Fréttablaðið - 24.11.2018, Side 80

Fréttablaðið - 24.11.2018, Side 80
lega ekki að búa til neina Hollywood-mynd. Í viðtölum fór hann hraklegum orðum um nútímakvikmyndagerð sem heilalausa afþreyingu. Verk hans yrði sálfræðilegt, fjallaði um sammannlegar tilfinningar og lýsingin á sam- félagi steinaldarfólksins yrði eins raunsönn og frekast yrði unnt. Í því skyni fékk hann til liðs við sig óþekkta leik- ara, sem fyrst og fremst voru valdir út frá útliti og líkams- burðum. Sem fyrr segir kom vel til greina að ráða íslenska leikara í ýmis aukahlutverk og fengu framleiðendur skrá frá Leikarafélaginu um alla félagsmenn þeirra ásamt ljós- myndum. Var þar sérstaklega horft til þess að leikararnir væru sterkbyggðir, en þó ekki í miklum holdum, enda lágu steinaldarmenn ekki í vel- lystingum. Þá var það talinn kostur ef leikararnir bæru ör eða einhver líkamslýti, sem útbreidd voru í tíð forfeðr- anna. Samið var við nokkra íslenska leikara og var til þess tekið að þeir þættu hraustari en franskir kollegar þeirra. Ekki kom til mála að láta ísaldar- fólkið mæla á reiprennandi ensku eða frönsku, heldur var breski rit- höfundurinn og málvísindamaður- inn Anthony Burgess fenginn til að semja sérstakt tungumál fyrir myndina. Burgess er kunnastur fyrir skáldsögu sína A Clockwork Orange og hafði samið sérstakt slangurmál fyrir þá sögu, sem jafn- framt var notað í kvikmyndagerð hennar árið 1971. Að þessu sinni skóp hann heildstætt tungumál sem samanstóð af hundrað orðum og flóknu bendingakerfi sem leikar- arnir þurftu að læra. Fílabúgarður á hálendinu En það þurfti meira en gróðurvana fjöll og eyðisanda til að minna á ísaldartímann. Forsögulegt dýralíf var einnig í aðalhlutverki í sögunni um leitina að eldinum og þá einkum loðfílar. Í dag myndu leikstjórar vafalítið grípa til tölvutækninnar, en um 1980 var fátt slíkt í boði. Þess í stað yrðu loðfílarnir leiknir af venjulegum fílum sem klæddir væru í nokkurs konar loðkápur með hárlímingum. Hlutverk sverðtígris- Í október 1979 var franski kvikmyndaleikstjórinn Jean-Jacques Annaud staddur á Íslandi. Það var ekki til að vera viðstaddur frumsýningu myndar hans „Svart og hvítt í lit“ (fr. Noir et blancs en couleur), sem þó var sýnd í Háskólabíói um sama leyti. Sú kvikmynd var raunar þriggja ára gömul og frumraun leik- stjórans, en hafði hlotið Óskars- verðlaun sem besta erlenda myndin og komið listamanninum rækilega á kortið sem einhverjum efnilegasta leikstjóra í heimi. Erindi Annauds var annað og áhugaverðara en að kynna byrj- endaverk sitt. Hann var mættur til Íslands á vegum Twentieth Century Fox-kvikmyndafélagsins til að leita að tökustöðum fyrir næstu mynd sína, sem verða skyldi alþjóð- legt stórvirki. Íslensk náttúra átti að vera í veigamiklu hlutverki og til greina kom að ráða fjölmarga íslenska leikara. „Ég held að hér sé um að ræða langstærstu land- kynningu sem nokkurn tíma hefur rekið á okkar fjörur,“ sagði íslenskur framkvæmdastjóri verkefnisins og lét þess getið að þegar væri búið að selja sýningarréttinn til 100 sjón- varpsstöðva um allan heim. Annaud var á faraldsfæti haustið 1979 í leit að tökustöðum. Fyrir lá að hluti myndarinnar yrði tekinn í þjóðgörðum í Kenýa, en leikstjórinn var einnig á höttunum eftir berang- urslegum norðurslóðum og fór í því skyni bæði til Noregs og Finnlands. Blaðamaður Helgarpóstsins lýsti leitinni svo: „Það sem Annaud er m.a. að leita að, er hellir eða hellis- skúti sem snýr út að eyðilegu lands- lagi. Ef hann finnur slíkan helli hér, gerir hann ráð fyrir að verða hér við kvikmyndatöku í fimm eða sex vikur, annars ekki nema í tvær til þjár vikur, því hér segist hann hafa fundið landslag, sem ekki sé hægt að finna annars staðar.