Fréttablaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 26
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652
Eva María segir hugsanlegt að vel heppnuð nýyrði sem landsmenn setja í nýja Nýyrðabankann verði síðar tekin inn í orðabækur. MYND/ANTON BRINK
Eins og allir Íslendingar hef ég miklar mætur á dugnaði og því varla hægt að segja neitt
fegurra við mig á íslensku en að
ég sé dugleg. Dugnaður hefur hér
verið í slíkum hávegum hafður að
það er umhugsunarefni aðfluttra,
enda segjum við meira að segja við
ómálga börn að þau séu dugleg.
Sennilega mættum við útvíkka
hrósorðaforðann okkar til muna og
hafa fleira uppbyggilegt að segja við
aðra, til dæmis að fólk sé lausna-
miðað, útitekið, grátfagurt eða með
þokkafullt göngulag,“ segir Eva
María Jónsdóttir, miðaldafræð-
ingur og vef- og kynningarstjóri
hjá Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum við Háskóla
Íslands. Þar hefur verið unnið að
undirbúningi dags íslenskrar tungu
um skeið.
Á degi íslenskrar tungu upplýsir
Eva María um önnur orð íslensk-
unnar sem eru í miklu dálæti hjá
henni.
„Ég hef alltaf verið hrifin af orð-
inu lémagna og nota það gjarnan
frekar en að segjast vera geðveikt
þreytt. Það hefur sömu merkingu
og að vera uppgefinn eða örmagna.
Notkun á orðinu er dvínandi og
fólki tamara að segja eitthvað
einfaldara, en það er kannski ekki
undarlegt þar sem óljóst er til hvers
forliðurinn „lé“ vísar. Margt kemur
þar til greina, eins og ljár eða lín,“
útskýrir Eva María og bendir á
annað orð í uppáhaldi:
„Það er orðið finngálkn. Dular-
fullt orð um torkennilega skepnu.
Fátt er vitað um uppruna orðsins
en fágæt og sérkennileg orð eru
heillandi og margir vilja fá þau
aftur í tunguna. Finngálkn getur
átt við leyndardómsfulla skepnu,
eins og mannhest, en í þjóðsögum
var það notað yfir afkvæmi kattar
og tófu. Einhverjir töldu sig hafa
rekist á finngálkn þótt ég hafi
aldrei séð það,“ játar Eva María
kankvís.
Ætlum við að sletta óhikað?
„Dagur íslenskrar tungu er helsti
uppskerudagur móðurmálsins og
þá er þeim hampað sem gera vel
á íslensku og við íslenska tungu.
Aðra daga ársins vinnum við í
því að fá fram góða uppskeru og
vitaskuld má ekki einskorða þá
mikilvægu vinnu við þennan eina
dag. Því eru allir dagar okkar dagar
íslenskrar tungu og dugar ekki að
tylla sér á tá og tala vandað og gott
mál í aðeins einn dag,“ útskýrir Eva
María brosmild.
„Við þurfum öll að hugleiða
hvernig við viljum hafa íslenskuna
okkar, staldra við og taka með-
vitaða ákvörðun, til dæmis um
hvort við sem Íslendingar ætlum
að skrifa ensku á samfélagsmiðlum
eða sletta ensku óhikað. Ætlum
við að velja enskt orð fram yfir
sambærilegt íslenskt orð? Erum við
ánægð með það sem við leggjum af
mörkum til stuðnings íslenskunni
og sátt við okkar eigin málstefnu?“
spyr Eva María því öll höfum við
okkar eigin meðvituðu og ómeð-
vituðu málstefnu.
Umburðarlyndi gagnvart
breyttum talsmáta fari þó vaxandi.
„Nú er umræðan oft á þeim
nótum að ekki megi mismuna
fólki eftir því hversu vel það talar
tungumál og því fer umburðar-
lyndi gagnvart röngum beygingum,
tilbrigðum, villum og ambögum
vaxandi. Mörgum þykir þetta full-
mikil linkind en auðvitað er ekki
heldur gott ef hluti þjóðarinnar
þorir ekki að tjá sig af ótta við að
tala vitlaust. Málfræðireglur eru
því víða brotnar og nú heyrist það
máltilbrigði að nota þágufall í stað
þolfalls meira að segja í útvarps-
auglýsingum, en það er miklu eldri
tilhneiging en margan grunar,“
upplýsir Eva María.
Íslensk málnefnd hefur þann
starfa að benda á það sem vel er
gert og það sem betur má fara við
meðferð íslenskar tungu á opin-
berum vettvangi og segir Eva María
það gott; meðal annars til að missa
ekki mælikvarðann um hvað sé rétt
og gott mál.
