Fréttablaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 73
Í „hættulegum“
aðstæðum, þar sem
reykingalöngunin herjar
á, er gott að vera vel
undirbúinn með því að
nota nikótínplástur sem
slær á verstu fráhvarfs-
einkennin.
Ein sígaretta leiðir af annarri og áður en þú veist af er pakkinn búinn og þú á leið út í búð til
að endurnýja birgðirnar. Að öllum
líkindum hefur þú ekki hugsað
nánar um hvenær og hvernig
sígaretturnar hafa horfið. Þær eru
bara búnar og nú þarftu að kveikja
þér í – á stundinni! Ef til vill ættirðu
að veita því athygli hvenær, hvers
vegna og í hvaða félagsskap þú
reykir, að minnsta kosti ef þú vilt
hætta að reykja.
Haltu dagbók
og skoraðu á þig
Áður en reykbindindið hefst er
skynsamlegt að átta sig á reykinga-
venjum og reykingaumhverfi.
Skráðu niður þær sígarettur sem
þú reykir yfir daginn, hversu
margar, á hvaða tíma dagsins, við
hvaða aðstæður, með hverjum þú
reykir, hvaða sígarettum er erfiðast
að sleppa, og svo framvegis, og
íhugaðu hvernig þú ætlir að höndla
þessar aðstæður án sígarettu. Þegar
þú ert búin/búinn að fá yfirlit yfir
reykingavenjurnar getur þú byrjað
að skora á þig með því að segja
skilið við venjurnar eina eftir aðra.
Þekktu reykingavenjur þínar
– og hættu að reykja
Gott er að skrá niður hversu margar sígarettur eru reyktar yfir daginn, við hvaða aðstæður og með hverjum.
Margir strengja þess heit um áramót
að drepa í sígarettunni fyrir lífstíð.
hvarfseinkennunum sem koma til
með að gera vart við sig. Til þess að
losna úr viðjum vanans getur verið
skynsamlegt að nýta sér nikótínlyf
til þess að nýja lífið verði auð-
veldara.
Tilfinningasami
reykingamaðurinn
Á meðan sumir reykja af vana,
félagslegum ástæðum eða vegna
þess að þeir eru háðir nikótíni eru
einnig reykingamenn sem reykja
þegar þeir lenda í tilfinningalegu
ójafnvægi. Til dæmis ef þeir eru
leiðir eða finna fyrir streitu. Ef þú
ert einn af þeim reykingamönnum
sem reykja margar sígarettur í
mótbyr eða á köflum þegar álagið
er mikið getur verið nauðsynlegt
að leggja meiri vinnu í andlegu
hliðina. Í slíkum tilvikum er gott
að hafa reiðubúna varaáætlun
þegar þú ætlar að grípa til sígarett-
anna þegar þér til dæmis leiðist.
Hugsanlegt er að þú getir leitt
hugann frá sígarettunum með því
að fara í göngutúr, stunda jóga,
spila leik á símanum, hringja í
vin eða lesa bók. Finndu út hvað
kemur þér til hjálpar og nýttu þér
valkostina þegar þú lendir í tilfinn-
ingalegu ójafnvægi.
Þessi grein er kostuð af Artasan.
Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceM-
int/Spearmint lyfjatyggi gúmmí,
Nicotinell Mint munnsogs töflur,
Nicotinell forðaplástur. Inniheldur
nikótín. Til meðferðar á tóbaks-
fíkn. Lesið vandlega upplýsingar
á umbúðum og fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upp-
lýsingum um áhættu og aukaverk-
anir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið
á www.serlyfjaskra.is.
Áður en þú gerir
hernaðaráætlun
varðandi reyk-
bindindið er
mikilvægt að
þú áttir þig vel á
reykingamynstr-
inu og ósiðum
sem tengjast því.
Þá áttu auðveld-
ara með að takast
á við verkefnið af
fullum krafti og
takast að hætta
endanlega.
Þú getur til dæmis prófað þig
áfram með því hætta að drekka
kaffi og drekka te í staðinn ef þú
tengir kaffi við reykingar. Jafn-
framt getur þú breytt um sígar-
ettutegund yfir í tegund sem þér
líkar ekki bragðið af eða skipt út
nokkrum af sígarettum dagsins
fyrir nikótínlyf eða klippt af sígar-
ettunum þannig að þú reykir bara
hálfa sígarettu í einu. Með því að
koma óreglu á reykingarnar færðu
frekar grundvöll til að ganga alla
leið og hefja reykbindindi. Þegar
þú ert tilbúin/n skaltu ákveða
dagsetninguna sem þú hefur nýtt
reyklaust líf.
Félagslegi reykingamaðurinn
Margir reykingamenn gefa í og
reykja enn meira þegar þeir njóta
samvista við aðra. Ef þú ert félags-
legur reykingamaður þarftu að haga
þér í samræmi við það í reykbind-
indinu og reyna að forðast eins og
mögulegt er aðstæður þar sem sígar-
ettur freista. Þú getur annaðhvort
kosið að sleppa alveg að stunda
félagslíf eða búið þig undir að takast
á við slíkar aðstæður án þess að
reykja. Þegar þú lendir í „hættuleg-
um“ aðstæðum þar sem reykinga-
löngunin herjar á þig getur þú verið
vel undirbúinn með því að nota
nikótínplástur sem slær á verstu
fráhvarfseinkennin. Jafnframt getur
verið skynsamlegt að fara varlega í
áfengisdrykkju og segja viðstöddum
frá því að þú sért í reykbindindi
þannig að þú fáir stuðning og þér
verði jafnvel hlíft við „ilminum“ af
sígarettum vinanna.
Reykingamaður af vana
Þegar þú greinir reykingavenjur
þínar kemst þú ef til vill að því
að þú reykir vegna þess að þú ert
orðin vön/vanur því – og ert orð-
in/n háður því. Í slíkum tilvikum
getur verið hjálplegt að gjörbreyta
hversdeginum með breytingum
eins og meiri hreyfingu eða finna
upp á nýjungum til að skapa nýjar
venjur sem leiða athyglina frá frá-
REYKLAUS
VERTU
Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ
Nicotinell
Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín.
Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Nicotinell 5x10 copy.pdf 1 23/12/2017 09:30
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 2 4 . N óv e M b e r 2 0 1 8
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
8
0
-3
8
7
4
2
1
8
0
-3
7
3
8
2
1
8
0
-3
5
F
C
2
1
8
0
-3
4
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K