Fréttablaðið - 24.11.2018, Page 10

Fréttablaðið - 24.11.2018, Page 10
Við látum framtíðina rætast. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.volkswagen.is Touareg Offroad. 3.0 TDI V6. Verð 9.290.000 kr. T- Roc. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 4.590.00 kr. Fjórhjóladrifna fjölskyldan. Tiguan Offroad. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 5.790.000 kr. Tilboðsverð 4.990.000 kr. Tiguan Allspace. 7 manna og rúmgóður. Verð 7.635.000 kr. Tilboðsverð 6.990.000 kr. Í f lokki stærri jeppa Í f lokki jepplinga Í f lokki minni jeppa Í f lokki jepplinga HEILBRIGÐISMÁL Hnattræn eftir- spurn eftir insúlíni til meðhöndlunar við sykursýki 2 mun aukast um 20 prósent á næstu 12 árum. Verði ekki gripið til aðgerða til að mæta þessari eftirspurn er líklegt að um 80 millj- ónir manna – aðallega í löndum Afr- íku, Asíu og á Kyrrahafseyjum – muni ekki hafa stöðugt aðgengi að insúlíni undir loks næsta áratugar. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum vís- indamanna við Stanford-háskóla og Genfarháskóla. Niðurstöðurnar voru birtar í læknaritinu Lancet í vikunni. Vísindamennirnir fram- reiknuðu hnattrænt nýgengi sykur- sýki 2 til ársins 2030 með því að rýna í gögn Alþjóðasamtaka sykursjúkra og rannsóknargögn úr 14 hóprann- sóknum, sem samanlagt taka til 60 prósenta þeirra sem glíma við sjúk- dóminn í heiminum í dag. Niðurstöðurnar gefa til kynna að fullorðnum einstaklingum sem glíma við sykursýki 2 muni fjölga um fimmtung á næstu 12 árum, úr 406 milljónum manna í ár í 511 millj- ónir árið 2030. Af þeim mun rúmlega helmingur búa í þremur löndum; Kína, Indlandi og Bandaríkjunum. Sykursýki er langvinnur og ólækn- andi efnaskiptasjúkdómur sem ein- kennist af blóðsykurhækkun vegna röskunar á insúlínvirkni, ónógri framleiðslu insúlíns eða hvors tveggja. Um 90 til 95 prósent allra til- fella sykursýki eru af tegund 2. Offita er sterkasti breytanlegi áhættuþáttur sykursýki. Samhliða auknu nýgengi mun eftirspurn eftir insúlíni – sem nauð- synlegt er fyrir þá sem glíma við sykur sýki 1 og 2 ef forðast á fylgi- kvilla á borð við blindu, nýrnabilun, slag og aflimun – aukast gríðarlega, eða úr 526 milljónum skammta árið 2016 í 634 milljónir árið 2030. „Vegna hækkandi aldurs, þéttbýl- ismyndunar og breyta sem tengjast mataræði og hreyfingu mun þeim fjölga mjög sem glíma við sykursýki 2,“ sagði Sanjay Basu, aðalhöfundur og prófessor við Stanford-háskóla. „Víða um heim er insúlín af skornum skammti, þrátt fyrir markmið Sam- einuðu þjóðanna um að berjast gegn langvinnum ekki-smitandi sjúkdóm- um sem hægt er að koma í veg fyrir.“ Niðurstöðurnar eru birtar með nokkrum fyrirvörum, t.d. er varða breytingar á mataræði og hreyfingu fólks. Lífsstílsbreytingar gætu haft jákvæð eða neikvæð áhrif á nýgengi. Í ítarefni rannsóknarinnar kemur fram að áætlaður fjöldi þeirra sem glíma við sykursýki 2 hér á landi í ár sé 17.607 (11.734-22.278) og að fjölga muni í þeim hópi um rúmlega þrjú Sigla blindandi í ólgusjó heimsfaraldurs Miklar áskoranir fylgja hnattrænum faraldri sykursýki 2. Vísindamenn telja að sykursjúkum muni fjölga um 100 milljónir fyrir árið 2030. Yfirlæknir á Landspítala segir ekki hægt að búa til áætlun fyrir sykursýki á Íslandi enda vanti upplýsingar um umfang vandans. Notkun insúlíns mun aukast verulega í heiminum. Nordicphotos/Getty þúsund manns og í 20.689 (14.316- 26.110) á næstu 12 árum. Þrátt fyrir að skýrar vísbendingar séu um að nýgengi sykursýki 2 sé að aukast hér á landi, líkt og víða annars staðar í heiminum, er í raun minna vitað um faraldsfræði sjúkdómsins hér á landi en mögulegt væri. „Vandamálið okkar er að við höfum ekki aðgengileg áreiðanleg gögn. Okkur sárvantar ný gögn til að geta gert áætlanir um heilbrigðis- þjónustuna,“ segir Rafn Benedikts- son, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlæknir innkirtladeildar Land- spítala. Rafn var formaður starfshóps sem skilaði í apríl síðastliðnum skýrslu um viðbrögð við vaxandi nýgengi sykursýki á Íslandi. Í niðurstöðukafla skýrslunnar er mikilvægi miðlægrar skrár um sykursýki ítrekað: „Án gagnagrunns eru einfaldlega engar undirstöður.“ Velferðarráðuneytið hefur fjallað um tillögur starfshópsins. Embætti landlæknis hefur verið falið að meta kostnað við að koma sykursýkisskrá á fót. Örvandi lyf eru kostnaðarsam- asti lyfjaflokkurinn hjá Sjúkratrygg- ingum Íslands og var árið 2016 799 milljónir króna. Þar á eftir koma lyf við sykursýki þar sem kostnaður var 615 milljónir króna. „Lyf við sykursýki eru næstdýrasti lyfjaflokkurinn hér á Íslandi. Það er lítið talað um það, og fólk gerir sér líklega almennt ekki grein fyrir umfangi vandans og því síður hvert þetta stefnir.“ Rafn telur gæta sinnu- og stefnu- leysis af hálfu stjórnvalda í mála- flokknum. „Ég hef talað um þetta við ýmsa aðila innan kerfisins síðustu 10 til 15 ár – en oftast mætt litlum skilningi“ segir Rafn. „Það vantar algjörlega umgjörð, stefnumótun, áætlanagerð og fjár- mögnun á þessu sviði. Við eigum reyndar fullt af gögnum sem hægt væri að nýta til þessa, en það þarf að vinna úr þeim með skipulögðum hætti og gera svo áætlanir sem verða að aðgerðum.“ kjartanh@frettabladid.is ✿ Lyf við sykursýki Blóðsykurlækkandi lyf og insúlín og skyld lyf 600 500 400 300 200 100 0 2014 2015 2016 57 0 59 8 61 5 Ekki eru til nægilega traustar upplýsingar um faraldsfræði sykursýki á Íslandi. 2 4 . n ó v E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R10 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A Ð I Ð 2 4 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 0 F B 1 1 2 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 7 F -F D 3 4 2 1 7 F -F B F 8 2 1 7 F -F A B C 2 1 7 F -F 9 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.