Fréttablaðið - 16.11.2018, Side 15
Ef samfélagsskipanin okkar
skilar ítrekað þeirri niður-
stöðu að tilteknir hópar hafa
miklu meira upp úr krafsinu
heldur en aðrir—þá er hætt
við að þeim sem verða undir
finnist smám saman eins
og kerfið sé hvorki réttlátt
né sanngjarnt. Og miðað
við stöðuna í dag þá er ekki
annað hægt að segja en að
þeir hafi algjörlega rétt fyrir
sér.
Don't enlarge the this template.
The size of this template can be reduced.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSAN MICRA
NISSAN MICRA
VERÐ FRÁ: 2.550.000 KR.
NISSAN hlaut viðurkenningu bílasöluritsins AutoTrader sem BEST BÚNI BÍLLINN 2018.
Viðurkenningin er byggð á könnun meðal rúmlega 40 þúsund bíleigenda á því hvaða
framleiðandi uppfylli best þarfir um staðalbúnað í nýjum bifreiðum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
9
3
3
N
is
s
a
n
M
ic
ra
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
n
o
́
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
B
íll
á
m
yn
d
N
is
sa
n
M
ic
ra
T
ek
na
. V
er
ð
2
.7
9
0
.0
0
0
k
r.
Í dag Þórlindur
Kjartansson
Ég átti einu sinni samtal við mann um mann. Og sá hafði ekki margt um þann náunga
að segja, enda taldi hann ekki
þurfa margra orða við. Náunginn
hafði gert út um orðspor sitt í huga
mannsins á einu augabragði fyrir
margt löngu síðan.
Og hver var hinn ófyrirgefan-
legi glæpur náungans? Þjófnaður,
ofbeldi, rán eða morð? Nei. Ekkert
slíkt. „Hann var tekinn með maðk,“
sagði maðurinn um náungann og
þar með þurfti ekki frekar að velta
fyrir sér kostum hans eða eðli.
Hann var einfaldlega afskrifaður.
Æran við árbakkann
Það að virða ekki settar reglur í
laxveiði er litið grafalvarlegum
augum af þeim sem hafa áhuga
á því sporti. Það getur nefnilega
sagt svo mikla sögu ef einstaklingi
er svo ómögulegt að sætta sig
við ill aflabrögð að hann grípi til
þess óyndisúrræðis að laumast til
þess að setja stórvirkari veiði-
færi en leyfð eru út í ána. Þannig
eykur hann vissulega mjög sínar
eigin líkur á því að landa fiski, en
eyðileggur um leið fyrir öllum
hinum sem fara að reglunum. Það
er kannski leiðinlegt að snúa fisk-
laus úr rándýrri veiðiferð; en þó
skárra en að skilja æruna eftir við
árbakkann.
Í ýmsum sakleysislegum leikjum
okkar leggjum við ofurkapp á að
allir virði reglurnar umfram sinn
eigin árangur. Það nennir enginn
að spila á spil við þann sem verður
uppvís að því að svindla. Sá sem
skrifar viljandi niður rangt skor í
golfi mun ekki þykja eftirsóknar-
verður félagi—og ýmsum þykir
það eflaust til marks um djúpt
óöryggi að geta ekki horfst í augu
við sannleikann um árangur sinn
í saklausum leik. Og þau hvatn-
ingarorð eru höfð eftir sr. Frið-
riki, stofnanda Vals og Hauka, að
kappið megi ekki bera fegurðina
ofurliði. Sem sagt—það er mikill
sannleikur í því að meiru skipti að
spila leikinn vel heldur en að sigra
með öllum tiltækum ráðum.
Réttlæti og jafnræði
Þegar tveir aðilar keppa þá vitum
við líka að það er ekki skemmti-
legt ef annar aðilinn vinnur alltaf.
Einhverjar rannsóknir munu hafa
sýnt fram á að slakari aðilinn þurfi
að sigra í um það bil 30% tilvika
til þess að hann nenni að halda
áfram að keppa. Þess vegna er það
góð hugmynd að sníða reglurnar
stundum þannig að þær auki sigur-
líkur þeirra sem standa hallari fæti.
Í golfi er skráð forgjöf, þannig að
allir eru í raun að keppa við sjálfa
sig; þegar tveir einstaklingar vilja
tefla skák en mikill getumunur er
á þeim þá er alþekkt að sá sterkari
fjarlægi nokkra menn úr sínu liði
áður en leikur hefst, og þar fram
eftir götunum.
