Fréttablaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 38
Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg í Reykjavík er fyrir löngu orðin rótgróinn
stöpull í menningarlífi borgar-
innar og fastur liður í lífi margra
landsmanna. Verslunin hefur verið
til húsa á sama stað í rúmlega 50
ár og var lengi tengd bókaútgáfu.
Í dag er helsta áherslan lögð á gott
úrval af íslenskum bókum og góða
þekkingu starfsmanna á íslenskri
bókmenntasögu, segir Héðinn
Finnsson, innkaupastjóri íslenskra
bóka. „Við leggjum okkur fram
við að hafa til sölu allt sem er nýtt
í íslenskri útgáfu, allt frá bókum
frá stærri forlögunum til lítilla
einstaklingsútgáfna, skáldsögur,
ljóð, barnabækur og fræðirit og svo
framvegis. Við birgjum okkur líka
upp af eldri bókum og reynum að
eiga allt sem er enn í umferð þann-
ig að fólk geti leitað til okkar sama
hvaða bók það vantar. Við erum
einnig með grúskhorn með bókum
frá Sunnlenska bókakaffinu fyrir
þá sem eru að leita að gersemum.“
Forlögin vanda sig
Miklar breytingar hafa orðið á les-
mynstri almennings á undanförn-
um árum þar sem m.a. hljóðbækur
og rafbækur hafa sótt í sig veðrið
á kostnað hefðbundinna bóka.
„Bæði hljóðbækur og rafbækur
eru vinsælar og áttu tvímælalaust
þátt í samdrætti í bóksölu enda
bæði þægilegar og svo auðvitað
umhverfisvænni. En fólk kaupir
þá frekar bækur sem eru fallegar,
vandaðar og eigulegar.“
Og sú þróun sést í bókaútgáfu
hér á landi segir Héðinn og bendir
á að öll forlögin vandi sig við að
gefa út góðar bækur í fallegu broti.
„Þá hafa alls konar litlar bókaút-
gáfur sprottið fram á síðustu árum
sem hafa sprautað nýju lífi í t.d.
ljóða- og barnabókaútgáfu.“
Ljóðabækur eru sannarlega
að sækja í sig veðrið og finnst
Héðni ungt fólk einna duglegast
við að kaupa slíkar bækur. „Svo
höfum við auðvitað þurft að
sinna ört stækkandi kúnnahópi
sem er erlent ferðafólk, bæði
með gjafavöru og svo sem betur
fer með íslenskum bókmenntum
og bókum um Ísland á erlendum
tungum. Það er sérlega skemmti-
legt hvað mörg þeirra eru áhuga-
söm um íslenska rithöfunda og
þekkja vel til þeirra.“
Notalegt andrúmsloft
Mikil áhersla er lögð á notalegt
andrúmsloft innan verslunarinnar
enda líður fólki almennt vel innan
um bækur. „Viðskiptavinir geta
tyllt sér í hægindastóla og skoðað
bækurnar eða fengið þær lánaðar
upp á Rúbluna bókakaffi til að
glugga í með kaffinu. Við stærum
okkur af því að hafa starfsfólk sem
hefur áhuga og þekkingu á bók-
menntum og við viljum geta svarað
flestum þeim spurningum sem eru
bornar fyrir okkur. Sé bók ekki
fáanleg hjá okkur munar okkur
ekki um að finna út hvort hún sé
yfirhöfuð fáanleg annars staðar og
beinum þá fólki í rétta átt.“
Stemning fyrir jólin
Mikið verður um að vera í Bóka-
búð Máls og menningar vikurnar
fyrir jólin eins og alltaf. „Síðustu
ár höfum við boðið rithöfundum
að koma og spreyta sig í bóksölu. Í
fyrra var það á tveimur laugardög-
um í desember og við stefnum á að
gera þetta líka í ár. Það er virkilega
gaman geta keypt bók eftir uppá-
halds rithöfundinn sinn af honum
sjálfum. Þá mun leikhópurinn
Kriðpleir stýra aðventusamveru-
stund í anda Jólagesta.“
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 |
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Bókabúð Máls og menningar hefur verið staðsett á sama stað á Laugaveginum í rúmlega 50 ár. MYNDIR/ANTON BRINK
,,Við stærum okkur af því að hafa starfsfólk sem hefur áhuga og víðtæka þekkingu á bókmenntum og við viljum
geta svarað flestum þeim spurningum sem viðskiptavinirnir bera upp við okkur,“ segir Héðinn Finnsson.
Allar nýjustu íslensku bækurnar eru til í Bókabúð Máls og menningar.
Framhald af forsíðu ➛ Við leggjum okkur
fram við að hafa til
sölu allt sem er nýtt í
íslenskri útgáfu, allt frá
bókum frá stærri forlög-
unum til lítilla einstakl-
ingsútgáfna.
Það er fátt
notalegra en að
handleika nýjar
íslenskar bækur.
Margir kíkja í
nýjar bækur
yfir kaffibolla á
Rúblunni bóka-
kaffi.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
8
0
-3
D
6
4
2
1
8
0
-3
C
2
8
2
1
8
0
-3
A
E
C
2
1
8
0
-3
9
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K