Stjarnan - 01.11.1931, Qupperneq 6

Stjarnan - 01.11.1931, Qupperneq 6
i66 STJARNA N býÖur y'Öur aÖ bera þaÖ fram: ‘Berið nú fram málefni yÖar,’ segir Drottinn, 'far- ið fram með varnir yðar.’ Hverjar eru þessar varnir? Vér skulum lesa áfram. ‘Láturn þá koma með og kunngera oss hvað verða muni. Gerið kunnugt hvað það er sem þér áður hafið spáð, svo að vér getum hugleitt það og séð, hversu það hefir ræzt, eða látið oss heyra hvað koma á. Gerið kunnugt hvað héreftir muni fram koma svo vér megum sjá að þér eruð Guðir!” “Hefir Biblían fullnægt þessum skil- yrðum?” spurði hr. Einarson, “eg meina skýrt og ótvírætt.” “Hefi eg ekki þegar fyrir löngu sagt þér það og boðað það ? Og þér eruð vott- ar mínir,” svaraði hr. Djarfur. “Þér, já, jafnvel þú, hr. Einarson, og aðrir vantrúarmenn, sem hér eru við- staddir, eru vitni upp ’ á áreiðanlegleika spádóma þeirra sem gefnir voru fyrir hundruðum ára.” Hr. Einarson stökk á fætur. “Þú mein- ar þó ekki að þú ætlir að láta okkur sanna spádóma þína?” spurði hann for- viða. “Það er einmitt það, sem eg ætla að gera,” svaraði ræðumaður brosandi. Hönum var auðsjáanlega skemt að sjá undrun fólksins. “En við trúum ekki Biblíunni, og álitum spádóma hennar blátt áfram fjarstæðu, og þó ætlar þú að láta okkur sanna það, sem við leggjum engan trúnað á,” sagði hr. ’Einarson. Lilja hvíslaði að bróður sínum: “Nú fer að verða gaman að því, hann hefir komið pabba af stað.” Guðmundur brosti og sagði: “Já, víst er það, en pabbi er ekki sá eini sem kom- inn er í hreifingu. Littu í kring um Þig” Hún leit á fólkið og allir virtust vera á nálum af forvitni til að heyra hvað næst yrði upp á teiningnum. “Það, að þér eruð vantrúarmenn, að þér móti vilja yðar berið vitnisburð um sannleikann, þetta gerir vitnisburð yðar því áhrifameiri,” svaraði hr. Djarfur, þegar hr. Einarson settist niður. Guð auglýsti fyrir 2500 árum að hann mundi sanna orð sín með vitnisburði þeirra manna, sem ekki segjast trúa orði hans. Þetta er djarflega talað, en það eruð þér, sem skuluð bera vitni um sannleika spá- dómanna. “Vísindin hafa leyst úr mörgum erf- iðum spurningum. Þau virðast nær því }-firnáttúrleg, en samt hafa þau ekki leitt oss feti frarnar en feður vorir stóðu hvað því viðvíkur að geta sagt fyrir óorðna hluti. Mannlegir kraftar og vits- munir geta engu fremur séð eða sagt fyrir leyndardóma framtiðarinnar, heldur en þeir geta náð í stjörnur vetrarbrautar- innar. “Vér getum ekki séð fyrir hvað verða muni næsta ár, ekki einu sinni athurði morgundagsins. Óvissan er eins og vegg- ur frammi fyrir okkur. \’ér getum gizk- að á, vér getum vonað, en vér getum ekki vitað hvað framtíðin ber i skauti sínu. “Ef framtíðar atburðir, margir og mis- munandi, hafa verið nákvæmlega sagðir fyrir svo þeir ná yfir alkunnar þjóðir og timabil, ekki aðeins um fáein ár, heldur þúsundir ára; ef slíkir spádómar hafa verið framfluttir á þann hátt. að ómögu- legt sé að hafa nokkur brögð í tafli til að rangfæra málið, svo atburðirnir lagi sig eftir sjádóminum; ef vantrúarmenn verða sjálfir að kannast við, að spádórn- arnir eru nákvæmlega uppfyltir, og geta enga skýringu gefið, ef þér, sem hér eruð, sjáið að spádómar gefnir fyrir 2500 árum eru nákvæmlega uppfyltir, hvernig getið þér þá efast um, að yfirnáttúrlegur vís- dómur hefir opinberað ókomna atburði? “Hér er bók full af spádómum, sem ná til allra þjóða og tíma. Hún segir fyrir atburði, sem áttu ekkert skylt við neitt, er sýnilegt var eða átti sér stað á þeim tíma sem þeir voru gefnir; atburðir. sem gagnstæðir voru öllu því, er hafði heyrst eða þekst fram að þeim tíma, í öllu tilliti óliklegir, og fyrir manna sjón- um ómögulegir, atburðir, sem snerta lif

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.