Fréttablaðið - 24.11.2018, Side 108
Lífið í
vikunni
18.11.18 -
24.11.18
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Moses Hightower
vitjar höfuðbólanna
Hljómsveitin Moses Hightower hefur verið að gera það gott og ætl-
ar heldur betur að bæta í velgengnina en þeir félagar eru á leiðinni í
tónleikaferðalag. Rif, Ísafjörður og Akureyri eru áfangastaðir þeirra.
H ljómsveitin Moses Hightower ætlar að gera sér lítið fyrir og leggja land undir fót á næstunni. Ferða-
lagið hefst þann 28. nóvember þegar
Moses-menn spila í Frystiklefanum
á Rifi, þaðan halda þeir beina leið
til Ísafjarðar þar sem Edinborgar-
húsið verður lagt undir tilfinn-
ingaþrungna tóna sveitarinnar og
að lokum skella þeir sér til Akur-
eyrar á besta tónleikastað landsins,
Græna hattinn. Þeir Steingrímur
Karl Teague, Magnús Trygvason
Eliassen og Andri Ólafsson fengu
sér rjúkandi bolla með blaðamanni
og ræddu ferðalagið.
Hvað kemur til að þið ákveðið að
ferðast á þessar exótísku slóðir?
Maggi: Aðallega að þarna eru
glæsilegir tónleikastaðir og gaman
að fá að spila þar.
Andri: Það er líka gott að fara
í bíltúr með vinunum. Spila fyrir
skemmtilegt fólk. Stoppa á völdum
stöðum og fá sér ís.
Maggi: Ís er mjög mikilvægur.
Steini: Akureyri, Snæfellsnes, Ísa-
fjörður. Þetta eru höfuðból. Það þarf
að vitja höfuðbólanna.
Hafið þið fengið mikið af fyrir-
spurnum um hvort þið ætlið vestur?
Andri: Segjum bara fleiri en eina
fyrirspurn, en færri en … öhhh … átta
hundruð … fyrirspurnir.
Maggi: Tólf fyrirspurnir.
Steini: Svo hafa kannski ein-
hverjir hugsað með sjálfum sér: „Nú
væri gaman ef hljómsveitin Moses
Hightower væri hérna.“ Án þess að
þurfa að segja það upphátt.
Þið eruð samkvæmt vinsælda-
listum aðalmennirnir í íslenskri tón-
list – hvernig er tilfinningin að tróna
svona fyrir ofan alla og er þetta eitt-
hvað sem þið vissuð að myndi gerast
þegar nýjasta platan kom út?
Maggi: Það entist bara í viku. Við
erum ekki lengur í toppsætinu.
Þetta er búið.
Andri: Manstu, Maggi? Manstu
vikuna 4.-10. nóvember 2018? Þegar
við vorum aðalmennirnir í íslenskri
tónlist?
Steini: Fólk ætti samt að mæta á
tónleikana. Það er ákveðinn sjarmi
yfir því að sjá hljómsveit sem er
búin að vera.
Hvernig, með ykkar orðum, er
upplifunin að sjá Moses Hightower
á tónleikum?
Maggi: Við reynum.
Andri: Við verðum fimm á sviði.
Hann Danni gítarleikari, sem stofn-
aði með okkur hljómsveitina, sagði
reyndar skilið við okkur á árinu og
sneri sér að öðru, en við plötuðum
Rögnvald Borgþórsson á svið með
okkur í staðinn.
Steini: Svo spilar Magnús Jóhann
Ragnarsson á alls konar hljóðgervla
og dinglumdangl. Hann sér um að
enginn komist að því að ég kann
ekki að syngja og spila á hljómborð
samtímis. Það er leyndarmál!
Andri: Rætur allra í bandinu
liggja í því að flytja lifandi tónlist,
þannig að okkur þykir vænt um tón-
leikaspilerí.
Eru kannski einhverjir aðrir exót-
ískir staðir komnir á kortið – Gríms-
ey, Gullströndin, Keflavík, Papey?
Andri: Sko, einn af ofangreindum
stöðum er einmitt í spilunum. En
það er of snemmt að vera eitthvað
að gaspra um það.
Steini: Það er leyndarmál!
Hvað er svo á döfinni næst hjá
ykkur?
Maggi: Við erum að malla nýja
músík sem fólk fær að heyra á nýja
árinu, og vonandi sjá líka, af því
að það er smá kvikmyndastúss í
kringum það. Svo ætlum við að spila
meira á tónleikum, af því að það er
skemmtilegt.
Steini: Ég ætla að fá mér kaffi.
Maggi: Já, ég gleymdi að segja að
ég ætla líka að fá mér kaffi.
Miðar á tónleika sveitarinnar fást
nú þegar á tix.is svo það er ekkert í
vegi fyrir því að fólk tryggi sér stæði
á einhverjum af þessum þremur
stöðum sem þeir stoppa á að þessu
sinni. stefanthor@frettabladid.is
Við eruM að MaLLa
nýja Músík seM fóLk
fær að Heyra á nýja árinu,
og Vonandi sjá Líka, af þVí
að það er sMá kVikMynda-
stúss í kringuM það. sVo
ætLuM Við að spiLa Meira á
tónLeikuM, af þVí að það er
skeMMtiLegt.
Strákarnir í Moses Hightower fengu sér einn rjúkandi með blaðamanni og röbbuðu um tónleikaferðalagið.
in MeMoriaM
þrastaLundur
Áhrifa-
valdabælið
Þrasta-
lundur í
Grímsnesi
er til leigu
og þess
minntist
Lífið að
sjálfsögðu í
vikunni.
VerndarVængur
á sængurVer
Börn Eddu Heiðrúnar Backman hafa
í samstarfi við Betra bak látið setja
eina af þekktustu myndum hennar,
Verndarvæng, á sængurver. Sonur
hennar segist hlakka til að hjúfra sig
undir sænginni.
HLaðVarp uM
krabbaMein
Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks
sem greinist með krabbamein,
er 20 ára á næsta ári. Af því tilefni
verður blásið í hátíðarlúðra með
alls konar húllumhæi. Meðal verk-
efna verður að gera hlaðvarpsþætti
um krabbamein en fyrsti þátturinn
verður tekinn upp í dag.
sá sterki yfirLeitt
í stuttbuxuM
Júlían J.K.
Jóhannsson,
sem bætti
heimsmetið í
réttstöðulyftu
fyrir skömmu,
segir að það
sé töluvert
erfitt að finna
föt sem passa.
Hann eigi
alveg galla-
buxur en gangi
yfirleitt í stutt-
buxum.
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Um leið og
við þökkum
viðtökurnar
á Black Friday
framlengjum við
BOMBURNAR
um helgina
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r68 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
7
F
-E
9
7
4
2
1
7
F
-E
8
3
8
2
1
7
F
-E
6
F
C
2
1
7
F
-E
5
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K