Íþróttaliðum er skipt í aldurs-
flokka og deildir eftir landsvæðum
og styrkleika því markmið
íþróttanna er ekki endilega að
finna einn alheims sigurvegara;
heldur einmitt að sem flestir
geti notið keppninnar og jafnvel
fagnað sigri stundum.
Allir leikir þurfa þess vegna að
innihalda bæði réttlæti og jafn-
ræði til þess að gaman sé að taka
þátt í þeim eða horfa á þá. Sá sem
svindlar eða níðist á veikari and-
stæðingi telst því ekki vera snið-
ugur eða klár—heldur er honum
réttilega álasað fyrir að láta kapp
sitt bera fegurðina ofurliði. Þannig
kapp eyðileggur leikinn fyrir öllum
hinum. Þetta á við jafnvel þótt allir
stórsigrarnir séu verðskuldaðir og
ekkert rangt sé haft við.
Svindlað í skjóli marmara
Þessi sjónarmið eru svo djúpstæð
í mannlegri tilveru að þau eiga alls
staðar við. Ef samfélagsskipanin
okkar skilar ítrekað þeirri niður-
stöðu að tilteknir hópar hafa miklu
meira upp úr krafsinu heldur en
aðrir—þá er hætt við að þeim sem
verða undir finnist smám saman
eins og kerfið sé hvorki réttlátt né
sanngjarnt. Og miðað við stöðuna í
dag þá er ekki annað hægt að segja
en að þeir hafi algjörlega rétt fyrir
sér.
Þótt það sé slæmt og leiðinlegt
þegar sömu aðilar sigra alltaf þá
er hálfu verra ef reglur leiksins
sjálfs eru ósanngjarnar eða ef hinir
svokölluðu sigurvegarar ná árangri
sínum með svindli. Þetta er þó því
miður staða sem allir unnendur
frjáls markaðshagkerfis (eins og sá
sem þetta skrifar) þurfa að velta
fyrir sér. Dæmin um svindl eru
mýmörg; til dæmis um stórfellt
peningaþvætti marmaralagðra
og virðulegra stofnana á borð við
Deutsche Bank og Danske Bank;
og nýlegum upplýsingum um að
bankar í Evrópu hafi stolið að
minnsta kosti 50 milljörðum evra
af skattgreiðendum með því að
beita frumlegum kokteilum af mis-
notkun, falsi og svindli.
Bognar leikreglur
Fyrir utan hreint og klárt svindl,
sem virðist skila miklum gróða í
efstu lögum alþjóðlega fjármála-
kerfisins, þá verða þeir sem trúa á
frjálsan markað að horfast í augu
við að jafnvel innan leikreglnanna
sýnist sitthvað vera býsna bogið.
Er það til dæmis ásættanlegt að
yfirburðafólk, sem getur valið
milli þess að nýta hæfileika sína
til að gera eitthvað gagnlegt—eins
og til dæmis að lækna sjúkdóma—
eða eitthvað fullkomlega gagn-
laust—eins og að beita háþróaðri
stærðfræði til þess að spá fyrir
um verð hlutabréfa í tískufyrir-
tækjum—hefur margfalt meira
upp úr því síðarnefnda en hinu
fyrrnefnda?
Það er vissulega miklu einfaldara
að setja reglur um laxveiði heldur
en allt samfélagið. En það sama
gildir um þá sem nýta sér ólögleg
veiðarfæri til þess að öðlast ríki-
dæmi—þeir bjóða heim hættu á
því að stuðningur molni undan
því þjóðskipulagi sem hefur skilað
langsamlega mestum og bestum
lífskjörum í gervallri sögu mann-
kynsins. Þeir sem raunverulega
hafa trú á því að markaðshagkerfið
sé þess virði að verja það þurfa því
að beina athygli sinni ekki síður
að því hvernig rétt sé að treysta
tilverugrundvöll þess heldur en því
hvernig þeir geti sjálfir fengið sem
mest út úr því.
Græðgi er ekki góð. Þeir sem
starfa með græðgina eina að leiðar-
ljósi hafa fyrir löngu látið kappið
bera fegurðina algjöru ofurliði.
Kappið og fegurðin
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö S T u d a g u R 1 6 . n ó v e m B e R 2 0 1 8
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
9
-0
8
5
8
2
1
6
9
-0
7
1
C
2
1
6
9
-0
5
E
0
2
1
6
9
-0
4
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K