“ Ástæða þess að íslenska landslag- ið hentaði svo vel til myndatöku var sú að sagan átti að gerast fyrir um 80 þúsund árum, meðal steinaldarfólks þegar ísöld ríkti á Jörðinni. „Leitin að eldinum“ (fr. La Guerre du feu) byggði á geysivinsælli samnefndri skáldsögu frá árinu 1911. Bókin var belgísk og höfundur hennar sagður J. H. Rosny, en það var skáldanafn tveggja bræðra sem teljast í dag brautryðjendur á sviði vísinda- og fantasíuskáldskapar – ekki hvað síst vegna bóka sinna sem gerast áttu á forsögulegum tíma. Hver er sjálfum sér næstur Leitin að eldinum segir frá frum- stæðum ættbálki steinaldarmanna sem náð hafa að tileinka sér eldinn, en kunna þó ekki að kveikja hann sjálfir. Þegar samfélag þeirra verður fyrir árás Neanderdalsmanna slokknar eldurinn sem hellisbúa- samfélagið hafði staðið vörð um mann fram af manni. Í kjölfarið eru þrjú úr hópnum send út af örkinni til að endurheimta eldinn dýr- mæta. Þau lenda í æsilegum ævin- týrum, enda lífsbaráttan grimm og hættur við hvert fótmál. Að lokum komast þau í kynni við fólk á hærra menningarstigi og læra ekki aðeins að tendra eld, heldur öðlast dýpri skilning á ýmsu í lífinu, uppgötva ástina og unaðsemdir kynlífs svo dæmi sé tekið. Þótt stórt bandarískt kvikmynda- fyrirtæki stæði að myndinni ætlaði leikstjórinn franski sér svo sannar- Fílarnir í Þjórsárdal Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um kvik- myndaævintýri Framleiðendur fengu skrá frá Leikarafélaginu um alla félags- menn þeirra ásamt ljós- myndum. Var þar sérstaklega horft til þess að leikararnir væru sterkbyggðir, en þó ekki í miklum holdum. dýrs í sögunni var svo í höndum ljóna með gervitennur og ámálaðar rákir. Sérstakur ráðunautur kvik- myndagerðarfólksins þegar kom að dýralífinu var hinn kunni breski líffræðingur Desmond Morris, sem öðlast hafði heimsfrægð rúmum áratug fyrr fyrir bók sína „Nakta apann“ (e. The Naked Ape). Tökustaðir myndarinnar hér á landi voru flestir ákveðnir í Þórs- mörk og Þjórsárdal, en á síðar- nefnda staðnum var komið upp heljarmikilli girðingu fyrir fimm- tán fíla, auk þess sem áætlað var að flytja inn tvö tígrisdýr og skógar- björn. Verkefnið var unnið í náinni samvinnu við embætti yfirdýra- læknis, til að hindra útbreiðslu smitsjúkdóma. Samið var við flutn- ingafyrirtæki um að koma skepn- unum til landsins og tryggðu fram- leiðendur sér mikið magn af lélegu heyi til að fóðra fílana á, en að mati sérfræðinga var venjulegt íslenskt hey of kjarngott fyrir ferfætlingana ferlegu. Allt var því til reiðu að hefja kvik- myndatökur sumarið 1980 og gera náttúru Þórsmerkur ódauðlega á hvíta tjaldinu. En aldrei kom töku- liðið og engir fílar voru geymdir innan girðingarinnar í Þjórsárdal. Ástæðan var verkfall í Hollywood. Leikaraverkfallið 1980 er það næstlengsta í sögu stéttarinnar í Bandaríkjunum og varði í þrjá mánuði. Það raskaði áætlunum fjölmargra kvikmynda- og sjón- varpsfyrirtækja, þar sem framleiðsla fjölda mynda og sjónvarpsþáttaraða komst í uppnám. Þótt ætla mætti að verkfall í Bandaríkjunum hefði lítil áhrif á kvikmyndaverkefni á Íslandi frestuðust tökur og þar sem einung- is var hægt að vinna að myndinni björtustu og hlýjustu mánuði ársins varð fljótlega ljóst að ekkert yrði úr komu Annauds og hans fólks sum- arið 1980. Þótt opinberlega væri hér aðeins um eins árs frestun að ræða, fór kvikmyndafyrirtækið fljótlega að svipast um eftir öðrum kostum. Niðurstaðan varð sú að velja nýja tökustaði í Skotlandi, sem féllu ekki alveg eins vel að hugmyndum leik- stjórans um ísaldarlandslag en voru mun ódýrari og kölluðu á minna umstang. Íslendingar misstu því af frábærri landkynningu og urðu sömuleiðis af talsverðum tekjum, enda hafði því verið haldið á lofti að kostnaðurinn við myndina næmi um tveimur skuttogurum – sem var alvanaleg mælieining á verðmæti á þessum árum. Myndin var tekin á tæplega einu ári og frumsýnd í lok árs 1981. Hún sópaði til sín verðlaunum á evrópskum kvikmyndahátíðum og hreppti ein Óskarsverðlaun, fyrir bestu búninga. Aðalleikar- arnir vöktu verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína og hafa sum þeirra öðlast glæstan feril, þótt leikarinn Ron Perlman sé vafalítið kunnastur í dag. Hann hefur lýst áhuga sínum á að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna árið 2020. Það skyldi þó aldrei fara svo að við fáum næstum-því-Íslandsvin í Hvíta húsið eftir nokkur misseri?  … var komið uPP heljar- mikilli girðingu fyrir fimmtán fíla. 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r40 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 0 F B 1 1 2 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 8 0 -1 0 F 4 2 1 8 0 -0 F B 8 2 1 8 0 -0 E 7 C 2 1 8 0 -0 D 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.