Fréttablaðið - 16.11.2018, Side 38
Bróðir okkar,
Agnar Traustason
frá Hörgshóli,
andaðist á Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga 11. nóvember. Útförin
fer fram frá Breiðabólsstaðarkirkju í
Vesturhópi föstudaginn 23. nóvember
kl. 14.00.
Björn Traustason Þorkell Traustason
Þráinn Traustason Guðbjörg Traustadóttir
Hörður Traustason
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Sveinbjörn Jónsson
húsasmíðameistari,
sem lést á Ísafold Hrafnistu í Garðabæ
þann 27. október, verður jarðsunginn
frá Vídalínskirkju í Garðabæ
mánudaginn 19. nóvember kl. 15.
Sara Gunnarsdóttir Þorkell Jóhannsson
Bergur Gunnarsson Hrönn Arnarsdóttir
Ólöf Gunnarsdóttir Ragnar Þór Jörgensen
Auður Gunnarsdóttir Gunnar Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Magnea Kristín
Sigurðardóttir
Grænumörk 5, Selfossi,
lést á Fossheimum sunnudaginn
11. nóvember. Útförin fer fram
frá Selfosskirkju miðvikudaginn
21. nóvember kl. 14.00.
Sigríður Ólafsdóttir Sigurður Á. Þorsteinsson
Ólöf Ólafsdóttir Skúli Einarsson
Guðveig Bergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systir okkar,
Aðalbjörg Baldursdóttir
frá Grýtubakka I,
lést á öldrunarheimilinu
Lögmannshlíð 6. nóvember. Útför
hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 19. nóvember kl. 13.30.
Hjartans þakkir til starfsfólks á Lögmannshlíð fyrir
hlýja og góða umönnun.
Sigríður, Margrét, Jónas, Bryndís,
Ari, Guðmundur og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og sambýlismaður,
Gissur Jensen
mjólkurfræðingur,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
Selfossi, þriðjudaginn 13. nóvember
sl. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
þriðjudaginn 20. nóvember kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á Alzheimersamtökin.
Stefán Róbert Gissurarson Sigrún Sigurðardóttir
Axel Þór Gissurarson Andrea Ingimundardóttir
barnabörn, barnabarnabörn og Berglind Einarsdóttir
Okkar elskulega systir,
Sigríður Bjarnadóttir
Kettingevej 70, Danmörku,
er látin.
Útför hennar hefur farið fram.
Jón Bjarnason
Þuríður J. Bjarnadóttir
Ástkær sonur okkar,
bróðir, mágur og frændi,
Heimir Jakob Þorfinnsson
f. 7. febrúar 1975,
varð bráðkvaddur 28. október 2018.
Jarðarförin hefur farið fram.
Ástvinir þakka auðsýnda samúð
og vinarhug.
Kristín Karólína Jakobsdóttir Þorfinnur Júlíusson
Anna Rósa Þorfinnsdóttir
Júlíus Þorfinnsson Þórunn Ásdís Óskarsdóttir
og frændsystkini.
Elskuleg eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sólrún Þórarinsdóttir
bóndi á Hálsi í Kjós og
húsmóðir í Baulubrekku,
lést 6. nóvember á Landspítalanum.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jón Gíslason
Kristín Jónsdóttir Henry Christer Eriksson
Ingibjörg Jónsdóttir Axel Jóhannsson
Þórarinn Jónsson Lísa Boije af Gennaes
barnabörn og barnabarnabarn.
Þetta eru bara hugleiðingar um breyskleika. Ég ætla að leyfa mér að hugsa upphátt,“ segir Páll Valsson rithöf-undur um væntanlegt erindi
sitt á málþingi um Jónas Hallgrímsson.
Þingið verður haldið þann 17. nóvem-
ber klukkan 10 í Þjóðmenningarhús-
inu, daginn eftir að 211 ár verða liðin
frá fæðingu þjóðskáldsins. Þingið er
haldið að tilhlutan Félags áhugamanna
um sögu læknisfræðinnar. Ætlunin er að
taka til umfjöllunar líf, ástamál, drykkju
og dauðdaga Jónasar og velta fyrir sér
tíðaranda 19. aldar. Helstu sérfræðingar
landsins í lífi og verkum Jónasar mæta
til leiks. Þar er Páll fremstur meðal
jafningja, enda skrifaði hann ævisögu
skáldsins sem kunnugt er.
„Eftir dauða sinn var Jónas nánast
tekinn í dýrlingatölu en var umdeildur
í lifanda lífi. Öll erum við jú breysk,
það gildir líka um þjóðskáld,“ bendir
Páll á. Hann kveðst ætla að velta fyrir
sér hverjir hafi verið helstu lestir Jón-
asar og hvernig þeir hafi birst. Hvort
það geti verið að þeir hafi nýst honum í
skáldskap en kannski komið niður á ein-
hverju öðru. „Þetta verða svona hugleið-
ingar um manninn Jónas,“ segir hann.
„Ég lofa engu um niðurstöður. En það
sem er gaman við það að hugsa svona
um breyskleika er að þannig kemst
maður svo nálægt manninum.“
Páll kveðst ekki ætla að segja að Jónas
hafi verið gallagripur en hann hafi haft
sína veikleika, eins og við öll. „Ég get sagt
að hann var vínhneigður, það er ekkert
launungarmál. Fólki hættir til að setja
menn á stall af því að það elskar verkin
þeirra, það á við um listamenn sem hafa
skapað ódauðleg verk. Sagt er að Picasso
hafi verið óþolandi leiðinlegur – en því-
líkur listamaður.“
Páll kveðst telja að Jónas hafi verið
mjög óhamingjusamur á köflum en
hafi átt sínar góðu stundir. „Hann naut
heldur ekki þess dálætis í lifanda lífi
sem fólk fékk á honum síðar og kvartar
undan vanþakklæti þjóðarinnar. „Það
vill enginn hirða verkin mín,“ segir hann
á einum stað í bréfi. „Þið lastið allt sem
ég geri.“ Það átti heldur betur eftir að
snúast við.“ gun@frettabladid.is
Öll erum við jú breysk
Dálítið sérstök samkoma verður haldin um heilsufar og hina hlið Jónasar Hallgrímsson-
ar skálds á morgun, laugardaginn 17. nóvember, í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu.
„Það sem er gaman við að hugsa svona um breyskleika er að þannig kemst maður svo nálægt manninum,“ segir Páll. Fréttablaðið/Hanna
Dagskrá þingsins
Drykkjuskapur skálda og rómantík
á 19. öld
Torfi Tulinius, prófessor í íslenskum
miðaldafræðum
breyskleikar Jónasar
Páll Valsson, rithöfundur og höf-
undur ævisögu Jónasar
Ástamál Jónasar
Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í
íslenskum nútímabókmenntum
Kaffi frá fröken Júlíu
í boði félagsins
Dauði Jónasar
Óttar Guðmundsson, geðlæknir
bein Jónasar
Jón Karl Helgason, prófessor í
íslensku
Fundarstjóri Jón Jóhannes Jónsson,
yfirlæknir erfða- og sameindalæknis-
fræðideildar LSH
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r20 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
tímamót
1
6
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
9
-2
F
D
8
2
1
6
9
-2
E
9
C
2
1
6
9
-2
D
6
0
2
1
6
9
-2
C
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K