Fréttablaðið - 24.11.2018, Side 36

Fréttablaðið - 24.11.2018, Side 36
Haukur og Vaida ætla að gera húsið upp eftir reglum Minjaverndar. Hér í geymslunni er búið að tæma margar hillur og skúffur. Eitt og annað má þó finna þar forvitnilegt. Í þessum bakka má greina einangr- unarband, tvinnakefli, úr, penna, hárkamb, skrúfur og eldspýtustokka frá miðri síðustu öld. Haukur hefur varið mörgum stundum í að sortéra smádót. Dagbókaropna frá 1880 rituð af Alberti, langalangalangafa Hauks. var búin að setja dúk á eldhús- gólfið en hann segir vera fjalir undir honum. „Það var líka teppi á stof- unni og einhvern tíma voru settar spónaplötur ofan á fjalirnar. Hér inni í gamla svefnherberginu rifum við ábyggilega sex lög af dúkum og teppum áður en við komum niður á þessar fínu gólffjalir sem við ætlum að halda.“ Til hliðar við eldhúsið var borð- stofa, notuð þegar mikið var haft við, að sögn Hauks. Nú er þar barnaherbergi og inn af því hjóna- herbergi. „Hér var stofan, þó fátt bendi til þess nú. Hillur voru um alla veggi, fullar af myndum, styttum og öðrum pínulitlum skrautmunum.“ Hann sýnir okkur myndir. Skápur- inn og gardínurnar hafa fengið að halda sér. Rauf þriggja kynslóða hefð Nú er komið ilmandi te í bolla hjá Vaidu og við tyllum okkur aftur í eldhúsinu. Haukur segir fjölda fólks tengjast húsinu, þess vegna leyfi hann fjölskyldunni að fylgjast með því sem þau Vaida séu að gera, í gegnum fésbókarsíðu. Ég spyr hvort einhverjir hafi gert tilkall til hluta sem hann hefur sýnt þar. „Nei. Margir segjast muna eftir hinu og þessu en eru ekki að falast eftir neinu. Frá því langalangamma flutti út og þar til ég tók við húsinu liðu átta ár. Amma átti húsið þá, ég bjó hér eitt sumar og fleiri úr fjölskyldunni hafa notað það. Á þeim tíma gaf amma öllum frjálsar hendur með að taka það sem þeir vildu, þannig að munir sem höfðu tilfinningagildi fyrir einhverja voru farnir þegar ég tók við húsinu, ekk- ert verðmætt í peningum talið, bara smáhlutir eða handavinna. Allt hér í eldhúsinu er frá tíð langa- langömmu – nema barnadótið, og það eina sem ég hefði viljað hafa eru kollarnir, það er búið að taka nokkra.“ Haukur segir að Herdís, langa- langamma hans,  hafi mestmegnis séð sjálf um viðhald og smíðar innan húss meðan hún bjó þar. „Þegar eitthvað bilaði eða þurfti að Það er Því búin að vera fjölskylduhefð í Þrjár kynslóðir að fara upp á loft eftir rigningar og tæma fötu sem Þar var. gera þá gerði hún það sjálf. Ef þurfti að smíða vegg þá bara gerði hún það. Allt var hugsað til bráðabirgða og sextíu árum seinna er það þann- ig enn. Ég er svo sem ekki saklaus af sömu aðferðum. Þegar ég tók við húsinu þá var þakið eiginlega að fjúka af. Ég náði mér í gamalt járn, sem var samt alveg í lagi, og negldi ofan á gamla járnið með aðstoð smiðs. Þá lak ekki lengur. Setti líka nýjan þakglugga í stað þess gamla og þá hætti að leka þar. Amma mín man ekki eftir öðru en að þakglugg- inn hafi lekið. Það er því búin að vera fjölskylduhefð í þrjár kynslóðir að fara upp á loft eftir rigningar og tæma fötu sem þar var. Ég hef ekki hundsvit á smíðum en það tók mig dag að skipta um þennan þak- glugga. Þar með rauf ég margra ára- tuga hefð.“ Bjuggu þrjú í litlu risherbergi Uppi í risi er eitt svefnherbergi. „Bróðir langalangömmu bjó hér niðri og var með húsið nema hvað langalangamma bjó í litla herberg- inu uppi á lofti og hún tók ömmu mína, barnabarn sitt, í fóstur. Svo bjó tengdapabbi langalangömmu þar með henni líka, þannig að þau voru þrjú í þessu litla her- bergi. Amma var komin fram yfir fermingu þegar þær fluttu hingað niður. Fermingarveislan hennar var haldin í risherberginu, ég hef séð myndir úr henni, þar var fullt af fólki og kökuhlaðborð. Gólf- flöturinn svona svipaður og í þessu eldhúsi, ef ekki minni, en herbergið náttúrlega undir súð. Þar var kola- eldavél og lítill vaskur. Þetta var allt í senn svefnherbergi þriggja, eldhús og stofa.“ Flest hefur verið gert til bráða- birgða í húsinu síðustu fjörutíu árin, að sögn Hauks. „Þegar langa- langamma var sjötug var alveg kominn tími á gluggana, þá hugs- uðu allir, jæja, hún er nú orðin sjötug, það tekur því ekki að fara út í miklar framkvæmdir núna, við skulum bara kítta hérna – smá frauðplast og teip yfir, látum þetta duga. Svo liðu 34 ár og enn er verið að detta inn og kítta. Þetta hús er skondið að mörgu leyti. Stórkost- legt hús.“ 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 0 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 8 0 -2 9 A 4 2 1 8 0 -2 8 6 8 2 1 8 0 -2 7 2 C 2 1 8 0 -2 5 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.