Stjarnan - 01.11.1931, Blaðsíða 1

Stjarnan - 01.11.1931, Blaðsíða 1
STJARNAN \ J r J Illgresi og synd íyrir nokkru fór eg í góða veðrinu út í garðinn, til þess að hreinsa til dálítið, brenna illgresi og koma öllurn gömlum maisstönglum í burtu fyrir veturinn. Þegar eg að því búnu fór inn í húsið aftur, til þess að hafa fataskifti, tók eg eftir því að sokkarnir mínir voru þaktir illgresisfrækornum, sem loddu við þá, en hvert sem eg stýrði sporum mínum um húsið féllu sum þeirra af við hreyfingar mínar. — Eg fór þá að hugsa um hversu líkt illgresið er syndinm. Enginn getur ugglaust haldið til, þar sem hún þrífst og blómgast, og ímyndað sér að hann geti varðveitt sjálfan sig hreinan og óflekkaðan til lengdar, því að hún loðir við eðli manns eins og illgresisfrækornin við sokkana; og ef hún loðir við mann, þá er hann vís til að dreifa henni hvert sem hann fer,—oft og tíðum í hjörtu hinna ungu og óreyndu. — Hjinn kristni verður að forðast þá staði, þar sem syndin er haldin í hávegum, til þess að hann sjálfur sýkist ekki af henni, né beri hana út til annara. Maður verður að hafa hugann við hann, sem er kær- leikans og hreinleikans Guð, til þess að geta verið hreinn í þessum heimi. —D. G. N!OV., 1931 WINNIPEG, MAN. Verð: 15C

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.