Stjarnan - 01.11.1931, Side 14
174
stjarnan
Eina meðalið
(Framh. frá bls. 162}
sjó með feikna hraÖa, og sent skeyti um-
hverfis jöröina með radio á styttri tíma
en einnri mínútu. Vér rannsökum frum-
efni náttúrunnar og lærum leyndardóm-
inn um samsetningu þeirra og eÖli. Alt
virðist standa opið fyirr oss.
Þó er eitt atriði, og hað mjög áríðandi,
sem menn vita ekki, og sem þeir með
hverjum líðandi degi gefa minni gaum,
það er þetta: Vér stöndum sem glataðir
syndarar frammi fyrir lifandi Guði, án
vonar um frelsun, nema vér þiggjum
hana, sem náðargjöf föðursins fyrir trú
á Jesúm Krist. Orð Jesajasar spámanns
koma til vor með því meiri krafti sem
lengra liður á tímann. “Uxinn þekkir
eiganda sinn og asninn jötu húsbónda
síns, en ísrael þekkir ekki, mitt fólk
skilur ekki, vei hinni syndugu þjóð, þeim
lýð sem misgjörðum er hlaðinn, afsprengi
illræðismanna, spiltum börnum. Þeir
hafa yfirgefið Drottinn, smáð hinn heil-
aga í ísrael og snúið baki við honum.”
Jes. 1:3-4-
Það er nauðsynlegt fyrir oss aS vita að
vér erum spiltir og getum ekki hætt oss
sjálfir. Sálmaskáldið segir: “Ef þú,
Drottinn, vildir gefa gætur að misgjörð-
um, herra, hver fengi þá staðist?” Sálm.
130:3. Aftur biður hann: “Gakk eigi í
dóm við þjón þinn, því að enginn lifandi
maður er réttlátur fyrir augliti þínu.”
Þetta var það sem vakti fyrir Jeremía
er hann eggjaði ísraelsmenn og enginn
gaf gaum að áminningum hans: “Getur
blámaðurinn breytt hörundslit sínum, eða
pardusdýrið flekkjum sínum, þá munduð
þér og megna að gera vel, þér, sem vanist
hafið að gera ilt.” Jer. 13:23. Páll post-
uli segir: “Vér höfum þegar áður gefið
bæði Gyðingum og Grikkjum að sök að
þeir væru allir undir synd, eins og ritað
er. Ekki er neinn réttlátur. Ekki einn.”
Róm. 3 :9-io.
Frelsið i Kristi. Guði sé lof. Þótt vér
séum allir syndarar þá er læknismeðal
fyrir hendi—blóðið Jesú Krists, sonar
hans, hreinsar oss af allri synd.” John
1 :y. Pétur postuli segir: “Hann bar
sjálfur syndir vorar á likama sínum upp
á tréð, til þess að vér skyldum dánir frá
syndunum lifa réttlætinu. Fyrir hans
benjar eruð þér læknaSir.” 1. Pét. 2:24.
“Því Kristur leið líka einu sinni fyrir
syndir, réttlátur fyrir rangláta svo hann
gæti leitt oss til Guðs. Hann var að vísu
deyddur að líkamanum til, en lifandi
gjörður sem andi.” 1. Pét. 3:18.
Jesús er eini vegurinn til frelsunar. Vér
ættum nú, betur en nokkru sinni fyr, að
skilja kraft þann sem liggur í orðum
hans er hann segir: “Eg er vegurinn,
sannleikurinn og lífið, enginn kemur til
föðursins nema fyrir mig.” Jóh. 14:6.
Pétur segir einnig: “Og ekki er hjálp-
ræðið í neinum öðrum, því að eigi er
heldur annað nafn undir himninum, er
menn kunna að nefna, er oss sé ætlað
fyrir hólpnum að verða.” Postulas. 4:12.
Oss er jafn ómögulegt að frelsa sjálfa
oss með eigin krafti eins og að lyfta oss
upp frá jörðinni með því að toga í hárið
á höfði voru. Vér verðum að leita lengra
heldur en kraftar vorir ná, ef vér viljurn
öðlast hinn frelsandi kraft. Það sem er
ómögulegt fyrir mönnum er mögulegt
fyrir Guði.
“Sjá það Guðs lamb sem ber heims-
ins synd.” Allir geta séð. Hinn fátæki
og óhamingjusami getur séð, engu síður
en hinn ríki og voldugi í heiminum. Vér
getum allir séð. Vér þurfum hvorki
þekkingu, afl eða áreynslu til að geta
séð. Vér getum öðlast frelsun án eigin
verðskuldunar, með því blátt áfram að
líta til Jesú, trúa á hann og setja alla
vora von til hans. Þetta geta allir gert.
Frelsið er fyrir hvern sem vill þiggja
það. Vér lítum til Jesú, þetta ummynd-
ar líf vort. Ef menn vildu virða Jesúm