Fréttablaðið - 24.11.2018, Side 18
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Sumir hér-
lendir hægri-
menn virðast
hafa gleymt
því að kjarni
hægristefn-
unnar er að
fólk á að hafa
frelsi til
athafna svo
lengi sem það
skaðar ekki
aðra.
Árið 2009 lést Harry nokkur Patch, pípulagninga-maður frá Somerset á Englandi. Hann var 111 ára. Harry Patch var ósköp venjulegur maður. Hann
vann við iðn sína uns hann settist í helgan stein 65 ára,
hann kvæntist og eignaðist tvo syni. Það var ekki fyrr en
síðustu æviárin sem frægðarstjarna hans fór að skína.
Harry hætti í skóla 15 ára og gerðist lærlingur hjá
pípulagningameistara. En innan við ári síðar hófst fyrri
heimsstyrjöldin. Harry var átján ára þegar hann var
kvaddur í herinn. Það var á nítjánda afmælisdaginn
hans sem hann mætti í skotgrafirnar í Belgíu. En stríði
Harry Patch lauk hratt. Þremur mánuðum síðar særðist
hann þegar sprengikúla sprakk yfir honum og félögum
hans. Þrír bestu vinir hans létust.
Harry neitaði alltaf að tjá sig um stríðið. Hann talaði
ekki einu sinni um það við eiginkonu sína og börn. En
þegar hann varð hundrað ára og ríkisstjórnir þeirra
landa sem mynduðu fylkingu Bandamanna í heims-
styrjöldinni tóku að keppast við að heiðra hann fyrir
framlag sitt ákvað hann að leysa frá skjóðunni.
Harry Patch tók við öllum orðunum og heiðursnafn-
bótunum sem á hann voru hengdar. En viðhafnarræður
hans voru langt frá því að vera það innantóma orða-
gjálfur sem tíðkaðist um mikilvægi styrjaldarinnar
og hetjuskap hermannanna. „Stjórnmálamenn hefðu
sjálfir átt að taka byssur sínar og útkljá ágreining sinn
sín á milli í stað þess að stofna til skipulagðra fjölda-
morða,“ sagði hann og úthúðaði stétt þeirra sem hengdu
á hann orðurnar. „Stríðið var tilgangslaust. Öll stríð eru
tilgangslaus. Hvers vegna ætti bresku ríkisstjórninni að
vera heimilt að hafa samband við mig og senda mig út
á vígvöllinn til að skjóta mann sem ég þekki ekki, til að
skjóta mann sem talar tungumál sem ég kann ekki?“
Stjórnmál og fótbolti
Fyrir viku sat ég á veitingahúsi hér í London ásamt hópi
gesta frá Íslandi. Það var glatt á hjalla, mikið skrafað
og skeggrætt. En allt í einu andvarpaði einn í hópnum
og spurði: „Við erum komin alla leiðina til London;
hvernig stendur á að við höfum ekki talað um annað
en íslenska pólitík í allt kvöld?“ Ég hugsaði mig um. Svo
svaraði ég: „Stjórnmál eru okkar fótbolti.“
Oft virðast stjórnmál eins og leikur. Á yfirborðinu
snúast þau um að vinna stig, skora mörk og klekkja á
andstæðingum.
Fyrr í mánuðinum var þess minnst að hundrað ár eru
liðin frá lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þegar Harry
Patch lést var hann síðasti eftirlifandi breski hermaður-
inn sem barist hafði í fyrri heimsstyrjöldinni. Harry
áfelldist stjórnmálamenn fyrir að hafa hrundið henni
af stað af vítaverðu gáleysi. Það var ekki líf stjórnmála-
manna sem lá við á vígvellinum. Það voru ekki þeir sem
horfðu upp á félaga sína sprengda í loft upp „svo ekkert
var eftir af þeim“. Fyrir stjórnmálamönnum voru hinir
föllnu tölur á blaði. Fyrir þeim var þetta leikur.
For, for og meiri for
Stjórnmál eru ekki fótbolti. Þau eru hins vegar leikur –
leikur að lífi fólks.
Þegar framlög sem ráðgerð hafa verið í fjárlaga-
frumvarpi til öryrkja eru lækkuð um milljarð er ekki
aðeins um tölur í Excel að ræða heldur munu mann-
eskjur af holdi og blóði líða fyrir. Þegar ekki er fjárfest
í hjúkrunarrými þarf 92 ára alvarlega slösuð kona að
liggja í rúmi inni á salerni Landspítalans með kúabjöllu
við hönd. Þegar afsláttur af veiðileyfagjaldi, eðlilegri
greiðslu fyrir nýtingu á sameiginlegri auðlind lands-
manna, er snaraukinn þurfa aðrir að stoppa í gatið úr
eigin pyngju.
