Fréttablaðið - 24.11.2018, Page 72

Fréttablaðið - 24.11.2018, Page 72
Ég ólst ekki upp við laufabrauð austur á Selfossi en kynntist því þegar ég fór í húsmæðra- skólann. Í dag finnst mér laufabrauðið ómissandi hluti af jólahaldinu. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Frábær hóptilboð Sjáðu öll tilboðin okkar á www.kinahofid.is Opið alla daga vikunnar frá kl. 11:00 - 22:00 Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi www.kinahofid.is l Sími 554 5022 TILBOÐ 4 réttir + súpa dagsins aðeins 1.790 kr.* NAUTAKJÖT Í OSTRUSÓSU KJÚKLINGUR Í KARRÝSÓSU DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU NÚÐLUR MEÐ GRÆNMETI *tekið með heim – 2.100 kr. ef borðað er á staðnum. Það á að gefa börnum brauð er yfirskrift fjölskylduviðburðar á vegum Borgarsögusafns sem fram fer í Viðey á morgun, sunnudag, kl. 13.30. Líkt og undan- farin ár ætlar Margrét Sigfúsdóttir að leiðbeina fólki við laufabrauðs- gerðina. „Það er einstaklega gaman að skera út laufabrauð í þessu fallega húsi sem Viðeyjarstofa er og mikil stemning að vera úti í eyjunni. Ég kenni réttu handtökin og segi frá hefðinni, hvernig laufabrauðs- deigið er búið til og hvers vegna þar er eins þunnt og raun ber vitni,“ segir Margrét glöð í bragði og spyr: „Hvað er fallegra nú þegar aðventan er að byrja en að vera úti í Viðey og njóta dagsins?“ Hún hvetur gesti til að fjöl- menna út í eyjuna og taka með sér laufabrauðsjárn og hnífa til útskurðar en einhver áhöld verða einnig á staðnum. Í Viðeyjarstofu verður hægt að kaupa gómsætar veitingar við allra hæfi. „Gaman er að fá sér heitt kakó og eplaköku eða vöfflu með rjóma. Svo kemur jólasveinninn en hann gerir alltaf mikla lukku hjá börnunum. Þegar búið er að steikja laufabrauðið er siglt til baka og komið heim fyrir kvöldmat.“ Laufabrauð sælgæti Íslend- inga Að hnoða hveitideig og fletja út í þunnar kökur sem síðan eru skornar út og steiktar er einn af elstu og sérstæðustu jólasiðum þjóðarinnar, en í elstu heimildum frá 18. öld er fjallað um laufa- brauðið sem sælgæti Íslendinga. Metnaðurinn við gerð þess fyrr á tímum var jafnvel svo mikill að þeir sem sköruðu fram úr í listfengi voru lánaðir á milli bæja. „Þetta er norðlenskur siður sem hefur breiðst út um landið. Ég ólst t.d. ekki upp við laufabrauð austur á Selfossi en kynntist því þegar ég fór í húsmæðraskólann og síðar Kennaraskólann. Í dag finnst mér laufabrauðið ómissandi hluti af jólahaldinu,“ segir Margrét. Mörgum hentar vel að kaupa laufabrauðskökurnar útflattar og tilbúnar fyrir útskurð en Margrét segir að í raun sé ekki flókið að búa þær til frá grunni og gefur hér upp- skrift sem nemendur Hússtjórnar- skólans nota árlega með góðum árangri. Laufabrauð 35-40 kökur 700 g hveiti 1,5 msk. sykur ⅛ tsk. lyftiduft ⅛ tsk. hjartarsalt 0,5 l mjólk 50 g smjör 4-5 stk. palmín jurtafeiti til steikingar Blandið þurrefnum saman í skál. Hitið mjólk og smjör saman í potti að suðu. Hellið yfir hveiti- blönduna, setjið á borð og hnoðið vel saman. Skerið deigið í litla bita, helst jafnstóra en deigið á að duga í 35-40 kökur. Fletjið hvern bita þunnt út, leggið disk sem er 21 cm í þvermál yfir deigið og skerið út. Passið að hafa hæfilegt magn af hveiti á borðinu svo kakan sé laus og notið ekki of mikinn kraft þegar hún er flött örþunnt út. Pikkið hverja köku með gaffli fyrir steikingu. Hitið palmín jurtafeiti að 180°C í potti og steikið eina köku í einu. Látið skurðinn snúa niður þegar kakan er sett ofan í pottinn og snúið kökunni við þegar hún hefur fengið gullinn lit. Þrýstið pottloki, eða öðru fargi, yfir hverja köku eftir steikingu til að slétta úr henni. Athugið að aldrei má víkja frá heitri olíunni og fylgjast þarf vel með hitastiginu. Þess þarf að gæta að ekki komi svartur reykur upp úr olíunni en þá á að setja lok á pottinn og draga hann gætilega af heitri hellunni. Ekkert vatn má vera nálægt pottinum og ekkert sem börn geta togað í. Nauðsynlegt er að skrá sig á videyjarstofa@videyjarstofa.is. Ferjan siglir til Viðeyjar frá Skarfa- bakka klukkan 13.15, 14.15 og 15.15. Laufabrauðsgerð í Viðey Laufabrauð verður skorið út og steikt í Viðey á morgun. Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hús­ stjórnarskólans í Reykjavík, ætlar að kenna gestum réttu handtökin við laufabrauðsgerðina. Margrét segir einstaklega gaman að skera út laufabrauð í því fallega húsi sem Viðeyjarstofa er og mikil stemning að vera úti í eyjunni á þessum tíma ársins. Í heimildum frá 18. öld er fjallað um laufabrauðið sem sælgæti Íslendinga. Metnaðurinn við gerð þess fyrr á tímum var jafnvel svo mikill að þeir sem sköruðu fram úr í listfengi við útskurðinn voru lánaðir á milli bæja. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . N ÓV e M B e R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 2 4 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 0 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 8 0 -2 9 A 4 2 1 8 0 -2 8 6 8 2 1 8 0 -2 7 2 C 2 1 8 0 -2 5 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.