Fréttablaðið - 11.12.2018, Síða 16

Fréttablaðið - 11.12.2018, Síða 16
Það verður sérstök íslensk stemming á tónleikunum um næstu helgi í tilefni af aldarafmæli fullveldisins. Áherslan verður á íslensk jólalög, meðal annars eftir Jórunni Viðar tónskáld sem hefði orðið hundrað ára á árinu. Meðal þekktra laga Jórunnar sem hljóma á tónleikunum eru Jól og Það á að gefa börnum brauð. Sömuleiðis verður sungið um jólaköttinn, íslensku jólasveinana, Grýlu og Leppalúða. Lög sem allir Íslendingar þekkja vel. Þá verður fluttur forleikur með öllum helstu lögum Gunnars Þórðarsonar eins og Aðfangadagskvöldi, Þegar líða fer að jólum og Jóladraumi. Í lok tónleikanna er hefð fyrir því að allir syngi saman Heims um ból en svo vill til að sálmurinn á 200 ára afmæli á þessu ári. Í jólaskapi Valgerður Guðnadóttir syngur einsöng ásamt Kolbrúnu Völku- dóttur sem flytur lögin á tákn- máli. Kolbrún hefur komið fram á jólatónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands undanfarin ár og vakið mikla athygli. Valgerður segir að þetta sé í fyrsta skipti sem hún syngi á jólatónleikunum og hún hlakki mikið til. „Ég er mjög spennt að fá að vera með á tónleikunum. Það er ótrúlega skemmtilegt að vera hluti af svona lifandi hóp sem samanstendur af hljóðfæraleikurum, barnakórum og listdönsurum. Þetta er hátíð- legt og fallegt,“ segir Valgerður sem er ekki óvön því að syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Meðal annars söng hún á Vínar- tónleikunum í janúar á þessu ári. „Ég hef sungið á mörgum ólíkum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu. Á Disney tónleikum með Sin- fóníunni, sömuleiðis James Bond tónleikum. Einnig hef ég sungið með Íslensku óperunni svo fátt eitt sé nefnt,“ segir hún. „Það er mjög gott að syngja í Eldborg, virkilega góður hljómur,“ bætir hún við. „Það er sömuleiðis skemmtilegt að íslensk lög verði í hávegum höfð að þessu sinni,“ segir Valgerður. „Þótt jólatónleikarnir séu alltaf með svipuðu sniði eru alltaf ein- hverjar nýjungar ár hvert. Það er mikill heiður að fá að syngja með Kolbrúnu og mér finnst það stór- kostlegt að lögð sé áhersla á tákn- mál í flutningnum. Það er mjög gaman fyrir mig að hafa Kolbrúnu með mér á sviðinu. Það verða fernir tónleikar á laugardag og sunnudag og við hlökkum ótrúlega mikið til að taka á móti gestum, fullorðnum sem börnum. Tónleik- arnir standa yfir í klukkustund sem er nægilega langt fyrir börn. Maður kemst í mikið jólaskap á jólatón- leikunum,“ segir Valgerður. Syngur á táknmáli Kolbrún syngur á táknmáli og hefur einstaka hæfileika til þess. Til dæmis er hún alltaf berfætt til að skynja betur hljómfallið frá hljómsveitinni. „Ætli þetta sé ekki sjötta árið sem ég kem fram á jólatónleikum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar,“ segir hún. Kolbrún hefur verið heyrnarlaus frá tveggja ára aldri en þá veiktist hún af heilahimnubólgu með þeim afleið- ingum. Hún getur lesið af vörum og svarað fyrir sig. „Ég kemst alltaf í mikið jólaskap á tónleikunum, það eru allir svo glaðir. Ég hlakka alltaf til þessara tónleika,“ segir hún. „Áður hafði ég komið fram á jólatónleikum í Langholtskirkju í nokkur ár. Með á sviðinu í Lang- holtskirkju var krílakór sem einnig söng á táknmáli og samanstóð af börnum á aldrinum 5-12 ára. Það er yndislegt að syngja með þeim,“ segir Kolbrún. „Mér finnst söngur á táknmáli aldrei erfiður, þetta er bara gaman. Ég þarf vissulega að vinna náið með söngkonunni því þetta er mikil samvinna,“ segir hún. „Við eigum eftir að standa þétt saman,“ bætir Valgerður við en þær stöllur eru sammála um að mjög ánægjulegt sé að gera íslenskum jólalögum hátt undir höfði. „Þau eru svo falleg,“ segja þær. Kolbrún segist hafa unnið með mörgum íslenskum söng- konum og yfirleitt hafi það alltaf gengið vel. Fjölbreyttir listamenn Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum með þeim Valgerði og Kolbrúnu eru nemendur úr Listdansskóla Íslands, Stúlknakór Reykjavíkur og táknmálskórinn Litlu sprotarnir, ungir lúðraþeyt- arar og einleikarar ásamt Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem hringir inn jólin og flytur jólalög fyrir og eftir tónleikana. Kynnir að þessu sinni er trúðurinn Hildur, sem leikinn er af Katrínu Halldóru Sigurðardóttur. Hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands er Bernharður Wilkinson. Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verða í Eldborg laugar- daginn 15. desember kl. 14 og 16 og sunnudaginn 16. desember kl. 14 og 16. Miða á tónleikana er hægt að nálgast á sinfonia.is. Íslensk jólatónlist verður í hávegum höfð á jólatónleikunum um helgina í tilefni af aldarafmæli fullveldisins. Þessi mynd var tekin á jólatónleikunum í fyrra. Eldborgarsalur Hörpu var fallega skreyttur og svo verður einnig nú. Margir listamenn koma að tónleikunum og gestir upplifa hið eina rétta jólaskap. Framhald af forsíðu ➛ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid. is, s. 550 5761 Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 550 5766 Brynhildur Björnsdóttir, bryn- hildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 550 5769 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . d E S E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B 2 -A 5 8 C 2 1 B 2 -A 4 5 0 2 1 B 2 -A 3 1 4 2 1 B 2 -A 1 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.