Stjarnan - 01.11.1931, Page 3
STJARNA N
Uppfyltur spádómur
Gamall Indíáni af Aztec þjóðflokkn-
um lá fyrir dauÖanum í litla kofanum
sínum, í þorpinu Huerjapan í Mexico.
Ættingjar hans og vinir höföu safnast
kring um hann, til aS sjá hann í síÖasta
sinni og kveðja hann.
Hinn deyjandi öldungur hvatti börn
sín til að leita eftir hreinna og bjartara
ljósi, heldur en trúarbrögÖ þeirra veittu
þeim. Með öruggri trúar fullvissu sagði
hann sonum sínum, að heir myndu öðlast
meira ljós. Svo kvaddi hann rólega og
hneig niöur örendur.
Einn sona hans, Antonio Ramirez, fann
spánverska blaðið, sem vér gefum út,
þegar hann var að líta yfir eftirlátnar
eigur föður síns. Hann las blaðið og
skært ljós rann upp í sálu hans. Það
var fagnaðarerindið; uppfylling á spá-
dómi föður hans er hann lá banaleguna.
I níu ár las Antonio þetta blað, svo skrif-
aði hann útgefandanum og bað um frek-
ari upplýsingar. Hann gerðist áskrifandi
að blaðinu, keypti Biblíu og fleiri bækur.
Hann hélt áfram að lesa, tók á móti
Kristi og varð nýr maður. Hann leiddi
marga fleiri til þekkingar á sannleikan-
um. Þegar eg fyrir nokkru síðan heim-
sótti hann á hvíldardaginn fór hann með
mig inn í miðjan bæinn, þar stóð snoturt
hvítt bænahús, sem brátt fyltist af fólki.
Það hafði alt snúið sér til Krists fyrir
áhrif þessa manns. —J. B. Nelson.
Þýðingarmeáta spurningin
Margar og mikilsverðar spurningar
liggja fyrir leiðtogum kirkjunnar og
stjórnendum þjóðanna á þessum dögum,
þegar uppreisnarandi, atvinnuleysi, og
fjárþröng hvarvetna gerir vart við sig í
svo stórum stíl að til vandræða horfir.
En þó er ein spurning meira áríðandi en
allar aðrar, því úrlausn hennar er lykill-
inn, sem nota má, til að opna forðabúr
auðs þess og vizku, sem með þarf til að
greiða úr öllum þeim vandamálum, sem
áður eru nefnd. Spurningin er þessi:
“Er Biblían óskciknl? Er hún Guðs
opinberdða orð?
Nú skulum vér benda á það sem oss
virðist vera óhrekjandi sannanir fyrir
því að Biblían sé Guðs orð.
i. Áhrif orðsins á líf þeirra sem trúa
og breyta eftir því.
Vantrúarmaður var einu sinni á ferð í
Austurálfunni og heimsótti innfæddan
höfðingja, sem snúist hafði til Kristni.
Þegar höfðingi þessi lét í ljósi trú sína á
Guðs orð í Heilagri Ritningu, þá spurði
vantrúarmaðurinn hvort hann væri svo
einfaldur að trúa slíkum æfintýrum.
Höfðinginn gaf ekki beint svar upp á
spurningu hans, heldur benti honum á
kylfu sem lá skamt frá þeim, og stóran
pott og sagði: “Ef það hefði ekki verið
fyrir áhrif Guðs orðs á líf vort og breytni,