Fréttablaðið - 24.11.2018, Qupperneq 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP GRAND CHEROKEE
jeep.is
FOR-FRUMSÝNUM JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK
MEÐ 35” BREYTINGU FRÁ ARCTIC TRUCKS.
SÝNUM EINNIG JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK
MEÐ 33” BREYTINGU.
ERUM Á STÓRSÝNINGUNNI
VETRARLÍF 2018 UM HELGINA.
FRÍR AÐGANGUR - GEIRSGATA 11.
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
®
®
®
®
BÍLL Á MYND MEÐ 33” BREYTINGU
Þrjú í fréttum
Salerni, kjóll og
nammigrísir
Anna Sigrún Baldursdóttir
aðstoðarmaður
forstjóra Land-
spítalans
sagði skort á
hjúkrunarrým-
um ástæðu þess
að eldra fólk gisti
á salernum sjúkra-
hússins. Staðan væri ömurleg.
Birgitta Haukdal
söngkona
sagði að sér þætti
leitt ef hún hefði
sært einhverja
með orðavalinu
í nýrri barnabók
sinni. Birgitta
sætti harðri gagnrýni
hjúkrunarfræðinga fyrir að hafa
notað orðið hjúkrunarkona í
bókinni. Þar er jafnframt mynd af
hjúkrunarfræðingi með kappa á
höfði og í kjól.
Guðmundur Andri
Thorsson
alþingismaður
benti á að sykur-
skattur hefði
verið íslenskum
hægrimönnum
þyrnir í augum,
enda væru þeir ann-
álaðir nammigrísir. Sykurskattur
væri ein leiðanna til að fjármagna
17 tillögur Samfylkingarinnar um
breytingar á fjárlögum.
Tölur vikunnar 18.11.2018 Til 24.11.2018
63% þeirra starfa sem urðu til 2015-2017
sköpuðust af byggingargeiranum
og ferðaþjónustunni. Nú hefur
hægt umtalsvert á þeim vexti.
18%
allra kvenna á Ís-
landi fengu ávísað
þunglyndislyfjum í
fyrra og rúmlega 10
prósent karla.
120
milljónir króna hefur Spölur endur-
greitt viðskiptavinum sínum sem
þeir áttu á áskriftarreikningum
sínum þegar ríkið tók við rekstri
Hvalfjarðarganga í síðasta mánuði.
110 milljónir eru enn
ósóttar. Hægt verður
að óska eftir endur-
greiðslu til nóvem-
berloka.
27
þúsund ein-
staklingar
fengu ávísað
svefnlyfjum
árið 2003. Af
þeim voru
tæplega 11
þúsund enn
að fá svefnlyf
árið 2018.
30%
fyrrverandi starfs-
manna Orkuveitu
Reykjavíkur sem tóku
þátt í könnun Innri
endurskoðunar Reykja-
víkurborgar upplifðu
einelti á vinnustað
meðan þeir störfuðu
hjá fyrirtækinu.
40 milljónum nema fyrirhug-aðar og álagðar stjórn-
valdssektir vegna brota á skrán-
ingarskyldu gististaða. 80 prósenta
fjölgun hefur orðið á skráðum
heimagistingum það sem af er ári
2018.
Dómsmál Thomas Møller Olsen
mun óska eftir leyfi til að áfrýja dómi
Landsréttar til Hæstaréttar. Lands-
réttur staðfesti í gær dóm héraðs-
dóms sem dæmdi Thomas til 19 ára
fangelsisvistar fyrir morðið á Birnu
Brjánsdóttur og stórfellt fíkniefna-
brot.
„Málsmeðferðin fyrir Landsrétti
ber vott um virðingarleysi fyrir rétt-
indum ákærða,“ segir Björgvin Jóns-
son, verjandi Thomasar, og segir að
byggt verði á því í beiðni til Hæsta-
réttar að um brot á rétti skjólstæð-
ings síns til réttlátrar málsmeðferðar
hafi verið að ræða. Nefnir Björgvin
bæði lengd aðalmeðferðar sem lokið
var á einum degi og skeytingarleysi
gagnvart fjölda vafaatriða í málinu
sem hafnað sé með litlum eða engum
rökstuðningi í forsendum dómsins.
