Fréttablaðið - 11.12.2018, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.12.2018, Blaðsíða 4
Veður Hvöss sunnan- og suðaustanátt í dag með rigningu og súld, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi veður, hiti 7 til 15 stig, hlýjast í hnjúkaþey norðanlands. sjá síðu 14 FramboðsFrestur til trúnaðarráðs eFlingar-stéttarFélags Kjörstjórn eflingar-stéttarfélags auglýsir framboðsfrest vegna kosning- ar trúnaðarráðs félagsins fyrir tímabilið 1. janúar 2019 til 31. desember 2020. Kosið er listakosningu. á hverjum frambornum lista skulu vera tillögur um 115 trúnaðarráðs- menn til tveggja ára samkvæmt 15. gr. laga félagsins. listi uppstillingarnefndar, stjórnar og trúnaðarráðs liggur frammi á skrifstofu félagsins frá og með miðvikudeginum 12. desember 2018. Öðrum listum ber að skila á skrifstofu félagsins fyrir kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 19. desember 2018. Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags Ljósin lýsa upp bæinn Hátíð ljóss og friðar ber senn að dyrum og hafa margir tekið sig til og skreytt hús sín af því tilefni. Í þeim hópi eru íbúar Dragavegar 5 hér í borg og verður ekki annað sagt en að skrautið lýsi upp skammdegið. Minnir það helst á hús hins seinheppna Clarks Griswold en saga hans er sögð í jólaklassíkinni Christmas Vacation. Rafmagnsreikningurinn hér og nú er þó eflaust öllu lægri enda perurnar nú talsvert sparneytnari en þá. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Bretland Theresa May, forsætisráð- herra Bretlands, mætti fyrir breska þingið í gær og sagðist hafa aflýst atkvæðagreiðslu sem fram átti að fara í dag um samninginn sem náðst hefur við ESB um Brexit. „Það er í raun allt í upplausn í breskum stjórnmálum þegar kemur að Brexit. Það er engin augljós leið fram undan,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um málið. Hann segir blasa við að May komi samningnum ekki í gegnum þingið og því sé atkvæðagreiðslan dregin til baka. May sagðist meðvituð um að þing- menn hefðu einna helst áhyggjur af „backstop“-áætluninni, varúðarráð- stöfun ef Bretum og ESB tekst ekki að komast að niðurstöðu um hvernig skuli hátta tollamálum svo ekki verði þörf á sýnilegum landamærum milli Norður-Írlands og Írlands. Óánægja er með þessa ráðstöfun enda felur hún í sér að Norður-Írar, einir Breta, þyrftu áfram að lúta meginþorra reglna tollabandalagsins. Á næst- unni myndi hún leitast við að upp- ræta þessar áhyggjur. John Bercow, forseti þingsins og samflokksmaður May, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega og sagði það ókurteisi að kippa málinu einhliða af dagskrá þegar 164 þingmenn hafa tekið þátt í umræðum. Leiðtogar Skoska þjóðarflokksins skoruðu á Jeremy Corbyn, leið- toga Verkamannaflokksins, í gær að leggja fram vantrauststillögu. Ljóst er að staða May er nokkuð veik. Eiríkur segir þó ekki hægt að útiloka að May standi storminn af sér enda hefur hún staðið af sér ótrúlegustu mál í valda- tíð sinni. Að sama skapi, segir hann, gæti hún fallið hvenær sem er. – þea Allt í upplausn í Bretlandi Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. alÞInGI Ellert B. Schram varð í gær elstur Íslendinga til að taka sæti á Alþingi en hann situr nú sem vara- þingmaður Samfylkingarinnar. Ellert var fyrst kjörinn á þing árið 1971 en þá fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þingmaðurinn segir að málefni eldri borgara verði ofarlega á baugi hjá sér meðan hann situr á þingi. Þingseta Ellerts nú er komin til vegna þess að Ágúst Ólafur Ágústs- son hefur tekið sér tveggja mánaða leyfi frá þingstörfum eftir að hafa