Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2018, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 16.11.2018, Qupperneq 15
Ef samfélagsskipanin okkar skilar ítrekað þeirri niður- stöðu að tilteknir hópar hafa miklu meira upp úr krafsinu heldur en aðrir—þá er hætt við að þeim sem verða undir finnist smám saman eins og kerfið sé hvorki réttlátt né sanngjarnt. Og miðað við stöðuna í dag þá er ekki annað hægt að segja en að þeir hafi algjörlega rétt fyrir sér. Don't enlarge the this template. The size of this template can be reduced. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 KOMDU OG REYNSLUAKTU NÝJUM NISSAN MICRA NISSAN MICRA VERÐ FRÁ: 2.550.000 KR. NISSAN hlaut viðurkenningu bílasöluritsins AutoTrader sem BEST BÚNI BÍLLINN 2018. Viðurkenningin er byggð á könnun meðal rúmlega 40 þúsund bíleigenda á því hvaða framleiðandi uppfylli best þarfir um staðalbúnað í nýjum bifreiðum. E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 9 3 3 N is s a n M ic ra a lm e n n 5 x 2 0 n o ́ *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. B íll á m yn d N is sa n M ic ra T ek na . V er ð 2 .7 9 0 .0 0 0 k r. Í dag Þórlindur Kjartansson Ég átti einu sinni samtal við mann um mann. Og sá hafði ekki margt um þann náunga að segja, enda taldi hann ekki þurfa margra orða við. Náunginn hafði gert út um orðspor sitt í huga mannsins á einu augabragði fyrir margt löngu síðan. Og hver var hinn ófyrirgefan- legi glæpur náungans? Þjófnaður, ofbeldi, rán eða morð? Nei. Ekkert slíkt. „Hann var tekinn með maðk,“ sagði maðurinn um náungann og þar með þurfti ekki frekar að velta fyrir sér kostum hans eða eðli. Hann var einfaldlega afskrifaður. Æran við árbakkann Það að virða ekki settar reglur í laxveiði er litið grafalvarlegum augum af þeim sem hafa áhuga á því sporti. Það getur nefnilega sagt svo mikla sögu ef einstaklingi er svo ómögulegt að sætta sig við ill aflabrögð að hann grípi til þess óyndisúrræðis að laumast til þess að setja stórvirkari veiði- færi en leyfð eru út í ána. Þannig eykur hann vissulega mjög sínar eigin líkur á því að landa fiski, en eyðileggur um leið fyrir öllum hinum sem fara að reglunum. Það er kannski leiðinlegt að snúa fisk- laus úr rándýrri veiðiferð; en þó skárra en að skilja æruna eftir við árbakkann. Í ýmsum sakleysislegum leikjum okkar leggjum við ofurkapp á að allir virði reglurnar umfram sinn eigin árangur. Það nennir enginn að spila á spil við þann sem verður uppvís að því að svindla. Sá sem skrifar viljandi niður rangt skor í golfi mun ekki þykja eftirsóknar- verður félagi—og ýmsum þykir það eflaust til marks um djúpt óöryggi að geta ekki horfst í augu við sannleikann um árangur sinn í saklausum leik. Og þau hvatn- ingarorð eru höfð eftir sr. Frið- riki, stofnanda Vals og Hauka, að kappið megi ekki bera fegurðina ofurliði. Sem sagt—það er mikill sannleikur í því að meiru skipti að spila leikinn vel heldur en að sigra með öllum tiltækum ráðum. Réttlæti og jafnræði Þegar tveir aðilar keppa þá vitum við líka að það er ekki skemmti- legt ef annar aðilinn vinnur alltaf. Einhverjar rannsóknir munu hafa sýnt fram á að slakari aðilinn þurfi að sigra í um það bil 30% tilvika til þess að hann nenni að halda áfram að keppa. Þess vegna er það góð hugmynd að sníða reglurnar stundum þannig að þær auki sigur- líkur þeirra sem standa hallari fæti. Í golfi er skráð forgjöf, þannig að allir eru í raun að keppa við sjálfa sig; þegar tveir einstaklingar vilja tefla skák en mikill getumunur er á þeim þá er alþekkt að sá sterkari