Fréttablaðið - 24.11.2018, Qupperneq 16
Kynningarherferðin er styrkt af Evrópusambandinu
– The European Union‘s Rights, Equality
and Citizenship Programme (2014-2020)
Á fundinum verður fjallað um grunnreglur persónuverndarlaganna
sem allir þurfa að kunna skil á, þýðingu þeirra fyrir einstaklinga
og þær kröfur sem lögin gera til fyrirtækja, stjórnvalda og annarra
sem vinna með persónuupplýsingar.
Allir velkomnir!
Nánari upplýsingar og skráning á www.personuvernd.is
OPINN KYNNINGARFUNDUR
MEÐ PERSÓNUVERND
Fundaröð Persónuverndar um nýja persónuverndarlöggjöf 2018
Mánudaginn 26. nóvember kl. 13-15
Hótel Reykjavík Natura, við Nauthólsveg
Aðalfundur
Golfklúbbsins Odds 2018
Aðalfundur Golfklúbbsins Odds verður haldinn í golfskálanum
í Urriðavatnsdölum þriðjudaginn 4. desember kl. 20:00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
3. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning sem síðan skal borinn upp
til samþykktar.
4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr.
ef einhverjar eru.
5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár.
Fjárhagsáætlun næsta árs kynnt.
7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
9. Kosning þriggja manna í kjörnefnd.
10. Önnur málefni ef einhver eru.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta,
Stjórn Golfklúbbsins Odds.
Austur-Kongó Alþjóðaheilbrigð-
isstofnun Sameinuðu þjóðanna
(WHO) hefur miklar áhyggjur
af ebólufaraldri sem nú geisar í
Austur-Kongó. Í vikulegri skýrslu,
sem fréttaveita AP fjallaði um í
gær, kom fram að 36 ný tilfelli
hafi verið skráð í vikunni. Þar af
greindust sjö börn undir tveggja
ára aldri með sjúkdóminn.
Það að svo ung börn veikist er
áhyggjuefni, að mati WHO. Fá
tilfelli þar sem börn hafa greinst
með ebólu þekkjast en sérfræð-
ingar stofnunarinnar telja að
börnin í Kongó hafi veikst vegna
sýktrar brjóstamjólkur eða ann-
arrar umgengni við sýkt foreldri.
Sjúkdómurinn berst manna á milli
með líkamsvessum.
Að sögn heilbrigðisyfirvalda í
Afríkuríkinu eru alls 346 staðfest
tilfelli frá því að faraldurinn braust
út. Þar af hafa 39 heilbrigðisstarfs-
menn sýkst og alls hafa 175 farist.
Faraldurinn er sá versti í skráðri
sögu ríkisins. Staðan gæti mögu-
lega versnað en sérfræðingar
WHO telja mikla hættu á því að
faraldurinn leiti út fyrir Austur-
Kongó. Í Úganda eru yfirvöld
farin að bólusetja heilbrigðis-
starfsmenn við sjúkdómnum en
WHO hefur ekki enn mælt með
ferðabanni.
Þótt faraldurinn einn og sér telj-
ist erfitt viðfangsefni hefur heil-
brigðisfólk einnig þurft að hafa
áhyggjur af átökum á svæðinu.
Um síðustu helgi þurfti að rýma
heilsugæslustöðvar og neyðar-
spítala WHO í borginni Beni eftir
að skæruliðar gerðu árás. Þar af
leiðandi þurfti að gera hlé á bólu-
setningum og allri hjálp við sjúka.
Samkvæmt tilkynningu frá WHO
um síðustu helgi særðist hins
vegar enginn heilbrigðisstarfs-
maður í árásunum. Átta friðar-
gæsluliðar féllu.
„WHO mun halda áfram að
vinna með heilbrigðisráðuneyt-
inu og samstarfsfólki til þess að
ráða niðurlögum þessa ebólufar-
aldurs. Við munum heiðra minn-
ingu þeirra sem hafa dáið í þessari
baráttu og fordæmum harkalega
þessa viðvarandi ógn við öryggi
heilbrigðisstarfsfólks,“ var haft
eftir Tedros Adhanom Ghebreye-
sus, framkvæmdastjóra WHO, í til-
kynningu um síðustu helgi.
thorgnyr@frettabladid.is
Versti ebólufaraldur í
sögu Austur-Kongó
Á fjórða hundrað hafa sýkst af ebólu í Afríkuríkinu Austur-Kongó. Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin hefur áhyggjur af gangi mála. Nokkur fjöldi ungra barna
greinist með ebólu og árásir skæruliða hafa torveldað starf stofnunarinnar.
Sjúklingur fær meðferð hjá Læknum í Austur-Kongó. NordicphotoS/AFp
Hvað er ebóla?
