Fréttablaðið - 24.11.2018, Side 107
1999, fluttu þau reksturinn í Smiðju-
hverfið í Kópavogi og opnuðu Gold-
finger. „Þetta var mjög gaman og ég
stofnaði þetta allt með honum og
sagði við hann að ef hann myndi
ekki stofna strippklúbb þá færi ég
bara úr landi og þetta væri búið.“
Jara segist hafa séð um öll sam-
skipti við dansarana á þessum tutt-
ugu árum enda koma þær flestar
frá Eystrasaltslöndunum og deila
þannig með henni tungumáli og
menningu.
Náin vinátta hefur tekist með Jöru
og allnokkrum konum sem hafa
komið hingað til þess að dansa, til
lengri eða skemmri tíma. Nokkrar
hafa sest að á Íslandi í kjölfarið og
sumar hverjar hafa dansað á Gold-
finger, fast eða með hléum, í rúman
áratug.
Jólasveinninn er orðinn
dýrari en vændiskona
Kampavínsklúbbarnir í Reykja-
vík hafa alla tíð verið bendlaðir
við vændi og mansal en Jara segir
aðspurð að þær sögur og kenningar
eigi ekki við um Goldfinger. „Ég get
bara svarað fyrir mig og veit ekkert
hvað aðrir eru að gera og skipti mér
ekkert af því. Ég hef líka áður bent á
það að vændið er fyrst og fremst á
netinu, hótelum og Airbnb-íbúðum.
Þetta er orðið svo stjórnlaust
og bilað að það er orðið dýrara að
leigja jólasvein til þess að skemmta
í krakkaveislum en að kaupa sér
aðgang að konu einhvers staðar úti
í bæ á netinu.“
Geiri var umdeildur maður, alls
ekki allra og jafnan milli tannanna á
fólki. Fannst þér erfitt að vera konan
hans Geira?
„Ég veit það ekki,“ segir Jara og
hugsar sig um í örstutta stund. „Nei.
Það held ég ekki. Ég er þannig töff-
ari að mér var alveg sama. Ég læt álit
Geiri naut þess að berast á og leiddist ekki að vera á milli tannanna á fólki, trúr spekinni að illt umtal er betra en ekkert.
annarra ekki trufla mig en auðvitað
er lífið þannig að maður rekst víða á
fólk sem er ánægt þegar öðrum líður
illa og vill frekar traðka mann niður
en að sýna náungakærleika og lyfta
manni upp. Allt sem ég hef gert í líf-
inu hef ég gert fyrir sjálfa mig, ekki
til þess að ganga í augun á öðru fólki
eða reyna að sanna mig fyrir því.“
Eftir að Geiri varð bráðkvaddur
í apríl 2012 keypti Jara staðinn úr
dánarbúi hans, ákveðin í að halda
staðnum gangandi í anda hans. „Ég
var ákveðin í að gera þetta og láta
þetta ganga en þetta er erfiðasta
ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu.“
Rússnesk harka
„En mér tókst þetta þótt ég ætti enga
peninga eða neitt. Kannski gekk
þetta bara upp vegna þess að ég vildi
þetta svo mikið. Síðan er ég náttúr-
lega Rússi og það er harka í okkur.
Það má aldrei gefast upp og þegar
fólk byrjar að væla þá skaðast það
bara meira. Það þarf að vera sterkur
og brosa á móti öllu mótlæti sama á
hverju gengur. En nú er ég búin að
fá nóg. Ég er enn ung, þreytt kona
og langar að fara að gera eitthvað
skemmtilegt í lífinu. Kannski flyt ég
bara til Spánar eða eitthvað,“ segir
Jara og hlær.
„Ég er tilbúin til þess að sleppa
takinu og fara að gera eitthvað
annað. Það er meira en nóg að hafa
staðið í þessu í tuttugu ár. Ég hef lært
mikið á þessum tíma og öðlast mikla
reynslu. Ég hef gert mistök, gefist upp
og haldið áfram og er enn á lífi.“
Jara segir óvíst hvað verði um
Goldfinger eða skemmtanahald
yfirleitt í húsnæði staðarins í miðju
iðnaðarhverfi í Kópavoginum. Það
eina sem sé alveg á hreinu er að hún
er að hætta.
Fái hún öll tilskilin leyfi endur-
nýjuð í desember muni hún líklega
selja staðinn. Ef ekki muni hún ein-
faldlega loka. Skella endanlega í lás
og aldrei líta til baka.
Geiri verður alltaf á Goldfinger
Nafn Geira var og er tengt Goldfinger
órjúfanlegum böndum enda naut
hann þess að berast á og var pláss-
frekur í fjölmiðlum á meðan Jara
hélt sig til baka. „Við vorum saman í
þessu og ég var konan á bak við súlu-
kónginn og stjórnaði þessu mikið til.
Það má segja að Geir hafi verið haus-
inn en ég hálsinn sem stjórnaði því
hvort horft væri til hægri eða vinstri.“
Geiri er horfinn af sjónarsviðinu
og nú ert þú að hætta þannig að hvað
sem verður um staðinn þá eru þetta
ákveðin kaflaskil. Andi Geira hefur
svifið yfir staðnum þótt hann sé dáinn
þannig að spyrja má hvort þú takir
hann með þér?
„Geiri verður alltaf Geiri á Gold-
finger og það breytir engu hvað ég
geri. Ekkert mun þurrka nafn hans
úr þessari sögu. Það er samt aldr-
ei að vita. Hugmyndin um Geira á
Goldfinger fjarar kannski út ef hér
verður opnaður annar staður með
nýtt nafn. En á meðan Goldfinger er
Goldfinger þá er Geiri hérna þótt ég
hverfi á braut.“
Jara ætlar að halda kveðjuveisluna
sína á Goldfinger í kvöld og það er
ljóst að þótt hún kveðji sátt þá er
það ekki með neinum trega. „Þetta
er afmælisveisla og kveðjupartíið
mitt um leið. Ég er að halda upp á að
reksturinn er tuttugu ára og Gold-
finger að verða nítján ára.
Síðan langar mig bara að kveðja
með stæl og þakka fyrir mig, þakka
stelpunum sem hafa unnið fyrir mig
í öll þessi ár og auðvitað viðskipta-
vinunum, með góðu partíi,“ segir
Jara sem vonast til þess að sjá sem
flesta gamla vini og kunningja rétt
áður en hún slekkur fjólubláu ljósin
við barinn fyrir fullt og allt.
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 67L A U G A R D A G U R 2 4 . n ó v e m B e R 2 0 1 8
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
F
-E
E
6
4
2
1
7
F
-E
D
2
8
2
1
7
F
-E
B
E
C
2
1
7
F
-E
A
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K