„Við þurfum að tryggja að allir fái
góða íslenskukennslu og íslensku-
kennara sem blása fólki áhugann í
brjóst í stað þess að vera alltaf með
leiðréttingafingurinn á lofti. Það
má ekki ganga svo langt að fólk
þori ekki að tjá sig af ótta við að
segja vitleysu, en íslenskan er eitt
fárra tungumála í heiminum sem
er enn með flókið beygingakerfi og
því telja margir sig öruggari með að
tala á ensku þar sem eignarfallið er
eitt eftir.“
Ný heimsmynd þarf ný orð
Í tilefni dags íslenskrar tungu
verður opnaður nýyrðabanki sem
unnið hefur verið að hjá Stofnun
Árna Magnússonar.
„Fólk hefur ánægju af því að
taka þátt í mótun tungumálsins
og því var ljóst að við þurftum
fastan samastað þar sem fólk getur
fengið útrás fyrir sköpunargleði í
tungumálinu,“ segir Eva María um
frábæra nýjung.
„Íslenskan er nú sem fyrr í mikilli
þörf fyrir nýyrði því við viljum geta
notað hana til alls. Enda eru tugir
orðanefnda í mismunandi fögum
starfandi og hafa verið í meira en
hálfa öld. Afrakstur þeirrar vinnu
má finna í svokölluðum Íðorða-
banka. Á netinu er svo heill heimur
vefsíðna sem ganga eingöngu út á
tungumálið. Íslendingar eru þar
einkar áhugasamir um móðurmál
sitt og spyrja hver annan hvernig
á að þýða orð eða leita orða yfir
allt mögulegt. Á Árnastofnun
berast okkur líka stöðugar fyrir-
spurnir og tillögur að betri orðum
yfir allt milli himins og jarðar, og
við tökum þessum mikla áhuga
fagnandi.“
Til að leggja inn nýtt orð í
nýyrðabankann er farið á nyyrdi.
arnastofnun.is.
„Þar skrifar maður inn orðið
og hvað það þýðir og uppsker þá
ýmist þumla upp eða þumla niður
auk þess að geta séð athugasemdir
og umræður annarra um nýyrðið.
Hugsanlegt er að orð verði síðar
tekið inn í orðabækur. Hins vegar
er ekki til nein löggildingarstofa
fyrir ný orð. Nýyrði verður gilt
þegar málnotendur taka orðið í
notkun en jafnframt fellur það
úr gildi ef enginn notar það. Þeir
sem tala og skrifa íslensku eiga því
síðasta orðið,“ segir Eva María.
Frá árinu 2015 hafa Ríkis-
útvarpið, Árnastofnun og Mímir –
félag stúdenta í íslenskum fræðum,
staðið fyrir vali á nýyrði ársins.
„Fyrsta orð ársins var fössari,
um föstudag, en tilfinning manna
var að um leið og orðið var valið
datt notkun þess niður hjá yngra
fólkinu og það varð eldra fólks orð.
Árið 2016 var nýyrði Hallgríms
Helgasonar, hrútskýring, valið en
það er myndað á sérstakan hátt
úr orðunum hrútur og útskýring
og er þýðing á enska orðinu
mansplaining, sem er samsett úr
man og explain. Það er dæmi um
viðeigandi nýyrði sem við þurftum
mikið á að halda og tengist sam-
félagsbyltingu og kvenfrelsi, og árið
2017 var valið nýyrði Hildar Lillen-
dahl Viggósdóttur, epalhommi,“
útskýrir Eva María um nýyrði nafn-
greindra orðasmiða sem eignast
hafa ný orð í móðurmálinu.
„Það býr orðasmiður í okkur
öllum og það er gaman geta smíðað
orð sem verður vinsælt í tungu-
málinu. Jónas Hallgrímsson var
listasmiður þegar kom að orðum
og hreint magnað hversu mörg orð
lifa eftir hann. Hann er eftirbreytni-
verður, völundarsmiður orða, vann
mikið að þýðingum, bjó til orð og
heiti yfir mannslíkamann og dýra-
ríkið, fyrir utan allt skáldlega málið.
Sum orðanna náðu ekki flugi en
ótrúlega mörg festust í tungumál-
inu og við höldum þeim daglega á
lofti með því að nota þau.“
Heilsar maður á ensku?
Hátíðahöld í tilefni dags íslenskrar
tungu fara fram víða í dag. Hátíðar-
dagskrá mennta- og menningar-
málaráðuneytisins verður haldin í
Nýheimum á Höfn í Hornafirði þar
sem kunngert verður hver hlýtur
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
í ár.
„Höfn varð fyrir valinu hjá
mennta- og menningarmálaráð-
herra í ár, og er það í fyrsta sinn
sem hátíðarhöldin fara fram á því
landshorni. Það hefur verið heiður
að vinna með heimamönnum
og ætlar ráðherra að heimsækja
skólana í byggðarlaginu. Þar hafa
nemendur spreytt sig á nýyrða-
smíði og geta í kjölfarið lagt inn í
Nýyrðabankann á netinu. Svo er
hápunktur hátíðarhaldanna þegar
veitt verða Verðlaun Jónasar Hall-
grímssonar en þau hlýtur árlega
einhver sem hefur unnið íslenskri
tungu til gagns og gleði,“ segir Eva
María.