Samkvæmt grein á vefsíðu
Embættis landlæknis er ebóla
alvarleg veirusýking sem leiðir
til dauða í um 60 prósentum
tilfella. Byrjunareinkenni líkjast
einkennum inflúensu og má
á meðal þeirra telja þreytu,
höfuðverk og verki í hálsi. Þessi
einkenni geta svo þróast í til
að mynda uppköst, niðurgang,
útbrot með blæðingum frá
húð, slímhimnum, augu, nefi,
meltingarvegi og þvagrás og loks
endað í fjöllíffærabilun.
Sjúkdómurinn smitast við
snertingu líkamsvessa, við óvarin
kynmök og við neyslu á hráu
kjöti villtra dýra. Einstaklingar
verða fyrst smitandi þegar ein-
kenni koma fram en það getur
tekið frá tveimur til 21 dags.
Alls eru 346 staðfest
ebólutilfelli í faraldrinum í
Austur-Kongó. 175 hafa
farist.
MjAnMAr Samtök bæði lögfræðinga
og blaðamanna í Mjanmar afhentu
Win Myint, forseta ríkisins, bréf í
gær þar sem lýst var áhyggjum af
sakfellingu og fangelsun tveggja
blaðamanna Reuters. Þeir Wa Lone
og Kyaw Soe Oo voru dæmdir til sjö
ára fangelsisvistar fyrir brot á lögum
um ríkisleyndarmál. Blaðamenn-
irnir höfðu verið að vinna umfjöllun
um stríðsglæpi mjanmarska hersins
gegn þjóðflokki Róhingja.
Nánar tiltekið snerist umfjöll-
unin um morð á tíu Róhingjum og
leiddi rannsókn blaðamannanna í
ljós að jafnt hermenn sem almennir
borgarar hafi þar verið að verki. Alls
flúðu 720.000 Róhingjar til Bangla-
dess þegar aðgerðir hersins stóðu
yfir í Rakhine-ríki Mjanmar. Rann-
sakendur á vegum SÞ hafa sakað
herforingja um þjóðarmorð en saga
ofsókna gegn Róhingjum er áratuga-
löng.
„Ríkisleyndarmálalöggjöfin var
sett til þess að fyrirbyggja njósnir
á sínum tíma. Hún er ekki við-
eigandi í nútímanum og þarfnast
endurskoðunar. Sjö ára dómur
yfir blaðamönnunum er alvarleg
tálmun við starf fjölmiðla og rétt
almennings á upplýsingum,“ sagði
í bréfinu. Þar sagði enn fremur að
umfjöllun blaðamannanna hafi átt
skýrt erindi við almenning og að
báðar hliðar málsins hefðu komið
skýrt fram.
Win Myint forseti sagði, er hann
fékk bréfið, að hann þyrfti að skoða
málið í samhengi við landslög. Mál-
inu var áfrýjað til hæstaréttar fyrr í
mánuðinum. – þea
Fordæma fangelsun blaðamanna
dómnum yfir blaðamönnunum hefur verið harðlega mótmælt. NordicphotoS/AFp
AfgAnistAn Að minnsta kosti 26
fórust og 50 særðust þegar sjálfs-
morðsárásarmaður sprengdi sig í loft
upp í mosku á herstöð í Khost-fylki
Afganistans í gær. Reuters greindi
frá þessu og hafði eftir embættis-
mönnum á svæðinu. Öll hin föllnu
voru starfsmenn afganska hersins að
því er höfuðsmaður að nafni Abdull-
ah sagði við fréttavefinn.
Enginn hafði lýst yfir ábyrgð á
árásinni í gærkvöldi. Þó er ljóst að
talíbanar hafa ráðist gegn afgönsk-
um hermönnum af krafti á síðustu
vikum í von um að koma ríkisstjórn-
inni frá völdum og hermönnum vest-
rænna ríkja úr landi. Þannig hafa
hundruð farist, herstöðvar verið
eyðilagðar og vopn hirt í áhlaupum
talíbana.
Einungis þrír dagar voru liðnir í
gær frá því að sjálfsmorðsárás var
gerð á ráðstefnu afganskra klerka
í höfuðborginni Kabúl. Klerkarnir
höfðu safnast saman til þess að fagna
afmæli Múhameðs spámanns. Um
þúsund voru á ráðstefnunni en að
sögn embættismanna fórust 55. Þá
særðust 90 til viðbótar.
Talíbanar neituðu því að hafa
borið ábyrgð á þeirri árás og engin
önnur hreyfing lýsti yfir ábyrgð.
Ekki er hægt að útiloka að hryðju-
verkasamtökin sem kenna sig við
íslamskt ríki (ISIS) hafi gert árásina
en þau hafa ítrekað ráðist á Kabúl að
undanförnu. – þea
Tugir fórust í sjálfsmorðsárás
hermaður fær aðhlynningu eftir
sprengjuárásina. NordicphotoS/AFp
2 4 . n ó v e M b e r 2 0 1 8 L A u g A r D A g u r16 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
F
-C
1
F
4
2
1
7
F
-C
0
B
8
2
1
7
F
-B
F
7
C
2
1
7
F
-B
E
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K