Fréttablaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 34
Sviðslistahátíðin Everybody’s Spectacular stendur nú yfir og í kvöld verður ýmislegt
forvitnilegt á boðstólum. Má þar
nefna sýninguna Cock, cock …
who’s there? sem verður sýnd
í Tjarnarbíói og hefst klukkan
hálfníu. Þar fer Samira Elagoz með
áhorfandann í rannsóknarleiðang-
ur sem varpar ljósi á hið tvíræða
samband kynjanna, sem er svo
grimmilegt og dásamlegt í senn.
Í Mengi klukkan sex verður
listamaðurinn Jacob Wren, annar
stofnandi listhópsins PME-ART
með gjörninginn A user’s guide to
authenticity is a feeling, þar sem
meðal annars er spurt spurningar-
innar: hvernig höldum við áfram
að halda í þá veiku von að veik-
burða samkrull listar og stjórn-
mála geti með einhverjum hætti
breytt heiminum?
Styrmir Örn Guðmundsson
verður svo í Listasafni Reykjavíkur
klukkan tíu með framhald á Gjörn-
ingatíð sinni en verkum Styrmis er
ekki ætlað að falla í ákveðinn flokk
heldur flæða milli listforma.
Everybody’s spectacular er
einstakur vettvangur fyrir þá sem
vilja kynna sér nýjustu strauma
og stefnur í sviðslistum en hátíðin
stendur fram á sunnudag.
Miða má fá á tix.is og dagskrána
í heild sinni á http://www.spect
acular.is/dagskr2018
Sjónlistahátíð á
föstudagskvöldi
Samira Elagoz fjallar um samskipti
kynjanna á villtan og áhrifamikinn
hátt í Tjarnarbíói klukkan hálf níu.
Jacob Wrén ræðir í Mengi von lista-
mannsins um að breyta heiminum.
Flestir vilja skarta heilbrigðu hári. Hér eru nokkur ráð til að það haldist í sem bestu standi.
1. Farðu reglulega í klippingu, jafn-
vel þó þú sért að safna. Klofnir
endar gera það að verkum að
hárið eyðist upp neðan frá,
verður þurrt og druslulegt. Það
getur verið nóg að rétt láta narta
í það til að það haldist heilbrigt.
2. Ekki þvo það of oft. Það fer
til lengdar illa með hárið og
þurrkar það.
3. Forðastu of mikið stress. Það
getur valdið hárlosi.
4. Nærðu þig vel. Það byggir hárið
upp frá rótum.
5. Ekki sofa með hárið í tagli. Það
getur valdið sliti.
6. Reyndu að nota hárþurrku,
sléttu- eða krullujárn í hófi.
Hitinn fer illa með hárið.
7. Forðastu aflitun. Hún er hvað
verst fyrir hárið.
Heilbrigt hár
Nú eru rétt fimm vikur til jóla og tímabært að hefja svolítinn jólaundirbúning
svo hægt sé að njóta töfrastunda
aðventunnar án streitu, álags og
láta. Það spáir víða rigningu um
helgina og því upplagt að hafa
það notalegt heima, baka pipar-
kökuhús, eða kaupa það tilbúið
til samsetningar og líma saman
þak og veggi úr ilmandi deigi.
Að búa til piparkökuhús
skapar indælar fjölskyldu-
minningar og börnum þykir
mikið fjör að ná sér í efnivið til
húsagerðarinnar, litríkt sælgæti
og glás af glassúr og flórsykri
til að skreyta fagurt húsið með
glitrandi púðursnjó. Svo er vel
skreytt piparkökuhús til stakrar
heimilisprýði og setur skemmti-
legan jólablæ á heimkynnin með
lokkandi angan og sætindum
sem bíða þess að standa af sér
aðventuna og vera étin upp til
agna á jólum.
Húsasmíði barnanna
Fallegt pipar-
kökuhús setur
heimilið í jóla-
legan búning.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N Óv E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
9
-4
8
8
8
2
1
6
9
-4
7
4
C
2
1
6
9
-4
6
1
0
2
1
6
9
-4
4
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K