangri. Sú fór í loftið 2015
og leyfir notendum að nálgast efni
frá stórfyrirtækjum og fjölmiðlum
á borð við ESPN og Warner Music.
Þótt lítið sé vitað um hversu margir
nýta sér Discover greindi Engadget
frá því að uppsögn Nicks Bell, vara
forseta Snap sem hafði umsjón með
Discoververkefninu, frá því fyrr í
vikunni væri ágætis vísbending um
stöðuna.
Og þá er ótalin fjárhagsstaða
fyrirtækisins. Techcrunch greindi
frá því í lok síðasta mánaðar að
Snap ætti eignir að verðmæti 1,4
milljarða Bandaríkjadala. Hins
vegar spáir greiningarfyrirtækið
MoffetNathanson því að Snap muni
tapa 1,5 milljörðum á næsta ári. Enn
aðrir greinendur hafa svo spáð því
að Snap muni í allra fyrsta lagi skila
hagnaði 2020 eða 2021.
Samkvæmt greiningu Recount á
Snapchat einnig í töluverðum vand
ræðum með að hagnast á daglegum
notendum sínum. Þannig velti
fyrirtækið 1,4 Bandaríkjadölum á
hvern daglegan notanda á öðrum
ársfjórðungi samanborið við 8,99
dali Facebook.
Dyggir og traustir notendur
Snapchat geta þó glaðst yfir því að á
miðvikudaginn fór víða í loftið upp
færsla sem felur í sér að notendur fá
loks hefðbundna samfélagsmiðla
prófíla. Prófílarnir eru, samkvæmt
The Verge, einungis aðgengilegir
vinum og þar má sjá það vistaða
efni sem viðkomandi hafa deilt
hvor með öðrum. Þá hefur Snap
einnig sett í sölu varning tengdan
Bitmojis, sérsniðnum teikningum
notenda. thorgnyr@frettabladid.is
n Snapchat
n Instagram Stories
D
ag
le
gi
r n
ot
en
du
r í
m
ill
jó
nu
m
Tími
Stjórnendur Snap vona að flestir á þessari mynd séu að nota Snapchat. Raunin gæti verið allt önnur. NoRdicphotoS/AFp
BreTland Tveir ráðherrar í ríkis
stjórn Íhaldsflokksins undir for
sæti Theresu May sögðu af sér í gær.
Ástæðan er óánægja með drög að
samningi um útgönguna úr Evrópu
sambandinu sem samninganefndir
Breta og ESB hafa náð samkomu
lagi um. Dominic Raab, ráðherra
útgöngumála, sagði að alvarlegir
gallar væru á drögunum og Esther
McVey tók í sama streng.
May var spurð spjörunum úr
um drögin í gær, bæði á þingi og á
blaðamannafundi. Á blaðamanna
fundinum sagðist hún ekki ætla
að segja af sér þrátt fyrir að ósáttir
Íhaldsmenn væru að sækjast eftir
því að atkvæðagreiðsla um van
traust færi fram. „Ég trúi því af öllu
mínu hjarta að stefnan sem ég hef
markað sé sú rétta fyrir land okkar
og þjóð,“ sagði May.
Alls þurfa 48 þingmenn að senda
hinni svokölluðu 1922nefnd
flokksins bréf um vantraust til að
atkvæðagreiðsla fari fram. Jacob
ReesMogg, harður andstæðingur
May, sagði að í drögunum fælist
engin raunveruleg útganga og skil
aði sínu bréfi til nefndarinnar.
Sky birti könnun í gær þar sem
viðmælendur höfðu verið spurðir
hvort þeim litist best á samning
May, útgöngu án samnings eða að
hætta alfarið við Brexit. Fjórtán
prósent studdu May, 32 vildu engan
samning og 54 ekkert Brexit.
Að því er kom fram í könnun
YouGov sögðust 19 prósent styðja
samkomulagsdrögin, 39 prósent
voru óviss og 42 andvíg. Sé horft til
stuðningsfólks Íhaldsflokksins eins
studdu 28 prósent drögin, 31 pró
sent var óvisst og 41 andvígt. – þea
Nítján prósent
styðja drög May
theresa May er forsætisráðherra
Bretlands. NoRdicphotoS/AFp
19%
styðja samningsdrög
Theresu May.
42%
eru andvíg.
1 6 . n ó V e m B e r 2 0 1 8 F Ö S T U d a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
9
-3
9
B
8
2
1
6
9
-3
8
7
C
2
1
6
9
-3
7
4
0
2
1
6
9
-3
6
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K