Fréttablaðið - 11.12.2018, Blaðsíða 3
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 9 2 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 1 . d e s e M b e r 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
skoðun Hjálpum heimilis-
lausum, skrifar framkvæmda-
stjóri Samhjálpar. 11
sport Heimir Hallgrímsson
klæðir sig aftur í þjálfaragallann
eftir að hafa ekki starfað sem
þjálfari frá því í júlí. 10
tÍMaMót Tíðarandinn nær jafn-
vel í gegn í kirkjugörðunum. 12
lÍfið Fréttablaðið
tók saman nokkra
góða hluti og
búðir sem ættu að
íhuga endurkomu
á Laugaveginn – líkt
og fatamerkið Don
Cano. 20
plús 2 sérblöð l fólk
l bókaJól
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Laugavegi 15 og Kringlunni - michelsen.is borgarleikhus.is
GJAFAKORT
sem lifnar við
Gefðu gjöf
með gjafabréfi
fyrir veitingum á
Leikhúsbarnum
GJÖFINA
STÆKKAÐU
Gjöfin sem gleður,
mjúka gjöfin frá
Lín Design
dýravelferð Ljósmyndir dýra-
verndarsamtaka af veiddum lang-
reyðum sem komið var með í hval-
stöð Hvals hf. í sumar sýna að sum
dýrin þurfti að skjóta oftar en einu
sinni til að taka þau af lífi. Náttúru-
verndarsamtök Íslands telja veiðar
fyrirtækisins ekki í samræmi við lög
um dýravelferð og telja mikilvægt að
Matvælastofnun hlutist til um rann-
sókn á veiðunum.
Það er mat Náttúruverndarsam-
takanna að myndirnar sanni að
fleiri en eitt skot hafi þurft til að
drepa fjölda dýra. Skyttur eigi að
miða á brjóstsvæði hvalanna til að
auka líkur á að dýrin drepist fljótt og
örugglega en samkvæmt myndum af
hvalskrokkum sést að skutlar eru á
hinum ýmsu stöðum í dýrunum,
jafnvel í kjafti þeirra.
Af þessu megi ráða „að í mörgum
tilfellum er um langvarandi dauða-
stríð að ræða“, segir í bréfi samtak-
anna til Matvælastofnunar sem telur
eftirlit stofnunarinnar ekki upp á
marga fiska. „Eftirlitið er frekar slakt
í þessum efnum. Matvælastofnun á
að sjá um eftirlitið með þessu,“ segir
Árni Finnsson, formaður Náttúru-
verndarsamtaka Íslands.
Í dýravelferðarlögum er kveðið
skýrt á um að dýr skuli aflífuð með
skjótum og sársaukalausum hætti og
forðast skuli að valda dýrum óþarfa
þjáningum eða hræðslu. Einnig er
óheimilt að aflífa dýr með því að
drekkja þeim. Telja Náttúruverndar-
samtök öll þessi atriði eiga við um
veiðar Hvals hf. á langreyði í sumar.
Ekki náðist í Kristján Þór Júlí-
usson sjávarútvegsráðherra við
vinnslu fréttarinnar. Hann hefur
áformað skoðun á framtíð hvalveiða
hér við land en ekki er vitað hvenær
þeirri skoðun verður lokið.
– sa / sjá síðu 4
Myndir sagðar sýna dauðastríð hvala
Náttúruverndarsamtök
Íslands telja dýravel-
ferðarlög brotin við
hvalveiðar. Ljósmyndir
teknar í Hvalfirði í sum-
ar eru sagðar sýna að tvö
eða fleiri skot hafi þurft
til að deyða dýrin og að
skotsár hafi verið víða á
skrokkum þeirra.
Í mörgum tilfellum
er um langvarandi
dauðastríð að ræða.
Úr bréfi Náttúruverndarsamtaka
Íslands til Matvælastofnunar
Það verður seint sagt að jólaandinn hafi svifið yfir vötnum í Reykjavík þegar beljandi rok og slagveður dundi á höfuðborgarsvæðinu og víðar í gær. Spáð er hvassri og hlýrri suðlægri átt í
dag og að hiti nái 10 stigum fyrir norðan. Því hefur Veðurstofa Íslands varað við miklum leysingum og hvatt til þess að hreinsað verði frá niðurföllum. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
alÞingi Ellert B. Schram varð í gær
elstur Íslendinga til að taka sæti á
Alþingi en hann situr nú sem vara-
þingmaður Samfylkingarinnar.
Þingmaðurinn segir að málefni eldri
borgara verði ofarlega á baugi hjá
sér meðan hann situr á þingi.
„Því var flett upp í dag
að það hefði enginn
verið 79 ára gamall
í sögu þingsins,“
segir Ellert. „Von-
andi get ég messað
yfir þinginu og farið
fram á það að fólk
skilji betur að
o f m a r g i r
e i n s t a k l -
ingar eru í
fátækt.“
– jóe / sjá
síðu 2
Ellert elstur til
að setjast á þing
1
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
2
-8
2
F
C
2
1
B
2
-8
1
C
0
2
1
B
2
-8
0
8
4
2
1
B
2
-7
F
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K