Eins og Fréttablaðið fjallaði um
stóð aðalmeðferð í Landsrétti frá
klukkan níu að morgni og þangað
til klukkan var langt gengin í tíu að
kvöldi eða í tæpar þrettán klukku-
stundir. „Það segir sig sjálft að hvorki
dómarar né aðrir þjónar réttarins,
saksóknari eða verjandi, geta haldið
fullkominni einbeitingu í svona
langan tíma,“ segir Björgvin.
„Við munum einnig byggja á því
að sjálfur dómsformaðurinn hafi
verið vanhæfur í málinu en fyrir
liggur að áður en hann var skipaður
dómari við Landsrétt þáði hann sem
aðstoðarmaður verktakagreiðslur frá
ákæruvaldinu fyrir lögfræðiráðgjöf,
á árunum 2009 til 2014,“ segir Björg-
vin og vísar til lögfræðiráðgjafar sem
Sigurður Tómas Magnússon veitti
Sérstökum saksóknara á umræddu
tímabili og fékk alls greiddar rúmar
50 milljónir í verktakagreiðslur.
Björgvin segir ljóst að þó að menn
hafi starfað fyrir ákæruvaldið valdi
það ekki sjálfkrafa vanhæfi til að
gegna dómarastörfum. Hins vegar
hafi Sigurður þegið verktaka-
greiðslur og það horfi öðruvísi
við.
Hann nefnir einnig hina
umdeildu handtöku um borð
í Polar Nanoq sem lögfræðilegt
atriði sem mikilvægt sé að fá
skorið úr um fyrir Hæsta-
rétti.
Í dómi Landsréttar
er fallist á að ákvæði
laganna um fullveldis-
rétt Íslands hafi ekki
getað veitt handtök-
unni lagastoð. Á hitt
beri að líta að hvorki
dönsk né grænlensk
yfirvöld hafi gert athuga-
semdir við að íslenskir lögreglu-
menn hafi farið um borð í skipið og
handtekið hina grænlensku ríkis-
borgara. Þau hafi jafnframt sýnt
samvinnu um aðgerðirnar.
Björgvin segir handtökuna
ekki verða lögmæta við það
eitt að henni hafi ekki verið
mótmælt sérstaklega af
dönskum eða grænlensk-
um yfirvöldum. Full
þörf sé á að fjallað
verði um hana í
Hæstarétti enda sé
niðurstaða bæði
héraðsdóms og
Landsréttar til
þess fallin að
valda mikilli
réttaróvissu.
„Veiti Hæsti-
réttur ekki áfrýjunarleyfi er ekki
annað að gera en leita til Mannrétt-
indadómstóls Evrópu,“ segir Björg-
vin. Hann segir mikilvægt að bæði
handtakan og málsmeðferðin sem
Thomas fékk fyrir Landsrétti, fái
endurskoðun, ef ekki fyrir Hæsta-
rétti, þá í Strassborg. Hann segir
mannréttindadómstólinn hafa
fjallað um handtökur á sjó og svipuð
álitaefni og hér er um að ræða og
ljóst sé að þau geti fallið innan gildis-
sviðs mannréttindasáttmála Evrópu.
Hann vísar til máls um handtöku
framkvæmda af frönskum sérsveitar-
mönnum um borð í báti með fíkni-
efnafarm. Niðurstaða MDE hafi verið
að fullnægjandi heimild fyrir hand-
tökunni hafi ekki verið fyrir hendi og
því um brot á ákvæðum sáttmálans
að ræða. adalheidur@frettabladid.is
Segir málsmeðferð í Landsrétti
hafa einkennst af virðingarleysi
Óskað verður eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í máli Thomasar Møller Olsen. Verjandi telur dómsfor-
manninn, Sigurð Tómas Magnússon, vanhæfan vegna verktakavinnu fyrir ákæruvaldið. Skera þurfi úr um
lögmæti handtökunnar. Fer með málið fyrir Mannréttindadómstólinn ef Hæstiréttur synjar beiðninni.
Verjandi Thomasar segir mikilvægt að handtakan og málsmeðferðin verði endurskoðuð. FréTTablaðið/anTon brink
Sigurður Tómas
Magnússon, dómsformaður
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
F
-D
A
A
4
2
1
7
F
-D
9
6
8
2
1
7
F
-D
8
2
C
2
1
7
F
-D
6
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K