Fréttablaðið - 16.11.2018, Side 24
Anna M. Konráðs-
dóttir hannar og
smíðar eyrnalokka
sem skreyttir eru
litlum bókum. Þeir
eru allir handunnir
og fyrir vikið er
hver þeirra ein-
stakur. Hún kynnir
vörur sínar á Hand-
verki og hönnun í
næstu viku.
Undanfarin 2-3 ár hefur Anna M. Konráðsdóttir dundað sér við að hanna og smíða
eyrnalokka sem skreyttir eru
litlum bókum. Þetta byrjaði sem
saklaust áhugamál þar sem ætl-
unin var að hanna eyrnalokka fyrir
hana sjálfa en svo fannst henni
áhugavert að sjá hvort aðrir hefðu
áhuga á að skreyta sig með bókum.
„Einnig finnst mér mikilvægt að
halda bókum á lífi þar sem allt er
orðið svo rafrænt í dag. Ég er líka
búin að vera að koma fleiri vörum
inn í vörulínuna svo fleiri geti nýtt
sér þær. Í næstu viku tek ég þátt í
sýningunni Handverk og hönnun
í Ráðhúsi Reykjavíkur en sú sýning
er eiginlega það fyrsta sem ég geri
til að koma merkinu mínu á fram-
færi.“
Engir tveir skartgripir eins
Hún segist eingöngu nota gæða-
efni í bækurnar og kápan sé í raun
unnin alveg eins og hefðbundin
bók. „Það þýðir að horn og kjölur
bókarinnar eru úr lambaskinni eða
roði og svo er pappírsklæðning
eins og notuð er á venjulegum
bókum. Í þær nota ég svo ýmsan
flottan pappír sem mér finnst
passa við. Allar bækur eru hand-
unnar sem þýðir að hver og ein
bók er einstök og því eru engir
tveir skartgripir eins.“ Fyrir utan
bókaeyrnalokkana hefur hún
einnig hannað bókahálsmen,
bókaísskápasegla, bókaorma,
jólabóka nælur og jólabókaeyrna-
lokka en vörur sínar selur hún
undir heitinu Book of the (y)ear.
Ólíkar litasamsetningar
Hugmyndirnar fær hún með því að
prófa sig áfram með ýmis efni auk
þess sem hún segist fá hugmyndir
með því að kíkja í föndurbúðir og
skoða pappír á netinu. „Ég býð
upp á óteljandi útgáfur af sam-
setningum auk þess sem ég er með
nokkrar staðlaðar útgáfur. Auk
þess getur hver og einn óskað eftir
sérstökum litum og litasamsetn-
ingu. Viðtökurnar hafa verið góðar
en það eru auðvitað ekki allir sem
vilja vera með bækur hangandi í
eyrunum.“
Áhuginn kviknaði snemma
Áhugi Önnu á handavinnu byrjaði
á unglingsaldri þegar hún hóf störf
í bókbandi yfir sumartímann. „Þar
kviknaði fyrst áhugi á handavinnu.
Fljótlega eftir stúdentspróf ákvað
ég að innrita mig í bókbandsnám
og hef verið að vinna í prentsmiðj-
um og dunda mér við handband
síðan. Það var einmitt í náminu
sem ég fékk þá hugmynd
að gera litla bóka-
eyrnalokka og hef ég
verið að þróa hönnunina
síðan þá.“
Óvænt vara
Á Handverki og
hönnun sem hefst í
Ráðhúsi Reykja-
víkur 22.
nóvember
mun fjöldi
aðila sýna
eigin verk
og selja, þ. á m. Anna.
„Þar verð ég með
ýmsar tegundir af
bókaeyrnalokkunum
og jólabókaeyrna-
lokkum, margar
gerðir af háls-
menum, nokkrar
tegundir af
bóka-
ormum,
bóka-
ísskápasegla og jólabókanælur.
Svo ætla ég að sýna nýja vöru sem
ég ætla ekki að segja frá strax. Hún
kemur í nokkrum útgáfum, m.a.
útgáfu sem ég myndi segja að væri
algjörlega jólaskrautið í ár.“
Hönnun Önnu má skoða á www.
annagarcia58.wixsite.com/book-of-
the-year þar sem einnig er hægt að
hafa samband við hana.
Byrjaði sem saklaust áhugamál
Anna segist eingöngu nota gæðaefni í bækurnar. Það þýðir að hver og ein-
kápa er í raun unnin alveg eins og hefðbundin bók.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
„Allar bækur eru handunnar sem þýðir að hver og ein bók er einstök og því eru engir tveir skartgripir eins,“ segir Anna M.
Konráðsdóttir, sem hefur m.a. hannað bókaeyrnalokka og fleiri skemmtilegar vörur undanfarin ár. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Litfögur bókahálsmen (t.v.) og bókaormar vekja hvarvetna athygli.
www.gongugreining.is
Orkuhúsinu Suðurlandsbraut 34 Reykjavík og Bæjarlind 4 Kópavogi - Sími 55 77 100
Við erum í fararbroddi í göngu- og hlaupagreiningum,
greiningarbúnaði, innleggjum, skóm og fylgihlutum
Reynslumesta starfsfólkið í nánu samstarfi við
íþróttahreyfinguna og fagfólk í heilbrigðisstétt.
H
öfum opnað glæsi
lega sölusíðu - www.gongugreinining.is
Gongugreining-5x10 FBL copy.pdf 1 31/10/2018 13:42
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N Óv E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
9
-4
3
9
8
2
1
6
9
-4
2
5
C
2
1
6
9
-4
1
2
0
2
1
6
9
-3
F
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K