Einnig verða veittar viðurkenn-
ingar fyrir stuðning við íslenskuna.
„Þar er endalaust hægt að gera
góða hluti fyrir íslenskuna og
maður fyllist bjartsýni að sjá hversu
margir leggja sig eftir því þegar allt
er talið. Allir virðast standa með
íslenskunni en til að sýna þann hug
í verki þarf að fara í naflaskoðun og
skoða hvernig maður sjálfur velur
og hafnar íslenskunni í ýmsum
aðstæðum: Heilsar maður á ensku?
Birtir maður öll sín hugðarefni á
ensku á samfélagsmiðlum? Þetta
eru stórar ákvarðanir þótt þær
virðist smávægilegar. Því ætti hver
og einn að velja sér tungumál sem
tjáningarmáta að vel athuguðu
máli.“
Í dag verða líka veitt hvatningar-
verðlaun viðskiptalífsins í fyrsta
sinn, en með þeim er varpað ljósi
á fyrirtæki sem vinna íslenskunni
gagn á eftirtektarverðan hátt.
„Ábyrgðin liggur nefnilega hjá
okkur öllum og ekki nóg að íslenska
sé opinbert tungumál ríkisappa-
ratsins. Við erum öll í þessu saman
og þurfum öll að taka afstöðu
til íslenskunnar og sýna hana í
verki. Í ferðamálageiranum væri
til dæmis hægt að ákveða að taka
á móti íslenskum og útlenskum
viðskiptavinum á íslensku, því
útlendingar fara á mis við svo mikið
ef þeir heyra ekki íslensku í daglegu
umhverfi. Þeir koma til Íslands
vegna þess að þeir vilja upplifa það
að vera gestir í framandi menn-
ingarumhverfi, rétt eins og okkur
þykir tilheyra að heyra frönsku í
París. Við verðum að hætta að taka
íslenskunni sem sjálfsögðum hlut
því hún verður bara til á meðan við
brennum fyrir henni.“
Ást til móðurtungunnar
Dagur íslenskrar tungu er opin-
ber fánadagur og segir Eva María
skemmtilegt ef sem flestir drægju
fána að húni.
„Ekki vegna skyldurækni
heldur væntumþykju til móður-
tungunnar. Í tilefni dagsins væri
líka best fyrir íslenskuna ef allir
settu sér markmið um að reyna að
tala íslensku og fækka slettum úr
öðrum málum. Líka að taka þátt í
að búa til ný orð yfir ný hugtök því
komin er ný tækni, ný heimsmynd
og nýjar hugmyndir sem þarfnast
nýrra íslenskra orða. Að tileinka
sér að tala íslensku og finna ný
orð yfir hlutina jafnóðum. Það er
nefnilega skemmtilegur lífsstíll
að leggja sitt af mörkum til að
bæta málið og unga fólkið okkar á
heiður skilinn fyrir dugnað og hug-
myndaauðgi við það. Ég nefni sem
dæmi þegar orðið „þokkalega“ var
endurlífgað á sínum tíma,“ segir
Eva María í Árnastofnun þar sem
hún verður vitni að ræktarsemi
útlendra háskólanema við íslenska
tungu.
„Íslenska sem annað mál er eitt
vinsælasta fagið í Háskólanum og
hefur orðið sprenging í fjölgun
nemenda sem bera mikla virðingu
fyrir íslenskunni og veita okkur
hinum innblástur. Erlendir nemar
sakna sjálfsagt síns móðurmáls
og vita að ekki er betra að tjá sig
á neinu öðru tungumáli en því
sem maður lærir fyrst. Vinsældir
íslensku sem annars máls skrifast
áreiðanlega á frábæra kennara og
mikla fjölgun erlends vinnuafls
sem finnur fljótt að það kemst ekki
almennilega inn í hlutina hér nema
að hafa íslensku á valdi sínu,“ segir
Eva María, en rétt er að benda á
vefsíðuna icelandiconline.is sem er
ókeypis íslenskukennsla á netinu
og hefur sannað gildi sitt eftir
margra ára notkun.
„Íslenska er málið og ráðherr-
anum okkar er greinilega alvara
þegar kemur að þjóðtungunni.
Ráðuneyti hennar undirbýr nú
vitundarvakningu sem er liður
í fjölbreyttum aðgerðum til að
styrkja stöðu íslenskunnar og ég
veit að við munum heyra meira af
því fljótlega.“
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Útlendingar fara á
mis við mikið ef
þeir heyra ekki íslensku í
daglegu umhverfi. Þeir
vilja upplifa framandi
menningarheim; rétt eins
og við viljum heyra
frönskuna talaða í París.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . N óV E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RDAGuR íSLENSKRAR TuNGu
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
9
-2
F
D
8
2
1
6
9
-2
E
9
C
2
1
6
9
-2
D
6
0
2
1
6
9
-2
C
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K