Áður en Harry Patch lést heimsótti hann vígvöllinn
í Belgíu þar sem hann særðist áratugum fyrr. Þar sem
hann sat í hjólastól og horfði yfir grasivaxna jörð sagði
hann: „Þetta var ekkert annað en for, for og meiri for –
blönduð blóði.“
Þegar horft er yfir pólitískt landslag á Íslandi virðist
það stundum sama forarsvað og vígvöllurinn forðum –
blandað blóði þeirra sem stjórnvöld fórnuðu í Excel-
skjali dagsins eins og peði í tafli.
Leikur að lífi
GARÐATORGI 7
210 GARÐABÆ
Sími : 545-0800
is www.gardatorg.is
Til sölu
Til sölu fullkomið framleiðslu- / veislueldhús í
Reykjanesbæ með öllum tækjum og tólum.
• Hagstæður leigusamningur.
• Glæsilegir salir með sögu.
• Mjög hentugt fyrir framleiðslu á tilbúnum
réttum fyrir fyrirtæki, stofnanir og verslanir.
• Húsnæðið býður upp á mikla möguleika varðandi
matsölustað, veislur og framleiðslu á mat.
Upplýsingar veitir Pétur í síma 824 5050
Fullkomið framleiðslu- / veislueldhús
Ragnar G. Þórðarson
ragnar@gardatorg.is
s: 8995901
Athyglisvert samtal fór fram í breskum spjallþætti á dögunum.Þáttastjórnandinn, Jeremy Vine – þekktur fyrir að fara allra sinna ferða á reiðhjóli – ræddi hjólreiðar við vel
valda gesti. Ein þeirra fullyrti að hjólreiðamenn
væru plássfrekir á götunum, og þyrftu að taka tillit
til þeirra sem nota aðra fararskjóta. Einkum bíl-
stjóra.
Annar sagði ótrúlegt að ökumenn kvörtuðu yfir
hjólreiðafólki. Staðreyndin væri sú að í Bretlandi
létust þúsundir árlega í umferðarslysum, þar ríkti
offitufaraldur og sannað væri að þeir sem færu allra
sinna ferða í bílum glímdu frekar við þunglyndi en
þeir sem nota aðra fararskjóta. Nær væri að verð-
launa hjólreiðamenn en úthrópa þá.
Þetta er laukrétt. Fyrir liggur að einkabíllinn er
sennilega stærsta vandamálið í borgarskipulagi
nútímans. Staðreynd er að einkabíllinn mengar
ekki bara, heldur ýtir undir lífsstíl sem einkennist
af hreyfingarleysi, ofáti og inniveru. Bíllinn er
auðvitað góður og þægilegur fararskjóti svo langt
sem það nær, en sem grunnstoð samgöngukerfis í
nútímaborg er hann beinlínis skaðlegur.
Þetta ætti að blasa við öllum sem kynna sér
málið. Það vill gleymast í umræðu um uppbyggingu
svokallaðrar borgarlínu hvað það kostar að halda
áfram að byggja upp samgöngukerfi, sem einblínir
á einkabílinn. Hversu mikið af verðmætu landi fer
undir bílastæði til að mæta fólksfjölgun? Hvaða
nauðsynlegu vegaframkvæmdir og úrbætur þarf að
ráðast í til að mæta stórauknum bílafjölda?
Í Reykjavík virðast sumir hægri sinnaðir pólitík-
usar líta á það sem sérstakt hlutverk sitt að standa
vörð um einkabílinn og raunar flugvöll í miðju
borgarlandinu líka. Ekki er gott að sjá hvernig þetta
fólk hefur fundið það út að þetta sé sérstök hægri-
eða frjálslyndisstefna.
Í erlendum stórborgum hafa tveir af hægri-
sinnuðustu meginstraumsstjórnmálamönnum
samtímans átt þátt í að byggja upp nýtt samgöngu-
kerfi. Michael Bloomberg í New York hefur leitt
stóraukna áherslu á hjólreiðar. Og Boris Johnson
í London lagði „hraðbrautir“ fyrir hjólreiðafólk.
Hann gekk skrefinu lengra með því að hækka veru-
lega vegatolla á ökumenn sem villast inn í mið-
borgina á einkabílnum.
Sumir hérlendir hægrimenn virðast hafa gleymt
því að kjarni hægristefnunnar er að fólk á að hafa
frelsi til athafna svo lengi sem það skaðar ekki aðra.
Einkabíllinn er þeirrar gerðar að hann skemmir út
frá sér og hefur ýmis óæskileg áhrif. Því er óskiljan-
legt að sumir stjórnmálamenn telji það sérstaka
köllun sína að hygla einkabílnum umfram aðra
samgöngumáta sem ekki eru jafn skaðlegir.
Stjórnmálamenn þurfa að hafa hugrekki til að
leggja fram hugmyndir og fylgja þeim eftir, en
stökkva ekki endalaust eftir kreddum í baklandinu.
Einkabíllinn er ekki framtíðarferðamáti í nútíma-
borg. Alveg sama hversu oft frekir kallar af báðum
kynjum tönnlast á því.
Hægri, vinstri, snú
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
F
-D
0
C
4
2
1
7
F
-C
F
8
8
2
1
7
F
-C
E
4
C
2
1
7
F
-C
D
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K