verið áminntur af siðanefnd Sam- fylkingarinnar fyrir ósæmilega framkomu við konu. Fyrsti og annar varamaður Samfylkingarinnar í kjördæminu, þau Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmda- stjóri hjá Háskólanum í Reykjavík, og rithöfundurinn Einar Kárason, gátu ekki tekið sæti nú. Því tók Ell- ert sætið. „Því var flett upp í dag að það hefði enginn verið 79 ára gamall í sögu þingsins. Hvorki fyrr né síðar. Ég er nú nokkuð hreykinn af því að vera sá elsti,“ segir Ellert. Elsti þing- maður í sögunni var Sighvatur Árna- son, bóndi í Eyvindarholti, en hann var tæplega 79 ára gamall þegar þingsetu hans lauk árið 1902. Sem fyrr segir var Ellert kjörinn fyrst á þing 1971, þá rétt rúmlega þrítugur, en þá var hann yngstur þingmanna. Hann sat á þingi til 1978 en missti þá sæti sitt. Hann var kjörinn á ný 1983 og sat til 1987. Árið 2007 var hann kjörinn á þing á ný, þá fyrir Samfylkinguna, og sat til ársins 2009. Í millitíðinni tók hann sæti sem varamaður á árunum 2006 og 2007. „Ég hef nú kannski ekki setið nógu lengi þetta skiptið til að bera saman þingið þá og nú. Upp til hópa eru þingmenn gott fólk sem vill vel og reynir að standa sig. Þannig að andrúmsloftið er sams konar. Helsti munurinn er kannski sá að við höfðum ekki vínbari í nágrenni þingsins á þeim tíma,“ segir Ellert. Gert er ráð fyrir því að þingið fari í jólafrí næsta föstudag en fjárlög voru afgreidd fyrir helgi. Ellert, sem er formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, gerir ráð fyrir að þegar hann taki til máls muni málefni aldraðra verða í fyrir- rúmi. „Það þarf að gagnrýna það að greiðslur frá almannatryggingum til eldri borgara hafa lítið hækkað. Vonandi get ég messað yfir þinginu og farið fram á það að fólk skilji betur að of margir einstaklingar eru í fátækt. Það þarf að koma til móts við þetta fólk og rétta því hjálpar- hönd,“ segir Ellert. joli@frettabladid.is Elstur til að taka sæti á þingi í Íslandssögunni Ellert B. Schram varð í gær elstur Íslendinga til að setjast á þing. Þegar hann tók fyrst sæti fyrir tæplega fimmtíu árum var hann yngsti þingmaðurinn sem náði kjöri. Ellert vonast til að geta komið málefnum eldri borgara að inni á Alþingi. Ellert sló á létta strengi með Viðreisnarmanninum Þorsteini Víglundssyni yfir veiðigjaldaumræðunni í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Vonandi get ég messað yfir þinginu og farið fram á það að fólk skilji betur að of margir einstaklingar eru í fátækt. Ellert B. Schram, varaþingmaður Samfylkingarinnar dÓMsMál Karlmaður var í Héraðs- dómi Reykjavíkur fyrir tveimur vikum dæmdur til að sæta viðeig- andi meðferð á geðdeild. Hann var fundinn sekur um tvær líkamsárásir en ekki gerð refsing vegna þeirra sökum sjúkdóms síns. Fyrri árásin átti sér stað árið 2015 en þá sló hann mann margsinnis með keðju svo af hlaust rifbrot, mar á öxl og áverkar á búk. Í þeirri síðari árið 2017 sló hann reiðhjólamann ítrekað í höfuðið með áhaldi en ekki er tekið fram hvers kyns það var. Sannað þótti að maðurinn hefði gerst sekur um árásirnar. Hins vegar var það mat geðlækna að refsing myndi lítt stoða. Meðferð hefði bætt ástand ákærða mikið og mikil- vægt væri að halda henni áfram. Var hann því dæmdur til að sæta eftirliti og meðferð geðlækna og fylgja fyrir- mælum um lyfjameðferð. – jóe Dæmdur til að sæta meðferð 1 1 . d e s e M B e r 2 0 1 8 Þ r I ð j u d a G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð 1 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B 2 -8 7 E C 2 1 B 2 -8 6 B 0 2 1 B 2 -8 5 7 4 2 1 B 2 -8 4 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.