Fréttablaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 20
Nýjast Eyrarrósin er viðurkenning sem er veitt framúrskarandi menningarverkefnum utan höfuðborgarsvæðisins. Til þess að koma til greina þurfa verkefni að hafa fest sig í sessi, vera vel rekin, hafa skýra framtíðarsýn og hafa haft varanlegt gildi fyrir lista- og menningarlíf í sínu byggðarlagi. Sex verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta svo tilnefningu til sjálfrar Eyrarrósarinnar sem verður afhent við hátíðlega athöfn í febrúar næstkomandi. Eyrarrósinni fylgja peninga- verðlaun að upphæð 2.000.000 krónur. Hin tvö tilnefndu verkefnin hljóta einnig peningaverðlaun; 500 þúsund hvort. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar afhendir verðlaunin. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL MIÐNÆTTIS 7. JANÚAR 2019 Upplýsingar og umsóknarform má finna á vef Eyrarrósarinnar WWW.LISTAHATID.IS/EYRARROSIN Öllum umsóknum verður svarað. AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Sigurganga Keflvíkinga stöðvuð á Ásvöllum Haukar komust upp um miðja deild í Domino’s-deild karla með sautján stiga sigri á Keflavík í áttundu umferð í gær. Haukar tóku á móti sjóðheitum Keflvíkingum sem voru búnir að vinna sex leiki í röð í deildinni og voru gestirnir sterkari framan af. Þegar líða tók á leikinn herti vörn Haukanna skrúfurnar í varnarleiknum og um leið kom betra flæði í sóknarleikinn. Hér keyrir Hjálmar Stefánsson inn undir körfuna. Fréttablaðið/sigtryggur ari Valur - breiðablik 114-102 Valur: Kendall Lamont Anthony 33/10 stoð- sendingar, Austin Magnus Bracey 28, Aleks Simeonov 22, William Saunders 14, Illugi Steingrímsson 7, Ragnar Nathanaelsson 7. breiðablik: Christian Covile 33, Snorri Vignisson 21, Jure Gunjina 19, Hilmar Pétursson 10, Sveinbjörn Jóhannesson 8, Erlendur Ágúst Stefánsson 6 . Haukar - Keflavík 81-64 Haukar: Hjálmar Stefánsson 21, Marques Oliver 16/13 fráköst, Daði Lár Jónsson 15, Haukur Óskarsson 13, Arnór Bjarki Ívarsson 10, Hilmar Smári Henningsson 2. Keflavík: Hörður Axel Vilhjálmsson 17, Gunnar Ólafsson 14, Michael Craion 11/12 fráköst, Magnús Már Traustason , Reggie Dupree 6, Sigþór Ingi Sigurþórsson 3. Leikur Njarðvíkur og Stjörnunnar var enn í gangi þegar blaðið fór í prentun. Domino’s-deild karla Fótbolti Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur jafnað sig á ökklameiðslunum sem hann varð fyrir í leik Everton gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni fyrr í þessum mánuði. Það er því möguleiki á því að landsliðsfélagarnir Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði og leikmaður Cardiff City, og Gylfi Þór mætist inni á miðsvæðinu í leik lið­ anna á Goodison Park í dag. „Ég veit af eigin raun hversu mikil væg ur leikmaður Gylfi hef­ ur verið fyr ir ís lenska landsliðið og nú er hann að gera það sama fyr ir Ever ton. Það verður erfitt að stöðva hann, en ég  hlakka til að mæta  honum á nýj an leik,“ sagði Aron aðspurður af Liverpool Echo út í samband sitt og Gylfa. – hó Aron og Gylfi mætast í dag 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 l A U G A r D A G U r20 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð sport HAnDbolti Selfoss mætir pólska liðinu KS Azoty­Pulawy í seinni leik liðanna í 32­liða úrslitum EHF­bik­ arsins á heimavelli í dag. Verkefnið verður ansi strembið fyrir Selfyss­ inga sem töpuðu með sjö mörkum, 26­33, í fyrri leik liðanna í Póllandi en þó ekki óyfirstíganlegt. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfyssinga, var hóflega bjartsýnn þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hans.  „Við vitum að þetta eru átta mörk sem við þurfum að vinna með og að  þetta verður strembið. Við þurfum að byrja leikinn vel, spila góða vörn og fá markvörslu og með því vinna tvö mörk aftur á hverju korteri,“ sagði Patrekur sem tók undir að það myndi henta Selfyssingum að það yrði mikill hraði í leiknum. „Við þurfum að vera óhræddir í sókn og spila hratt. Setja þetta upp sem nokkra litla leiki eins og við gerum oft á æfing­ um. Við munum Setjum leikinn upp í nokkrar litlar lotur Selfoss mætir pólska liðinu Azoty-Pulawy á heimavelli í dag þar sem Selfyss- ingar þurfa að vinna upp sjö marka forskot. Patrekur segist ætla að setja leikinn í dag upp í nokkrar litlar lotur til að minnka áhersluna á forskot pólska liðsins. Við þurfum að vera óhræddir í sóknar- leiknum og spila hratt. Þeir eru með þyngra lið en við og við getum nýtt okkur það. Patrekur Jóhannesson reyna að horfa ekki mikið á töfluna hverju sinni, frekar einbeita okkur að því að gera hlutina rétt. Þeir eru með talsvert þyngra lið en við og reynslumikið,“ sagði Patrekur. Pólskir, króatískir og bosnískir landsliðsmenn eru í liði Azoty. „Ég spilaði á móti nokkrum leik­ mönnum þeirra, það er erfitt að verjast gegn Marko Panić sem er hægri skyttan þeirra en er svo gott sem jafnvígur á báðar hendur. Það er ekki einfalt að verjast því.“ Það er stutt á milli leikja hjá liði Selfyssinga þessa dagana í deild og Evrópu. Patrekur tók því fagnandi að vinna leikinn gegn Fram í vik­ unni eftir þrjá leiki í röð án sigurs. „Menn eru auðvitað smá lemstr­ aðir en við lékum vel gegn Fram, sér­ staklega varnarlega. Menn voru að njóta sín betur en í síðustu leikjum.“ Selfyssingar eru ekkert að breyta undirbúningnum þrátt fyrir mikil­ vægi leiksins. „Við hittumst bara og lyftum í hádeginu eins og alltaf. Það er algjör óþarfi að breyta til.“ kristinnpall@frettabladid.is 2 4 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 0 F B 1 1 2 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 7 F -E 4 8 4 2 1 7 F -E 3 4 8 2 1 7 F -E 2 0 C 2 1 7 F -E 0 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.