fjarlægi nokkra menn úr sínu liði áður en leikur hefst, og þar fram eftir götunum. Íþróttaliðum er skipt í aldurs- flokka og deildir eftir landsvæðum og styrkleika því markmið íþróttanna er ekki endilega að finna einn alheims sigurvegara; heldur einmitt að sem flestir geti notið keppninnar og jafnvel fagnað sigri stundum. Allir leikir þurfa þess vegna að innihalda bæði réttlæti og jafn- ræði til þess að gaman sé að taka þátt í þeim eða horfa á þá. Sá sem svindlar eða níðist á veikari and- stæðingi telst því ekki vera snið- ugur eða klár—heldur er honum réttilega álasað fyrir að láta kapp sitt bera fegurðina ofurliði. Þannig kapp eyðileggur leikinn fyrir öllum hinum. Þetta á við jafnvel þótt allir stórsigrarnir séu verðskuldaðir og ekkert rangt sé haft við. Svindlað í skjóli marmara Þessi sjónarmið eru svo djúpstæð í mannlegri tilveru að þau eiga alls staðar við. Ef samfélagsskipanin okkar skilar ítrekað þeirri niður- stöðu að tilteknir hópar hafa miklu meira upp úr krafsinu heldur en aðrir—þá er hætt við að þeim sem verða undir finnist smám saman eins og kerfið sé hvorki réttlátt né sanngjarnt. Og miðað við stöðuna í dag þá er ekki annað hægt að segja en að þeir hafi algjörlega rétt fyrir sér. Þótt það sé slæmt og leiðinlegt þegar sömu aðilar sigra alltaf þá er hálfu verra ef reglur leiksins sjálfs eru ósanngjarnar eða ef hinir svokölluðu sigurvegarar ná árangri sínum með svindli. Þetta er þó því miður staða sem allir unnendur frjáls markaðshagkerfis (eins og sá sem þetta skrifar) þurfa að velta fyrir sér. Dæmin um svindl eru mýmörg; til dæmis um stórfellt peningaþvætti marmaralagðra og virðulegra stofnana á borð við Deutsche Bank og Danske Bank; og nýlegum upplýsingum um að bankar í Evrópu hafi stolið að minnsta kosti 50 milljörðum evra af skattgreiðendum með því að beita frumlegum kokteilum af mis- notkun, falsi og svindli. Bognar leikreglur Fyrir utan hreint og klárt svindl, sem virðist skila miklum gróða í efstu lögum alþjóðlega fjármála- kerfisins, þá verða þeir sem trúa á frjálsan markað að horfast í augu við að jafnvel innan leikreglnanna sýnist sitthvað vera býsna bogið. Er það til dæmis ásættanlegt að yfirburðafólk, sem getur valið milli þess að nýta hæfileika sína til að gera eitthvað gagnlegt—eins og til dæmis að lækna sjúkdóma— eða eitthvað fullkomlega gagn- laust—eins og að beita háþróaðri stærðfræði til þess að spá fyrir um verð hlutabréfa í tískufyrir- tækjum—hefur margfalt meira upp úr því síðarnefnda en hinu fyrrnefnda? Það er vissulega miklu einfaldara að setja reglur um laxveiði heldur en allt samfélagið. En það sama gildir um þá sem nýta sér ólögleg veiðarfæri til þess að öðlast ríki- dæmi—þeir bjóða heim hættu á því að stuðningur molni undan því þjóðskipulagi sem hefur skilað langsamlega mestum og bestum lífskjörum í gervallri sögu mann- kynsins. Þeir sem raunverulega hafa trú á því að markaðshagkerfið sé þess virði að verja það þurfa því að beina athygli sinni ekki síður að því hvernig rétt sé að treysta tilverugrundvöll þess heldur en því hvernig þeir geti sjálfir fengið sem mest út úr því. Græðgi er ekki góð. Þeir sem starfa með græðgina eina að leiðar- ljósi hafa fyrir löngu látið kappið bera fegurðina algjöru ofurliði. Kappið og fegurðin S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö S T u d a g u R 1 6 . n ó v e m B e R 2 0 1 8 1 6 -1 1 -2 0 1 8 0 5 :0 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 6 9 -0 8 5 8 2 1 6 9 -0 7 1 C 2 1 6 9 -0 5 E 0 2 1 6 9 -0 4 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.