Fréttablaðið - 24.11.2018, Page 106
Gerðu notalegasta tíma
ársins enn betri.
Þú finnur Jólakaffið okkar
í öllum helstu verslunum.
Jaroslava, sem alltaf er kölluð Jara, er Rússi en bjó í Eist-landi þaðan sem hún kom til Íslands í fyrsta skipti í júlí 1998. „Ég kom hingað sem dansari og ætlaði að vinna á
Bóhem,“ segir Jara og bætir
við að þetta hafi aðeins átt að
vera stutt stopp.
„Vinur minn var að senda stelpur
til Íslands og sagði mér að ég ætti
að drífa mig vegna þess að á Íslandi
gæti ég þénað vel með lítilli fyrir-
höfn á skömmum tíma. Á þessum
tíma stjórnaði ég stórum veitinga-
stað í Eistlandi. Átti íbúð og bíl og
skorti ekki neitt en ákvað samt að
prufa þetta.“
Ekkert varð þó úr þessum áform-
um Jöru þar sem inn í líf hennar
kom þéttvaxinn og glaðbeittur
veitingamaður, 22 árum eldri en
hún, Ásgeir Þór Davíðsson sem þá
rak Hafnarkrána í Hafnarstræti.
„Ég var bara búin að vera hérna
í viku þegar ég kynntist Geira. Við
byrjuðum saman þannig að ég
hætti eiginlega á Bóhem áður en
ég byrjaði. Ég fór að vinna á fullu
hjá honum á Hafnarkránni, með
fyllibyttunum. Úff,“ segir Jara en
Hafnarkráin var álíka alræmdur
samkomustaður ógæfufólks og
utangarðsmanna og Keisarinn við
Hlemm. „Ég gekk í öll verk á meðan
Geiri var bara bak við á skriftofunni.
Ég var á barnum án þess að kunna
orð í íslensku, þreif klósettin og
hvað eina.
Þegar dvalarleyfi Jöru rann út
flaug hún heim til Eistlands. „Geiri
flaug út á eftir mér viku seinna.
Pakkaði öllu dótinu mínu niður
í ferðatöskur og fór með þær til
Íslands. Ég kom svo viku á eftir
honum og þannig byrjaði þetta nú
fyrir alvöru.“
Frá rónum til súlumeyja
Hafnarkráin og fastakúnnarnir þar
voru þyrnir í augum borgaryfir-
valda sem lögðu sig fram um að fá
staðnum lokað. Það gekk eftir og
Jara starfaði þar því ekki lengi.
„Þegar R-listinn lokaði Hafnar-
kránni í nóvember opnuðum við
Maxim’s hinum megin við götuna
13. desember.
Sléttu ári síðar, 14. desember Jara hefur fengið sig fullsadda eftir tuttugu ár á kampavínsklúbbum og ætlar að njóta lífsins fjarri glys og glaum.
Jaroslava Davíðsson var 26 ára gömul
þegar hún kom til Íslands fyrir tuttugu árum
og kynntist Geira á Goldfinger en klúbbinn
ráku þau saman þar til Geiri lést. Nú hefur
Jara fengið nóg, er að hætta og ætlar að
njóta lífsins fjarri súlum og freyðivíni.
Jara kveður
Goldfinger
eftir 19 ár
En á mEðan GolD-
finGEr Er GolD-
finGEr þá Er GEiri hérna
þótt éG hvErfi á braut.
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r66 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
Lífið
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
7
F
-F
D
3
4
2
1
7
F
-F
B
F
8
2
1
7
F
-F
A
B
C
2
1
7
F
-F
9
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K